Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Blaðsíða 42
Helgarblað 3.–6. október 201442 Lífsstíll
H
ann var ofboðslega ljúft
barn, laglegur drengur og
mikill mömmustrákur. Ætli
við höfum ekki verið svo-
lítið lík að mörgu leyti,“
segir Þórunn Brandsdóttir, móðir
Lofts Gunnarssonar sem hefði orðið
35 ára þann 11. september hefði
hann lifað.
Loftur átti við áfengisvandamál
að stríða og eyddi síðustu árunum
á götunni í miðborg Reykjavíkur.
Mamma hans, ásamt Ellen Ágústu
Björnsdóttur, Ölmu Rut Lindudóttur,
Hrafnhildi Jóhannesdóttur og Tinnu
Óðinsdóttur, stofnuðu minningar-
sjóð í nafni Lofts í von um að bæta
aðbúnað útigangsfólks.
Hræðilegt ástand
„Ég gerði mér enga grein fyrir hvern-
ig ástandið var. Eftir að hann dó fékk
ég að skoða gistiskýlið og mér blöskr-
aði útbúnaðurinn. Ég var margar vik-
ur að jafna mig. Rúmin voru ónýt og
rúmfötin svipuð. Ástandið var ein-
faldlega hræðilegt. Auðvitað var þetta
persónulegt fyrir mig en að mínu mati
eru mannréttindi þessa fólks ekki virt,“
segir Þórunn en bætir við að sjóðurinn
hafi nú þegar áorkað miklu til að bæta
aðstöðuna.
Heim um jól
Loftur var næstyngsta barn Þórunnar.
Hún viðurkennir að það hafi reynst
henni gífurlega erfitt að horfa á eftir
syninum, veikjast meira og meira af
alkóhólismanum. „Auðvitað sættir
maður sig aldrei við svona lagað en
hann kom þó alltaf heim um jól, páska
og á afmælinu sínu. Hann vissi að
hann gæti alltaf komið heim, allavega
þegar hann var í sæmilegu ástandi. En
svo hvarf hann í langan tíma á milli.
Þetta var bara drykkjan, samt hafði
hann farið í margar meðferðir.“
Skilur útigangsfólk
Hún segir viðhorf samfélagsins gagn-
vart útigangsfólki litað fordómum.
„Fólk þarf að skilja að þetta er ekki
aumingjaskapur heldur sjúkdóm-
ur sem heilbrigðiskerfið þarf að tak-
ast á við. Það þarf að sinna þessu fólki
svo miklu betur. Viðhorfið hefur þó
breyst mikið og fólk er orðið meðvit-
aðra, en það mætti batna enn meira.
Allt þetta fólk á fjölskyldu, kannski
fyrrverandi maka, börn og foreldra.
Það eru alltaf fleiri þarna á bak við en
einstaklingarnir sjálfir,“ segir Þórunn
sem er í góðu sambandi við marga af
þeim einstaklingum sem búa á göt-
unni. „Mér þykir alveg rosalega vænt
um þetta fólk. Ég skil það svo vel ein-
hvern veginn. Ég held að við eigum að
mæta þessu fólki eins og það er statt,
allavega til að byrja með.“
Ekkert feimnismál
Hún segist aldrei hafa skammast sín
fyrir það þá staðreynd að eiga barn
á götunni. „Þetta var aldrei neitt
feimnis mál hjá mér. Ég og við í fjöl-
skyldunni erum bara þannig gerð.
En vissulega fann maður fordóma.
Margir taka stóran sveig þegar þeir
mæta þessu fólki úti á götu svo þeir
þurfi ekki að eiga við það samskipti.
Þetta starfar af fordómum vegna
hræðslu og fáfræði.“
Góðgerðarpítsa Domino's
Minningarsjóðurinn hefur staðið fyr-
ir sölu á endurgerðum hermanna-
jakka Lofts á Karolina Fund sem geng-
ið hefur vonum framar. Eins hefur
sjóðurinn gefið út ljóðabókina Upp
strauminn harða. „Nonni í Dead
prentaði líka út boli fyrir okkur og svo
hafa þeir hjálpað okkur óhemjumikið
strákarnir á X-inu, Máni og Frosti. Það
hefur verið ómetanlegt,“ segir Þórunn
og bætir við að nú hafi Domino's bæst
í hópinn. „Domino's ætlar að styrkja
okkur með góðgerðarpítsum frá 6.
október til þess 10. Hrefna Rósa Sætr-
an bjó til uppskriftina og öll upphæðin
fer í sjóðinn. Þetta er álegg sem hefur
aldrei áður verið saman á pítsu,“ segir
hún en á góðgerðarpítsunni er svína-
kjöt, cheddar-ostur, rauðlaukur, lauk-
ur, beikonkurl og „BBQ-toppings“.
Ótímabær dauði
Hún segir viðbrögðin við minningar-
sjóðnum hafa komið henni á óvart.
„En aðallega hefur komið mér á óvart
hversu mikið af góðum vinum Loft-
ur átti. Hann var svo ljúfur en ég gerði
mér ekki grein fyrir hversu vinmargur
hann hafði verið.“
Loftur hefur orðið að einhvers
konar táknmynd útigangsmanna og
mamma hans er staðráðin í að láta
andlát hans skipta máli. „Hann var
bara 32 ára. Það er svo mikil sóun á lífi.
Dauði hans var algjörlega ótímabær.
Það er svo sorglegt að fólk sé ennþá að
deyja þarna úti. Hvert einasta manns-
líf sem bjargast skiptir máli og þegar
margir vinna saman er hægt að gera
stærri hluti.“ n
„Hann var svo ljúfur“
Þórunn Brandsdóttir, móðir Lofts Gunnarssonar, beitir sér fyrir betri aðbúnaði útigangsfólks
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Margir taka stór-
an sveig þegar þeir
mæta þessu fólki úti á
götu svo þeir þurfi ekki að
eiga við það samskipti.
Loftur Þórunn segir Loft hafa verið ljúfan
dreng og mikinn mömmustrák.
Mæðgin Loftur
og Þórunn á
góðri stundu.