Fréttablaðið - 13.04.2016, Síða 10
Ársfundur
Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka Íslands
boðar til ársfundar fimmtudaginn 28. apríl 2016
kl. 17.00 í húsnæði LSR, Engjateigi 11
(gengið inn að vestanverðu).
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Stjórnarkjör.
Önnur hefðbundin ársfundarmál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á ársfundi með málfrelsi
og tillögurétti. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
– G Ó Ð U R Á B R A U Ð –
Í S L E N S K U R
GÓÐOSTUR
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/M
SA
7
84
18
0
2/
16
ESB Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins kynnti í gær hugmyndir
sínar um að stærstu fyrirtækjum, sem
starfa í aðildarríkjum sambandsins,
verði gert skylt að gera opinberlega
grein fyrir skattamálum sínum.
Framkvæmdastjórnin segir að
Evrópusambandið verði af 50 til 70
milljörðum evra árlega vegna skatta-
undanskota. Þetta samsvarar ríflega
7.000 til nærri 10.000 milljörðum
króna.
Reglurnar eiga að ná til þúsunda
fjölþjóðafyrirtækja, hvort sem þau
eru evrópsk eða ekki. Eina skilyrðið er
að viðkomandi fyrirtæki sé með starf-
semi í ríkjum Evrópusambandsins.
Reglurnar eiga hins vegar ekki að ná
til lítilla eða meðalstórra fyrirtækja.
Fyrirtækjunum verður gert skylt
að birta upplýsingar um hagnað sinn,
skattgreiðslur, starfsmannafjölda og
veltu, og þessar upplýsingar verði
sundurliðaðar eftir aðildarríkjum ESB
og nokkrum helstu skattaskjólum
heims.
Þessar reglur myndu ná til stór-
fyrirtækja á borð við Google, Apple
og Starbucks, sem öll hafa verið gagn-
rýnd fyrir að notfæra sér skattaskjól.
Jonathan Hill, sem fer með málefni
fjármálafyrirtækja í framkvæmda-
stjórninni, sagði að bæði efnahagur
og samfélag Evrópuríkjanna væru
háð því að skattakerfið sé sanngjarnt:
„Í dag er það samt svo, að með því að
nota flókna skattahagræðingu geta
sum fjölþjóðafyrirtæki komist upp
með að greiða nærri þriðjungi lægri
skatta en fyrirtæki sem sem starfa
einungis í einu landi.“
Reglurnar, sem framkvæmda-
stjórnin kynnti í gær, verða á næst-
unni ræddar bæði á Evrópuþinginu
og í ráði Evrópusambandsins. Báðar
þessar stofnanir þurfa að samþykkja
þær, áður en þær geta tekið gildi.
Eftir að upplýsingar tóku að birtast
úr Panama-skjölunum hafa stjórn-
völd víða um heim boðað aðgerðir
gegn skattaskjólum. Á mánudaginn
kynnti til dæmis David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, áform um að
fyrirtækjum verði refsað fyrir að láta
starfsmenn sína komast upp með að
gefa ráðleggingar um skattaundaskot.
Og á sunnudaginn hvatti Wolfgang
Schäuble, fjármálaráðherra Þýska-
lands, ríki heims til að sameinast um
öfluga baráttu gegn skattaskjólum.
gudsteinn@frettabladid.is
Verði gert skylt
að upplýsa um
tekjur og skatta
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti
nýjar reglur um gagnsæi. Fjölþjóðafyrirtæki geti
ekki lengur skotið tekjum undan. ESB verður árlega
af 50 til 70 milljörðum evra vegna undanskota.
Í dag er það samt
svo, að með því að
nota flókna skattahagræð-
ingu geta sum fjölþjóðafyrir-
tæki komist upp með að
greiða nærri þriðjungi lægri
skatta en fyrirtæki sem starfa
einungis í einu landi.
Jonathan Hill, fjármálastjóri í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
Mótmælendur efndu í gær til uppákomu fyrir utan byggingu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í Brussel. FréttaBlaðið/EPa
orkumál Fyrirtækið
Metalogalva í Portú-
gal átti lægsta tilboðið
í stálmöstur þriggja
háspennulína Landsnets,
Kröflu línu 4, Þeistareykja-
línu 1 og Suðurnesja línu 2, en
alls bárust fimmtán tilboð í
möstrin og voru tólf þeirra
undir kostnaðaráætlun.
Metalogalva bauð tæpar
3,2 milljónir evra, eða
465 milljónir íslenskra
króna, um 59 prósent af
kostnaðar áætlun.
Landsnet mun nú fara yfir
tilboðin og í framhaldi af því
verður rætt við lægstbjóð-
endur.
Gert er ráð fyrir að
möstur Kröflulínu 4, frá Kröflu
að Þeistareykjum, komi til
landsins í sumar en möstur
Þeistareykjalínu 1, frá Þeista-
reykjum að Bakka, og Suður-
nesjalínu 2, milli Hafnar-
fjarðar og Rauðamels á
Reykjanesi, verði afhent í
byrjun næsta árs.
– shá
Lægsta boð 59% af áætlun
1 3 . a p r í l 2 0 1 6 m I Ð V I k u D a G u r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
B
-5
C
F
0
1
9
0
B
-5
B
B
4
1
9
0
B
-5
A
7
8
1
9
0
B
-5
9
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K