Fréttablaðið - 13.04.2016, Síða 30
Andrés Jónsson
almannatengill
Lars Christensen
alþjóðahagfræðingur
Mjög mikilvægt í
krísum er að skapa
traust með því að grípa
strax til aðgerða sem ganga
helst lengra en það sem
lögfræðingar þínir ráð-
leggja.
Rakel Sölvadóttir-
framkvæmdastjóri
Skemu
Hin hliðin
Vilja hætta brúnkolagreftri
Hins vegar er
meginspurningin
ekki um hvað gerist í ís-
lensku efnahagslífi á næstu
2-3 ársfjórðungum heldur
hvort þessi stjórnmála-
kreppa setji af stað meiri-
háttar breytingar á hinu
pólitíska landslagi á Íslandi
sem gætu hugsanlega breytt
efnahagslegu og pólitísku
valdakerfi landsins.
Hugveitan Agora Energiewende leggur til að brúnkolanámugreftri í Nordrhein-Westfalen, stærsta ríki Þýskalands, verði hætt fyrir árið 2039. Hug-
veitan rannsakar orkunotkun Þjóðverja og hvernig þeim gengur að breyta orkunotkun sinni úr kjarnorku í endurnýjanlega orku. FRéttAblAðið/EPA
Bandaríska hafnaboltahetjan Yogi
Berra sagði, eins og frægt varð: „Það
er eins og déjà vu enn og aftur,“ –
og það var nákvæmlega þannig
sem mér leið vegna hinna póli-
tísku atburða á Íslandi síðustu tvær
vikur. Aftur og aftur hafa nánast
súrrealískar yfirlýsingar frá leiðandi
stjórnmálamönnum hneykslað
Íslendinga og umheiminn og skilið
þá tilfinningu eftir að Íslandi sé
stjórnað af óhæfum fíflum. Að þessu
leyti hefur þetta verið býsna líkt
Hagfræði stjórnmálakreppu
þeim hræðilegu vikum 2008 þegar
allt íslenska bankakerfið hrundi.
En það er einn mikilvægur
munur – að þessu sinni er þetta
ekki fyrst og fremst saga um hag-
fræði og markaði, heldur um djúp-
stæða pólitíska kreppu sem sýnir
djúpstæð, alvarleg vandamál í
íslenskum stjórnmálastofnunum
og -menningu.
Að því sögðu er mögulegt að
þessi kreppa – að minnsta kosti
þegar til skemmri tíma er litið –
hafi neikvæð áhrif á íslenska hag-
kerfið. Í heildina getum við hugsað
okkur að þetta pólitíska áfall skaði
hagkerfið á tvenns konar hátt til
skamms tíma.
Í fyrsta lagi getur þetta verið
skellur fyrir eftirspurnarhlið hag-
kerfisins – ef þessi kreppa leiðir
til þess að neytendur og fjárfestar
verði varkárari getur það fyrst um
sinn valdið minnkandi heildar-
eftirspurn í hagkerfinu. Hins vegar
þarf að hafa í huga að ef hægir á
eftirspurn getur Seðlabankinn
vegið upp á móti því með því að
lækka vexti eða fresta fyrirhug-
uðum vaxtahækkunum og þess
vegna myndi ég ekki hafa of miklar
áhyggjur af efnahagsáhrifum eftir-
spurnarhliðarinnar.
Í öðru lagi, og þetta skiptir meira
máli að mínu mati, er það sem
bandaríski hagfræðingurinn Robert
Higgs hefur kallað „stjórnaróvissu“.
Stjórnaróvissa vísar til almenns
trausts til lagalegs og stofnana-
legs umhverfis í hagkerfinu. Ef það
er mikil óvissa um þessa innviði
getur það varanlega dregið úr fjár-
festingum og þar af leiðandi fram-
leiðniaukningu í hagkerfinu.
Þar sem útlit er fyrir miklar
breytingar á hinu pólitíska lands-
lagi á Íslandi er eðlilegt að búast
við aukinni „stjórnaróvissu“. Að
því sögðu tel ég að til skemmri tíma
litið hafi það ekki meiriháttar áhrif
á hagkerfið og þess vegna hallast
ég því að segja að þjóðhagfræðileg
kreppa til skamms tíma verði mjög
takmörkuð.
Hins vegar er meginspurningin
ekki um hvað gerist í íslensku efna-
hagslífi á næstu 2-3 ársfjórðungum
heldur hvort þessi stjórnmála-
kreppa setji af stað meiriháttar
breytingar á hinu pólitíska lands-
lagi á Íslandi sem gætu hugsanlega
breytt efnahagslegu og pólitísku
valdakerfi landsins. Persónulega tel
ég þetta mikilvægustu spurninguna
þegar litið er til næsta áratugarins
eða svo.
Í bili hef ég fleiri spurningar en
svör, en ég vona að íslenskt sam-
félag komi sterkara út úr þessari
kreppu.
Börn í dag eru talin vera með gott
tölvulæsi, þau geta spilað leiki, vafr-
að um á netinu og vita hvernig allt
virkar en fá geta búið til sína eigin
leiki eða eigin forrit. Það er eins og
þau geti lesið en ekki skrifað. Eitt
Forritun – áhrif á hugræna getu og færni barna
af því sem börn gera best er að læra
tungumál og því ættu þau að vera
mjög móttækileg og fljót að tileinka
sér forritunarmál þar sem forritun
er í raun bara samskipti milli manns
og tölvu á því tungumáli sem báðir
skilja. Seymor Papert talaði um að
tölvur væru notaðar til að forrita
börn með þeirri notkun sem tíðk-
ast almennt í dag. Papert var einn
af stofnendum forritunarmálsins
Logo og einn af frumkvöðlum þess
að nota forritun til að efla vitsmuni
barna. Hann byggði hugmyndir
sínar á kenningum Piagets og taldi
að „Piagetian-lærdómur“, að læra án
þess að vera kennt, væri vænlegastur
til árangurs. En hvað hafa rannsóknir
sýnt fram á í þessum efnum? Hvaða
áhrif getur forritunarkennsla haft á
hugrænan þroska og getu barna?
Rökhugsun og verkefnaúrlausn
Það sem gerir forritunarkennslu
áhugaverða er að hún krefur nem-
endur um að finna lausn á vanda-
málum og setja hugmyndir sínar
fram á skipulagðan hátt til þess að
miðla þeim rétt til tölvunnar. Sýnt
hefur verið fram á að með þessum
hætti þjálfar forritun nemendur í
rökhugsun sem hægt er að hagnýta
síðar til lausnar á vandamálum sem
koma upp í daglegu lífi. Einnig hafa
rannsóknir sýnt fram á að forritun
eflir hugræna færni til muna jafn-
framt því að félagsskilningur eykst
sem leiðir til þess að nemendur eru
líklegri til að vinna í sameiginlegum
lausnum á vandamála.
Að þekkja eigin hugsun
og setja sig í spor annarra
Sýnt hefur verið fram á að með því
að forrita tölvuna til að gera það sem
börnin vilja þá þurfa þau að setja sig
í sporin sjálf og hugsa út í hvernig
þau myndu sjálf leysa verkefnið og
þá endurspegla sína eigin hugsun.
Sköpunargáfa og
tilfinningaviðbrögð
Rannsóknir hafa sýnt fram á að for-
ritunarkennsla hefur jákvæð áhrif
á sköpunargáfu og tilfinningavið-
brögð hjá börnum með námsörðug-
leika ásamt því að hafa verið tengd
við myndun þekkingar á afmörkuð-
um sviðum sem og aukið hugræna
og félagslega færni.
Krísustjórnun hefur verið á allra
vörum síðustu daga vegna þeirra
atburða sem orðið hafa í stjórn-
málunum og bað Fréttablaðið mig
því um að setja örfá orð á blað um
hvað beri helst að hafa í huga þegar
krísur verða.
Algeng fyrstu viðbrögð fólks sem
lendir í miðpunkti orðsporskrísu er
afneitun. Afneitunin getur oft verið
í formi aðgerðaleysis. Fólk forðast
að horfast í augu við veruleikann
og vonar að vandinn hverfi með því
að hugsa ekki um hann. Með þessu
tapast dýrmætur tími sem hefði
mátt nýta til að lágmarka skaðann.
Einnig er mjög algengt að fólk
bregðist við með því að skjóta
sendiboðann. Þá eru fjölmiðlar eða
aðrir málsaðilar sagðir stjórnast af
annarlegum hvötum. Leitað er stað-
festingar á þessu viðhorfi hjá skyld-
mennum og samstarfsmönnum sem
eiga gjarnan sjálfir erfitt með að sjá
hlutina skýrt.
Þá er yfirleitt nánast ómögu-
legt fyrir þann sem lendir í krísu
að horfa á málin frá annarri hlið
en sínum eigin þrönga sjónarhóli.
Hann veit að hann á að biðjast
velvirðingar en eigin reiði verður
honum fjötur um fót. Hálfkveðnar
vísur og undanbrögð hafa síðan
snúið margri afsökunarbeiðninni
upp í andhverfu sína.
Mjög mikilvægt í krísum er að
skapa traust með því að grípa strax
til aðgerða sem ganga helst lengra
en það sem lögfræðingar þínir ráð-
leggja. Ná þannig stjórn á atburða-
rásinni og hindra að fram komi
sífellt nýir angar sem krefjast nýrra
viðbragða.
Ein algengasta réttlætingin fyrir
aðgerðaleysi eða gegn því að gangast
við ábyrgð er að fólk verði búið að
gleyma málinu von bráðar. Þetta er
alrangt. Það getur verið að almenn-
ingur gleymi smáatriðum máls en
orðsporshnekkirinn er samt áfram
til staðar. Gott orðspor er inneign
sem hægt er að nýta þegar syrtir í
álinn. Slæmt orðspor þrengir á móti
rými okkar til æðis og athafna.
Margir háttsettir hafa þurft að
taka poka sinn vegna mála sem
hefði verið hægt að laga með
réttum viðbrögðum. Við gleymum
þessu fólki kannski, en eins og allir
þeir sem staðið hafa í miðjum fjöl-
miðlastormi geta vitnað um, þá lifir
sú minning með þeim eins og ör á
sálinni ævilangt.
Algengustu
mistökin í
krísum
Almanna-
tengsl
1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r10 MArkAðurinn
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-7
F
8
0
1
9
0
B
-7
E
4
4
1
9
0
B
-7
D
0
8
1
9
0
B
-7
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K