Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Síða 12
12 Fréttir Helgarblað 3.–6. október 2014 Óbreyttir í tvö ár Peningastefnunefnd Seðlabank­ ans ákvað að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í vikunni. Hafa stýrivextir nú verið óbreytt­ ir síðan í nóvember 2012. Grein­ ing Íslandsbanka fjallar um ákvörðunina á vef sínum og segir að hún hafi ekki komið á óvart. „Í yfirlýsingu nefndarinnar, sem er óvenju stutt að þessu sinni, er tvennt að vegast á í rökunum fyrir ákvörðuninni. Annars vegar er verðbólgan undir markmiði bankans, horfur á minni verð­ bólgu á næstunni en bankinn hafði spáð í ágúst síðastliðnum, verðbólguvæntingar hafa þok­ ast nær markmiði bankans og raunstýrivextir hækkað. Hins vegar hefur nefndin áhyggjur af kröftugum vexti innlendrar eftir­ spurnar á komandi misserum og vaxandi spennu á vinnumarkaði en hvoru tveggja gæti aukið verðbólguþrýsting á næstunni,“ segir í umfjöllun Greiningar Ís­ landsbanka. Lögreglumenn í svefnherberginu n Þórarinn kærði lögregluna til ríkissaksóknara É g er bara gáttaður á því að það sé svona lítil virðing borin fyr­ ir friðhelgi heimilisins, það að lögreglan geti leyft sér nán­ ast hvað sem er,“ segir Þórar­ inn Einarsson í samtali við DV. Hann vaknaði við vondan draum þann 13. júní síðastliðinn eftir síðdegisblund á heimili sínu, en þá stóðu tveir lög­ reglumenn yfir honum og spurðu um sambýliskonu hans. Þórarinn segir að lögreglumennirnir hafi hleypt sér sjálfir inn án þess að hringja dyra­ bjöllu eða gera vart við sig með öðr­ um hætti. Hann segir þetta vera full­ komið brot á friðhelgi einkalífsins og kærði hann framgöngu lögreglunn­ ar til ríkissaksóknara tveimur vik­ um eftir atvikið. Þeirri kæru var vís­ að frá þar sem ríkissaksóknari taldi ástæðu lögreglu fyrir hafa farið inni í íbúðina eðlilega. Að sögn lögreglu­ manna töldu þeir að „eitthvað mik­ ið hafi gengið á“ meðal annars vegna þess að rúða sem sneri að bakgarði var sprungin. Ástæðan fyrir því að lögreglan vildi ræða við sambýlis­ konu Þórarins var vegna minnihátt­ ar sakamáls. Óðu inn á skónum „Þetta er svo gróft, að æða bara inn á skónum og um allt húsið, og vekja mig svo loksins inni í svefn­ herbergi. Ég áttaði mig fyrst ekki á að þetta væru lögreglumenn,“ segir Þórarinn. Hann spurði annan lögreglumanninn hvað hann væri að gera inni hjá sér og kom þá í ljós starf þeirra og erindi. Honum var létt við að vita að ekkert alvarlegt hefði gerst en spurði þó hvers vegna þeir hefðu ekki hringt dyrabjöllunni. Þórar­ inn segir að lögreglumennirnir hafi þá sagt honum að þeir hefðu hringt dyrabjöllunni en farið inn þar sem dyrnar hafi verið opnar. Komu inn um svalahurð Eftir að lögreglan var farin ráðfærði Þórarinn sig við bæði ungan son sinn, sem var vakandi, og leigjanda sinn sem býr á efri hæð hússins. Að sögn Þórarins kom þá í ljós að enginn hafði heyrt í dyrabjöllu, þó að hún sé hávær, og að lögreglan hafi komið inn um svalahurð á efri hæð sem er aðgengileg sé farið upp á stigapall í bakgarði. Þórarinn segir að vissulega hafi svalahurðin verið opin en það hafi ekki þýtt að lögreglunni væri boðið inn. „Ég hefði átt að skamma þá miklu meira, ég var bara nývakn­ aður,“ segir Þórarinn. Vildu ræða við sambýliskonu Þórarins Í svari ríkissaksóknara til Þórarins kemur fram að farið hafi verið yfir kæru hans og aflað gagna hjá lög­ reglu. Þar kemur fram að umtals­ verður munur sé á frásögn Þórarins og skráningu og gögnum í málaskrá lögreglu. Samkvæmt málaskrá var heimsókn þeirra vegna rannsóknar á minniháttar broti og lá sambýlis­ kona Þórarins undir grun vegna þess máls. Þórarinn segir að það mál hafi ekki farið neitt lengra. „Þegar kærðu [lögreglan] koma að húsinu hafi ver­ ið brotnar rúður og óreiða fyrir utan húsið. Hurð hafi staðið opin og töldu kærðu að eitthvað mikið hafi gengið á, eins og þeir orða það,“ segir í bréfi ríkissaksóknarar til Þórarins. „Eftiráskýring“ „Þetta var augljóslega eftiráskýring,“ segir Þórarinn um skýringu lögreglu á hvers vegna hún hafi farið inn. „Það er verið að búa eitthvað til til að rétt­ læta það sem þeir gerðu. Þeir minnt­ ust ekkert á það við mig að þeir hefðu áhyggjur af því að eitthvað hefði kom­ ið fyrir. Þar að auki þurfti hún að fara inn í garðinn til þess að sjá sprunginn glugga og óreiðu í garðinum. Lög­ reglan var þegar búin að rjúfa frið­ helgi þegar hún fór inn í garðinn,“ segir Þórarinn. Þess má geta að í svari ríkissaksóknara er talað um „brotn­ ar rúður“ en aðeins var um að ræða sprungu í einni rúðu. Grunaði eitthvað óeðlilegt Frásögn lögreglumanna var á þann veg að þeir hafi reynt að ná sam­ bandi við íbúa með því að banka á glugga hússins og kalla inn við dyrnar. Samkvæmt lögreglumönn­ um bar þetta ekki árangur. „Enginn hafi svarað en þau heyrt í sjónvarpi og til mannaferða að þau töldu á neðri hæð. Vegna þessara aðstæðna og þess að þau töldu sig heyra til mannaferða án þess að nokkur svaraði hafi kærðu talið sér skylt að kanna hvað væri á seyði,“ segir í bréfi ríkissaksóknara. Eftir þennan tíma­ punkt er frásögn lögreglu og Þórar­ ins á mestu á sömu leið. Niðurstaða ríkissaksóknara eru sú að rök lögreglu um að mikilvægt hafi verið að kanna hvort allt væri í lagi haldi vatni. „Hefðu kærðu snúið frá þrátt fyrir grunsemdir sínar um að eitthvað hefði komið upp á, hefði að sama skapi mátt meta þeim það til vanrækslu að hafa ekki kannað aðstæður betur,“ segir í bréfi ríkis­ saksóknara. n „Ég hefði átt að skamma þá miklu meira, ég var bara nývaknaður. Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Þórarinn og rúðan Þórarinn segir að rúðan sé eins og þegar lögreglan kom inn til hans. Í skýringu lögreglu er talað um „brotnar rúður“ Mynd SiGtryGGur Ari Búið að gera upp bú sjeiksins Einungis sex milljóna króna kröfur þrátt fyrir milljarða skuldir S áralitlum kröfum var lýst í þrotabú eignarhaldsfélag­ anna Q Iceland Finance og Q Iceland Holding sem notuð voru til að fjárfesta í fimm prósenta hlut í Kaupþingi í september 2008. Félögin voru í eigu katarska sjeiksins Al Thani. Dómsmál sem höfðað var gegn fyrrverandi stjórnendum Kaup­ þings út af viðskiptunum er yfirleitt kennt við nafn Al Thani. Skiptalokin eru auglýst í Lögbirtingablaðinu. Kröfurnar námu einungis rúm­ lega þremur milljónum króna á hvort félag en samanlagðar skuld­ ir þeirra hlupu á tugum milljarða króna. Félögin voru stofnuð gagn­ gert til að kaupa umrædd hlutabréf og ekki til neins annars. Skuldirnar inni í félögunum námu um 26 millj­ örðum króna í árslok 2011. Líklegt má telja að stærsti kröfu hafi eignarhaldsfélaganna, slitastjórn Kaupþings, hafi ekki séð tilgang í að lýsa kröfum í bú félag­ anna vegna þess að vitað var að þau voru eignalaus. Þar af leiðandi hafi ekki verið neitt að sækja til félaganna enda löngu ljóst að Kaupþing fengi ekki til baka þá fjármuni sem lánað­ ir voru út á pappírnum til að kaupa hlutabréfin í Kaupþingi. Þess vegna voru kröfurnar sem lýst var í félögin svo lágar. n ingi@dv.is Lágar kröfur Lágum kröfum var lýst í þrotabú eignarhaldsfélaganna sem komu að viðskipt- um Al-Thanis með hlutabréf í Kaupþingi í september 2008. Dómsmál var höfðað gegn stjórn- endum Kaupþings, meðal annars Hreiðari Má Sigurðssyni, út af viðskiptunum. Mynd SiGtryGGur Ari Ofbeldisbrotum fækkar Samkvæmt bráðabirgðatölum voru ofbeldisbrot á fyrstu níu mánuðum ársins samtals 72 í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Á sama tíma árið 2013 voru þau 100 talsins að því er fram kemur í frétt á vef lög­ reglunnar. Líkamsárásum, í skilningi 217. greinar hegningarlaga, fækkaði milli ára úr 73 málum í 57. Mál­ um er flokkast undir meiri háttar líkamsárás fækkaði úr fimmtán í fjögur og stórfelldum líkams­ árásum fækkaði úr tólf í tíu. „Eitt af áhersluverkefnum lögreglunn­ ar á Suðurnesjum í Ársáætlun 2014 er fækkun ofbeldisbrota, meðal annars með öflugu eftirliti, sýnileika og forvarnarstarfi,“ segir á vef lögreglunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.