Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Blaðsíða 26
Helgarblað 3.–6. október 2014 Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson • Fréttastjóri: Jóhann Hauksson Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir • Framkvæmdastjóri : Þorsteinn Guðnason • Sölu- og markaðsstjóri: Helgi Þorsteinsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéttaSkot 512 70 70FR jál S t, ó Háð Dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnÚmeR RitStjóRn áSkRiFtaRSími aUglýSingaR Sandkorn 26 Umræða Embla Guðrún Ágústsdóttir vill að fatlaðar konur verði kynverur ef þær vilja. – DV Ég þurfti stöðugt að sanna mig Sigmundur á bremsunni Slitastjórn Landsbankans gamla vill greiða úr digrum sjóðum sínum til kröfuhafa í beinhörð- um gjaldeyri. Þá þarf að leita til Seðlabankans um undan- þágur frá gjaldeyrishöftunum. Seðlabankastjóri ætlar að svara slitastjórninni inna þriggja vikna um slíka undanþágu. Í fjármála- lífinu hvísla menn að Seðlabank- inn og jafnvel Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, séu ekki fráhverfir því að gefa undanþágu svo fremi sem það ógni ekki stöðugleika. En þá er við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra að eiga sem hef- ur ímugust á erlendum kröfuhöf- um og vill helst af öllu skattleggja það sem eftir stendur af eignum þeirra í þrotabúum bankanna. Fjarstæðukennd hugmynd Nýjasta hagræðingarútspil Vigdís- ar Hauksdóttur er að selja Rás 2 til að ná inn fé í ríkissjóð. Nú ligg- ur fyrir að áhugi er á að selja hús- ið sem RÚV er í. Spurningar vakna hins vegar um hvað það er sem Vigdís vill selja og hver gæti haft áhuga á að kaupa það. Og hversu hátt verð gæti fengist fyrir Rás 2 á frjálsum markaði. Hugmyndin hljómar frekar fjarstæðukennd og lítt hugsuð hjá Vigdísi. Guðni og mysufernan Edda Sif Pálsdóttir, fjölmiðla- kona hjá 365, náði sérstaklega skemmtilegri ljósmynd í vikunni fyrir framan Mela- búðina. Þar sást Guðni Ágústsson, framsóknarfor- maður fyrrver- andi og einn af talsmönnum MS, beygja sig eftir fernu af mysu sem Árni Johnsen hafði misst á jörðina auk annarra matvæla. Stóð Árni klunnalega yfir Guðna meðan hann bisaði yfir mysufernunni. Fór myndin víða um netheima og vakti mikla skemmtun. Dýr var hann Davíð Fréttin um að Kaupþingslán Seðlabanka Íslands í hruninu 2008 muni kosta almenning 35 milljarða króna vakti mikla athygli í vikunni. Lánið var veitt á vakt Davíðs Odds- sonar í Seðlabanka Íslands og ber hann á endanum ábyrgð á lán- inu ásamt öðrum sem komu að ákvarðanatökunni. Fréttin svarar að hluta til stórri spurningu sem Ólafur Arnarson varpaði fram í undirtitli nýlegrar bókar sinnar um Davíð, Sólkonungnum. Þar spurði Ólafur hvort Davíð væri dýrasti maður Íslands- sögunnar. Hugsanlega er það nú ofsagt en samkvæmt nýjustu fréttum er ekki ofmælt að segja að dýr var hann. Niðurskorin afskiptasemi D V skýrði í vikunni frá því í sér- stakri úttekt Jóhanns Hauks- sonar og Jóns Bjarka Magn- ússonar blaðamanna DV hvernig ýmsar stofnanir sem fást við rannsóknir og eftirlit eigi veru- lega undir högg að sækja eftir tæp- lega eins og hálfs árs starf ríkisstjórn- ar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Kerfisbundið er nú grafið undan eft- irlitsstofnunum til að gera þær bit- lausar. Við höfum fylgst með atlögunni sem að minnsta kosti þrír ráðherrar og nokkrir árásarseggir á hægri væng stjórnmálanna að auki hafa gert að umboðsmanni Alþingis að undan- förnu fyrir framgöngu hans í leka- máli innanríkisráðuneytisins. Við sjáum stórfelldan og ótíma- bæran niðurskurð hjá embætti sér- staks saksóknara. Þar gera fjárlög- in nú ráð fyrir helmings niðurskurði milli ára sem dregur mjög úr getu embættisins til að ljúka stórum mál- um sem nú eru að komast á lokastig í rannsókn eða eru að lenda fyrir dómi eða á leið til dómstóla, eins og mark- aðsmisnotkunarmál Landsbankans í vikunni, Al-Thani málið og fleiri stór- mál tengd Kaupþingi. Sérstakur saksóknari mun sam- kvæmt nýja fjárlagafrumvarpinu að- eins hafa til ráðstöfunar um fjórð- unginn af því fé sem embættið hafði á árunum 2010–2011 til að rannsaka og sækja mál tengd fjármálaglæpum hrunáranna. Þannig getum við gengið á röð- ina: Embætti sérstaks saksóknara, Samkeppniseftirlitið, skattrann- sóknarstjóri, sem þarf líka auknar fjárheimildir til að afla gagna um fé í skattaskjólum, og svo embætti um- boðsmanns Alþingis. Öll hafa þau þurft að þola í meira eða minni mæli niðurskurð eða almennt neikvætt viðhorf og köpuryrði af hálfu ríkis- stjórnarinnar eða klappliðs hennar. Og þetta veldur áhyggjum, því þessi gagnrýni er einhvern veginn eins og upp úr rassvasahandbók eft- ir frjálshyggjupostula Hayeks-línunn- ar þar sem hvers konar ríkisafskipt- um og regluverki er blótað og formælt í heilagri reiði hins frjálsa borgara, sem vill geta farið öllu sínu fram eins og ja, til dæmis þeir sem nú hafa ver- ið dregnir fyrir dómstóla fyrir sitt eft- irlitslausa fjármálasukk, svik og pretti. Við tökum eftir þessari gagn- rýni sem hefur verið að magnast hjá núverandi valdhöfum gegn „eftir- litsiðnaðinum“ eins og þeir kalla regluverkið alla jafna í hálfgerðum fyrirlitningartón. Þeir vilja allt eftirlit helst burt. Það þvælist bara fyrir og það kostar líka allt of mikið. Í gær kom áþreifanlega í ljós hvernig þessi hugsunarháttur hefur farið með Ríkisútvarpið, þann hluta fjórða valdsins sem stjórnvöld hvers tíma eru einna helst í aðstöðu til að draga tennurnar úr. Margra ára niðurskurður hefur þegar bitnað á getu RÚV til að veita stjórnvöldum lögbundið aðhald með umfjöllun og fréttaflutningi, auk þess sem áð- urgreint hugarfar gegn hvers kon- ar afskiptasemi hefur fætt af sér hrokafulla andúð gegn stofnuninni, andúð sem fær til dæmis að flæða frítt á leiðarasíðu Morgunblaðsins ár eftir ár og á það til að brjótast fram í viðtölum við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Fréttir um að RÚV sé orðið tæknilega gjaldþrota koma því ekki sérstaklega á óvart. Ef til vill hafa nýir stjórnendur ekki gætt að áfram- haldandi nauðsynlegu aðhaldi til að vera innan rammans eða þá að þeir hafa verið of vongóðir um velvild ráðandi afla. Þeir hefðu kannski betur heyrt í stjórnendum þeirra stofnana sem hér voru nefndar sem hafa alls ekki fundið fyrir neinni velvild. Í staðinn finna þeir einna helst að stólarnir undir þeim eru að hitna. n „Þessi gagnrýni er einhvern veg­ inn eins og upp úr rass­ vasahandbók eftir frjáls hyggjupostula Hayeks­línunnar. Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, bað kærustu sinnar fyrir stuttu. – DV Ég fékk svo já Sigurður Már Guðjónsson, bakara­ og konditormeistari Bernhöftsbakarís, segir brauð ekki fitandi. – DV Verður að finna einhvern annan sökudólg Norðurland í ljóma U m daginn fór ég ásamt konu minni akandi langt norður í land, og er skemmst frá því að segja, að fjórðungur- inn skartaði sínu fegursta í skín- andi veðri, svo að hvergi bar skugga á, hvorki á landið né fólkið. Ég hægi alltaf ferðina í Vatnsskarðinu, þar sem ég var sex löng og sælurík sum- ur í sveit hjá góðu frændfólki, þegar ég var strákur. Þar var kveðið við hey- skapinn á daginn og einnig á kvöldin og mikið spilað og sungið, m.a.s. í fjósinu til að drýgja nytina í kúnum. Mér hefur æ síðan þótt Valadals- hnúkur, sem blasir við bænum handan þjóðvegarins, vera afbragð annarra fjalla og engu síðri að allri fegurð en Borðfjall í Suður- Afríku eða Esjan eða píramítar Egyptalands. Tvö skagfirsk skáld o.fl. Skammt frá Vatnsskarði stendur minnisvarðinn um Stephan G. Stephansson við þjóðveginn, og má það heita skylda góðra Skag- firðinga að á við styttuna og skála fyrir skáldinu, nema bílstjórinn er yfirleitt undanþeginn. Ættjarðarást Stephans G. dofnaði ekki við búferla- flutninginn til Vesturheims, þar sem hann eyddi mestum hluta ævinnar, öðru nær. Hann var þjóðrækinn um- bótamaður í húð og hár. Þegar hann kom aftur til Íslands í stutta heim- sókn 1917, leit hann við hjá afa mín- um og skáldbróður sínum Þorsteini Gíslasyni ritstjóra í Þingholtsstræti 17. Afa mun hafa þótt Stephan G. helzt til umbótaglaður. Samt hafði djarfur umbótahugur afa míns frá yngri árum ekki dofnað meira en svo í viðstöðulausu vopnaskaki stjórn- málanna á heimastjórnarárunum, að hann skrifaði forsíðuleiðara í blað sitt Lögréttu 1919 og mælti fyrir inn- flutningi erlends vinnuafls í stórum stíl. Þar segir: „Við höfum ráðin og stjórnina og gætum heft innflytjendastrauminn, hvenær sem okkur sýndist svo, ef okkur virtist hann ætla að vaxa okk- ur yfir höfuð. Við höfum yfirhöfuð öll skilyrði til að halda við máli okk- ar og menningu og gera þeim mönn- um, sem til langdvala settust hér að, girnilegast að tileinka sér hvort tveggja. Í stað þess að óttast, að tunga okkar hlyti að týnast, ef útlendir verkamenn flyttust inn í landið, ætt- um við að hafa það traust á sjálfum okkur, að við einmitt með þessu gæt- um fjölgað mælendum hennar um þúsundir, ef ekki tugi þúsunda.“ Afi minn fæddist á Árskógsströndinni. Hann vildi virkja fossa líkt og Einar Benediktsson skáld, sem hefði orðið 150 ára síðar í haust. Mér varð fyrir norðan einnig hugsað til langafa konu minnar, Sveins Gunnarssonar bónda og skálds frá Mælifellsá í Skagafirði, sem fór fótgangandi um hálft landið í öllum veðrum að selja bækur. Hann brá síðan búi, þar eð hann þoldi ekki allan barnamissinn, sem margar fjölskyldur máttu þola líkt og þau hjónin. Hann fluttist til Reykja- víkur, stundaði verzlun um tíma í söluturninum, sem stendur enn á Lækjartorgi, og bjó þar um skeið á efri hæðinni. Sjálfsævisaga hans, Veraldarsaga Sveins frá Mælifellsá, er glaðleg heimild um horfna tíð. Haustrjóðar sveitir Ísland á enn í vök að verjast eins og við var að búast eftir allt, sem á und- an er gengið, og landsbyggðin ekki sízt, því að borgirnar eru ævinlega burðarásinn í efnahagslífinu, þar eð þéttbýli fylgir hagræði, sem dreifð- ar byggðir eiga skv. eðli máls ekki völ á í sama mæli. Þeim mun gleðilegra var sjá haustrjóðar sveitirnar norðan heiða baða sig í sólinni, heimsækja bændur og listamenn og Háskól- ann á Akureyri og kynnast gróskunni í starfinu þar. Þar heyrði ég Gissur Ó. Erlingsson dósent í Linköping í Svíþjóð flytja skínandi góðan fyrir- lestur um spillingu í Svíþjóð og á Íslandi. Við heimsóttum bændur í Fnjóskadal í Dalsmynni, það er frekar fáfarinn dalur úr alfaraleið, en fagur með afbrigðum. Við heimsótt- um einnig Aðalheiði Eysteinsdóttur myndlistarmann í Freyjulundi skammt frá Akureyri, en hún vinnur að tilkomumiklum tréverkum sínum ýmist þar eða á Siglufirði. Við hittum einnig æðarbændur á Akureyri, þau sækja dúninn í Skagafjörð, og hlýdd- um á Kristin Sigmundsson óperu- söngvara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, Jónas Ingimundarson píanóleikara og Kristján Hreinsson skáld og heimspeking leika listir sín- ar fyrir fullu húsi í Bergi á Dalvík, einu þokkafyllsta menningarhúsi landsins. Við hittum lögregluna á Blönduósi á leiðinni heim. n „Hann vildi virkja fossa líkt og Einar Benediktsson skáld, sem hefði orðið 150 ára síðar í haust. Þorvaldur Gylfason skrifar Kjallari Hallgrímur Thorsteinsson hallgrimur@dv.is Leiðari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.