Fréttablaðið - 13.04.2016, Page 15
Gildi–lífeyrissjóður
Ársfundur 2016
Dagskrá fundarins
Venjuleg ársfundarstörf.
Erindi tryggingafræðings sjóðsins.
Önnur mál, löglega upp borin.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti.
Sérstakt fulltrúarráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka
atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins
eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Reykjavík, 4. apríl 2016.
Stjórn Gildis — lífeyrissjóðs.
1.
2.
3.
Grand hótel Reykjavík, fimmtudaginn 14. apríl kl. 17.00
Lífeyrissjóður www.gildi.is
Á vorfundi Landsnets 5. apríl sl. sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, að tillögur verk-
efnisstjórnar rammaáætlunar væru
„ágætt dæmi um [þennan] skort á
skilningi á samspili orkumála og
loftslagsmála“!?
Ráðherra gagnrýndi tillögu verk-
efnisstjórnarinnar einkum á þeim
forsendum að hún tæki ekki nægilegt
tillit til samfélagslegra og efnahags-
legra sjónarmiða (les. orkugeirans).
Þetta tengdi hún loftslagsmálum og
þeirri meintu skyldu okkar að virkja
sem allra mest til að draga megi úr
losun CO2 á heimsvísu. Rót gagn-
rýninnar virðist vera óánægja með
þá tillögu að þrjú stór vatnasvið á
miðhálendinu, Héraðsvötn, Skjálf-
andafljót og Skaftá, auk efstu draga
Þjórsár fari í verndarflokk.
Í orkunýtingarflokki rammaáætl-
unar verða alls um 1.400 MW, gangi
tillögur verkefnisstjórnar eftir. Það
afl samsvarar rúmlega tveimur Kára-
hnjúkavirkjunum sem gætu fræði-
lega knúið tvö ný risaálver á stærð
við álver ALCOA í Reyðarfirði (ekki
að ég mæli með því). En eru ekki
Norðlendingar afskiptir? Nei, síður
en svo. Á Norðurlandi eru, að Þeista-
reykjavirkjun meðtalinni, um 570
MW til ráðstöfunar þótt vissulega sé
mikil umhverfisáhætta fylgjandi t.d.
Bjarnarflagsvirkjun. Ný kerfisáætlun
Landsnets á auk þess að tryggja flutn-
ing raforku um allt land.
Samkvæmt tölum Ragnheiðar
sparar (hennar orðalag) 100 MW
virkjun árlega um 400.000 tonn af
CO2 sem jafngildir bindingu 200
milljóna trjáa eða 950 ferkílómetra
af skógi. Megavöttin 1.400 í orku-
nýtingarpottinum „spara” því sem
nemur bindingu 2,8 milljarða trjáa
eða 13.300 ferkílómetra af skógi.
Verður ekki að segja að það sé býsna
rausnarlegt framlag til loftslagsmála
í heiminum?
Fyrir 500 MW af orku má líka
rafvæða samgöngur, sjávarútveg
og landbúnað og þar með draga úr
árlegri losun frá þessum greinum
sem nemur vel á aðra milljón tonna
af CO2. Þá væru samt eftir allt að 900
MW fyrir Norðlendinga og aðra til
iðnaðaruppbyggingar. Orkunýting-
arflokkur inniheldur því yfrið nóg
af virkjanahugmyndum fyrir orku-
geirann að moða úr á næstu árum,
jafnvel þótt þeim sem mest áhætta
fylgir verði sleppt og miðhálendinu
hlíft.
Söngurinn um skyldu okkar til að
virkja sem mest er gamalkunnur. Við
höfum líka skyldur til að vernda ein-
staka náttúru sem á sér fáa ef nokkra
líka. Engar rannsóknir liggja fyrir um
að það sé hagfelldara fyrir samfélag
og efnahag þjóðarinnar og heimsins
að virkja vatnasvið á miðhálendinu
en að friða þau í þjóðgarði. Þess
vegna er söngur ráðherranns falskur.
Falskur söngur iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Fátt er um meira talað en felu-leiki með misheiðarlega fengið fjármagn sem, þegar vel er falið,
kemst fyrir í örbankahólfum á eyjum
í Karíbahafi. Þótt enginn viti gjörla
um heildarupphæðir, þá eru flestir
þeir sem einhverja innsýn hafa í felu-
leikinn þess fullvissir, að um stjarn-
fræðilegar upphæðir sé að ræða. Þetta
er ljótur leikur, því þótt einhverjir séu
eingöngu að koma í veg fyrir að þeir
sem stóreignamenn verði tilgreindir,
þá er megintilgangur aflandsfjár-
eigna sá að komast hjá skattlagningu
peninganna í heimalandi sínu. Ein
ástæða þess að flestar vestrænar
þjóðir eiga erfitt með að láta rekstur
ríkissjóða sinna ná endum saman, er
þessi skattaflótti. Þeir ríku og valda-
miklu skjóta sér undan þátttöku í
samfélagslegum útgjöldum.
Aflandshólfin á bresku
yfirráðasvæði
Minna hefur verið um það rætt hver
sé ástæða þess að skattaskjólin eru
að langmestu leyti á litlum eyjum
eða landkrikum undir stjórn Breta.
Talið er að yfir 80% af veltu allra
aflandssjóða séu skráð á stöðum sem
heyra undir Bretadrottningu. Þar eru
ekki bara Tortóla sem er á Bresku
Jómfrúaeyjunum, heldur einnig
Bahamaeyjar, British Anguilla, svo
og eyjar á Ermasundi s.s. Jersey og
Guernsey að viðbættri Isle of Man
vestanvert við Bretland. Þegar Bretar
voru í vandræðum með pundið sitt
og City of London átti í vök að verjast
buðu bresk verndar- og sjálfstjórnar-
svæði upp á að geyma fjármuni ríka
fólksins í fullkominni leynd. En af
hverju völdu þeir ofurríku breskar
eyjar eða verndarsvæði til að fela
peningana sína? Jú, það var bæði vís-
vitandi stefna breskra stjórnvalda
til að styrkja London sem miðstöð
fjármála í heiminum, en einnig sú
staðreynd að breskt réttarkerfi er
gamalt og talið eitt það traustasta
í heiminum. Pólitískar sveiflur eru
ekki taldar hnika því mikið til. Loka-
dómstóll fyrir Bresku Jómfrúaeyjar er
sá sami og fyrir England, þ.e. Hæsti-
réttur í London. Þeir sem ekki vildu
að almenningur vissi hve ríkir þeir
voru vildu geta treyst réttarkerfinu,
sem í þessu tilviki dæmir eftir bresk-
um lögum.
Hirtu það sem þú getur …
Það myndaðist heil iðngrein fyrir-
tækja og banka (s.s. Landsbankans)
sem sérhæfðu sig í eignafeluleik
og skattaundanskoti í kringum
aflands eyjarnar. Það einkennilega
við þetta er það, að peningarnir sem
skráðir voru á aflandseyjar, skiluðu
ekkert betri ávöxtun þar en t.d. í
banka í London. Munurinn lá í lægri
sköttum. Heimaland endanlegra eig-
enda, hverjir sem þeir voru, borgaði
þannig mismuninn. Ávöxtunin var
sú sama vegna þess að peningarnir
voru geymdir og ávaxtaðir í bönkum
í London. Þessi aflandsfélög voru í
reynd útibú frá City of London. Frá
þessum aflandsfélögum streymdu
óhemju auðæfi inn í bankana í Lond-
on, sem gerðu bresku höfuðborgina
að helsta fjármálaveldi heimsins.
Staða Lundúna í heimsfjármálum og
Bretlands sem valdaríkis kemur að
miklu leyti til vegna þessa ofur inn-
streymis illa fengins fjár frá þessum
„útibúum“ bresku bankanna á af-
landseyjum. Það er því misskilningur,
svo ekki sé meira sagt, þegar núver-
andi, eða var það fyrrverandi, forsæt-
isráðherra fullyrti, að peningar SDG,
sem að eigin frásögn voru gefnir upp,
hafi unnið fyrir íslenska hagkerfið.
Þeir unnu fyrir það breska.
… og skilaðu því ekki aftur
Margar tilraunir, bæði á þjóðríkja
sem og alþjóða vettvangi, hafa verið
reyndar til að stemma stigu við þess-
ari svikamyllu. OECD hefur markvisst
reynt að koma á samræmdum reglum
meðlimaríkja sinna en árangur hefur
látið á sér standa. Bretar hafa skiljan-
lega dregið lappirnar. Innan Evrópu-
sambandsins hafa einnig verið gerð
áhlaup á aflandsvæðingu evrópsks
fjármálalífs án þess að marktækur
árangur hafi náðst. Bæði er að sum
lönd innan ESB, s.s. Lúxemborg,
tryggðu sér snemma undanþágur
frá meginreglum, sem opnuðu lönd-
unum leiðir til að geta boðið erlendu
fjármagni þægileg kjör, en hitt líka
að þegar á reyndi komu Bretar í veg
fyrir að bandalagið afgreiddi nokkrar
bindandi reglur, sem lagt hefði getað
hömlur á starfsemi aflandsfélaga.
Það er kaldhæðni sögunnar að það
var núverandi forsætisráðherra Bret-
lands, David Cameron, sem kom í veg
fyrir það, síðast þegar tilraun var gerð
á vegum ESB. Hefði sú vitneskja um
hagnað hans og eiginkonu hans af
viðskiptum með aflandseignir þeirra
legið fyrir á þeim tíma, er ólíklegt
að Bretar hefðu komist upp með að
stöðva málið. Fullyrt hefur verið, að
sú niðurstaða sem fékkst í uppgjöri
föllnu íslensku bankanna, þar sem
samið var um málið í stað þess að gera
bankana gjaldþrota, hafi minnkað
tap kröfuhafa um einhver hundruð
milljarða króna. Bæði David Came-
ron og Sigmundur Davíð voru báðum
megin við borðið.
Peningar binda
Það er því misskilningur, svo
ekki sé meira sagt, þegar nú
verandi, eða var það fyrrver
andi, forsætisráðherra full
yrti, að peningar SDG, sem
að eigin frásögn voru gefnir
upp, hafi unnið fyrir íslenska
hagkerfið. Þeir unnu fyrir
það breska.
Snorri
Baldursson
formaður
Landverndar
Þröstur Ólafsson
hagfræðingur
Engar rannsóknir liggja fyrir
um að það sé hagfelldara
fyrir samfélag og efnahag
þjóðarinnar og heimsins
að virkja vatnasvið á mið
hálendinu en að friða þau í
þjóðgarði.
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 1 3 . A p R í L 2 0 1 6
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-6
6
D
0
1
9
0
B
-6
5
9
4
1
9
0
B
-6
4
5
8
1
9
0
B
-6
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K