Fréttablaðið - 13.04.2016, Blaðsíða 23
fólk
kynningarblað 1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r
„Kvikmyndanördar hafa sérstak
lega mikinn áhuga á því að sjá nýja
hlið á sínum uppáhaldskvikmynd
um. Pæling mín þegar við byrjuð
um með Svarta sunnudaga var því
að láta íslenska listamenn sjá um
plakötin en það hefur til dæmis
verið siður í Póllandi,“ segir Hug
leikur Dagsson, einn af stofnend
um költmyndaklúbbsins Svartra
sunnudaga.
„Ég hafði því samband við lista
menn fyrir hverja sýningu og
spurði hvort þeir væru í stuði til
að gera plakat. Ég þurfti hálft í
hvoru að brjóta eigin prinsipp því
ég gat aldrei borgað neitt fyrir,“
segir Hugleikur glettinn. Lang
flestir voru þó til, enda verkefnið
skemmtilegt.
„Fyrirvarinn var allt frá nokkr
um mánuðum og niður í viku,“
segir Hugleikur sem bendir á að
það sé flóknara en margir haldi að
fá réttindi til að sýna kvikmynd,
sér í lagi gleymdar költmynd
ir. „Stundum er rétturinn týndur,
í eigu einhverra sérvitringa eða í
höndum ættingja. Það er höfuð
verkur stelpnanna í Bíói Paradís að
finna út úr því, minn höfuðverkur
er að finna nýjan listamann fyrir
hvert plakat,“ segir Hugleikur og
það hefur tekist í öll skipti utan
tveggja.
Hugleikur reynir að fá nýjan
listamann í hvert sinn. „Stundum
hef ég þó leitað til sömu listamanna
þegar ég er í miklu tímahraki,“
segir Hugleikur. Hann er glaður
þegar listamenn hafa samband við
hann að fyrra bragði.
Mörg plaköt eru Hugleiki eftir
minnileg. „Ég bað Snorra Ás
mundsson, gjörningalistamann og
myndlistarmann, að hanna plak
at fyrir The Night of the Hunter.
Hann sendi mér það í tölvupósti og
fyrsta hálftímann fannst mér þetta
hræðilegt plakat, en allt í einu fatt
aði ég að þetta væri besta plakat í
heimi,“ segir Hugleikur en Snorri
hafði tekið plakat fyrir fyrstu Star
Wars myndina og skipt út andlit
um aðalleikaranna. „Þetta var eitt
stórt fokkjú, en samt svo fallegt.“
Annað eftirminnilegt plakat er
það sem Lóa Hjálmtýsdóttir gerði
fyrir Veggfóður. „Í myndinni er
frasinn „passaðu þig á krókódíla
manninum“ frægi. Lóa teiknaði því
krókódíl með hatt og skjalatösku.“
Hugleikur hefur sjálfur fest kaup
á nokkrum plakötum. „Til dæmis
því sem Halldór Baldursson gerði
fyrir Mad Max 2 og því sem Evana
Kisa gerði fyrir Akira.“
Sýningin á plakötunum verður
opnuð í Bíói Paradís á laugardaginn
klukkan 17. Hægt verður að festa
kaup á plakötunum sem kosta 10
þúsund krónur. Sýningin stendur
fram á sumar.
plaköt eftir
íslenska listamenn
Svartir sunnudagar hafa staðið fyrir költmyndasýningum í Bíói
Paradís í fjóra vetur. Íslenskir listamenn hafa hannað kvikmyndaplaköt
fyrir sýningarnar. Sýning á plakötunum verður opnuð á laugardag.
Snorri Ásmundsson. Halldór Baldursson.
Hugleikur við hluta plakatanna sem verða til sýnis á laugardaginn. Mynd/Ernir
Ómar Hauksson.Lóa Hjálmtýsdóttir.
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
Facebook
Vertu vinur á
FacebookLaugavegi 63 • S: 551 4422
VORFRAKKAR
Skoðið laxdal.is
Vertu vinur
á Facebook
Nánari upplýsingar á
Texasborgarar.is
og Facebook
BLT-SAMLOKA MEÐ FRÖNSKUM
1.490 KR.
Alsæla með spældu eggi
og bernaise fyrir klink
af BLT-samloku með
frönskum
gegn framvísun
þessa miða.
Aðeins 1.490 kr.
fyrir tvo.
Klipptu miðann út
og taktu með þér.
Gildir til 25. maí
2016.
2
FYRIR
1
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-5
8
0
0
1
9
0
B
-5
6
C
4
1
9
0
B
-5
5
8
8
1
9
0
B
-5
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K