Fréttablaðið - 13.04.2016, Síða 24
Fólk er kynningarblað sem
býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í
blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Umsjónarmenn
efnis: Sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351, Vera einarsdóttir,
vera@365.is, s. 512 5357 | Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 2447,
Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434, Jóhann Waage,
johannwaage@365.is, s. 512 5439, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hljómsveitirnar Ensími og
200.000 naglbítar halda sameigin
lega tónleika í Reykjavík og á
Akur eyri á morgun fimmtudag og
á föstudag. Báðar sveitirnar hafa
starfað með hléum í tæplega 20 ár
og sett mark sitt á íslenska rokk
senu með eftirminnilegum hætti.
Það eru mörg ár síðan þær spil
uðu saman á tónleikum síðast, að
sögn þeirra Franz Gunnarssonar,
gítarleikara og söngvara Ensími,
og Vilhelms Antons Jónssonar,
söngvara og gítarleikara 200.000
naglbíta. „Við höfum þekkst lengi
enda voru þessar hljómsveitir
stofnaðar á svipuðum tíma. Frum
burður beggja sveita kom líka út
árið 1998; við gáfum út Neóndýrin
og Ensími gaf út Kafbáta músík,“
segir Vilhelm.
Hugmyndin að spila saman á
tónleikum er ansi gömul að sögn
Franz en þar sem þetta er mjög
upptekinn hópur tók nokkurn tíma
að finna heppilegar dagsetningar.
„Mig minnir að við höfum spilað
síðast saman á skólaballi fyrir
vestan á síðustu öld. Í minning
unni var það mikið stuð og fjörið
verður væntanlega engu minna á
þessum tvennum tónleikum.“
nóg aF lögum til
Tilhlökkunin er mikil í hópnum
að sögn Franz. „Það er frábært
að geta loksins spilað saman enda
erum við allir vinir sem gerir
þetta sérstaklega skemmtilegt. Ég
á því von á frábærum tónleikum.
Við ætlum að hefja þá kl. 22 til að
gefa fólki sem getur að öllu jöfnu
ekki hangið fram eftir tækifæri
á að skella sér á góða tónleika
stund.“
Úr nægu efni er að velja eftir
nær tveggja áratuga starf. Franz
segir þá félaga í Ensími flytja
lög af öllum fimm plötum hljóm
sveitarinnar og þekktustu slagar
arnir fá að sjálfsögðu sitt pláss.
Vilhelm tekur í svipaðan streng
og segir þá félaga ætla að spila
þekktar Naglbítaperlur. „Þetta
verða lög af öllum plötum okkar
og að sjálfsögðu munum við spila
þekktustu lög okkar auk þeirra
laga sem við sjálfir höldum mest
upp á. En við ætlum líka að spila
nýtt stöff, jafnvel þrjú eða fjög
ur ný lög. Það er ótrúlega gaman
að spila lög sem fólk þekkir en
það eru allt aðrar tilfinningar í
gangi þegar við spilum ný lög. Þá
eru tónleikagestir að heyra þau í
fyrsta skiptið og móta sér skoðun
á staðnum.“
alltaF Verið rólegir
Ensími gaf út plötuna Herðubreið
fyrir rúmlega ári sem fékk góða
dóma. Að sögn Franz eiga þeir
fullt af óútgefnu efni og alltaf eru
að fæðast nýjar lagahugmyndir.
Því megi alveg búast við frekari
útgáfu í nánustu framtíð.
Öllu lengra er síðan Naglbít
arnir gáfu út nýtt efni en síðasta
breiðskífa sveitarinnar kom út
árið 2003 sem er allt of langur
tími að sögn Vilhelms. „Við höfum
alltaf farið rólega í allt svona og
vandað okkur mjög mikið. Þessar
plötur verða allar til eftir 100 ár
svo það er eins gott að vera ekki
að elta einhverjar tískur og gera
eitthvað sem manni líður ekki vel
með. Við hugsum þetta þannig að
við viljum geta tekið plöturnar
okkar fram eftir 50 ár, sett á fón
inn og verið stoltir af þeim.“
Fyrri tónleikarnir verða á
morgun fimmtudag á Gauknum
í Reykjavík. Seinni tónleikarnir
verða á Græna hattinum á Akur
eyri á föstudag. Báðir tónleikarn
ir hefjast kl. 22. Miðasalan á fyrri
tónleikana fer fram á tix.is en á
midi.is vegna seinni tónleikana.
starri@365.is
Nánari upplýsingar um hljómsveit-
irnar má finna á Facebook og rifja
má upp gömlu góðu lögin á Spotify
en þar má finna allar plötur beggja
sveita án endurgjalds.
alltaF Vandað
okkur mjög mikið
Tvennir sameiginlegir rokktónleikar Ensími og 200.000 naglbíta verða
haldnir í Reykjavík og Akureyri á næstu dögum. Mikil spenna er í
herbúðum beggja sveita enda langt síðan þær hafa spilað saman.
Ensími og 200.000 naglbítar spila gamla smelli í bland við nýtt efni í Reykjavík og
á Akureyri. SAMSETT MYND/STEFÁN KARLSSON OG BIRTA RÁN BJÖRGVINSDÓTTIR
„Mig minnir að við höfum spilað síðast saman á skólaballi fyrir vestan á síðustu öld. Í minningunni var það mikið stuð,“ segir
Franz Gunnarsson úr Ensími (t.h.). Vilhelm Anton Jónsson úr 200.000 naglbítum er við hlið hans. MYND/ANTON BRINK
1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r2 F ó l K ∙ K y n n I n G a r b l a Ð ∙ V I Ð b U r Ð I r
ENDALAUST
NET
1.000 KR.*
Endalaust
Settu þig í samband og
fáðu Endalaust 365
1817 365.is
* Fylgir með völdum tilboðspökkum. Undanskilið er
aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is
ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaus og áhyggjulaus
Internetáskrift.
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
B
-5
3
1
0
1
9
0
B
-5
1
D
4
1
9
0
B
-5
0
9
8
1
9
0
B
-4
F
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K