Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 3.–6. október 201416 Fréttir Áhugasamar um gámahús n Vill fá lóðir undir gámahús á höfuðborgarsvæðinu n Vonast eftir stuðningi eiginkonunnar É g hjálpa konunni minni og konan mín hjálpar mér,“ segir Svanur Guðmundsson fram­ kvæmdastjóri Smáíbúða ehf., fyrirtækis sem vinnur nú að því að fá hagstæðar lóðir á höfuðborgar­ svæðinu fyrir svokölluð gámahús. Svanur, sem var kosningastjóri Fram­ sóknarflokksins fyrir síðustu borgar­ stjórnarkosningar, segist vonast til þess að eiginkona hans, Guðfinna Jó­ hanna Guðmundsdóttir, borgarfull­ trúi Framsóknarflokksins í Reykjavík, beiti sér fyrir hagsmunum fyrirtækis­ ins sem hefur lýst yfir vilja til að reisa gámahús í höfuðborginni. „Ég vona það og ætlast til þess að hún geri það,“ segir hann í samtali við DV. „Ég er ekki að beita mér í þessu máli,“ segir Guðfinna hins vegar í samtali við DV. Myndi víkja „Ég hef aldrei skoðað þetta mál sem borgarfulltrúi og ég hef ekki lagt þetta fram sem borgarfulltrúi.“ Þá segist Guðfinna jafnframt ætla að víkja sæti ef málefni fyrirtækisins koma inn á borð borgarráðs: „Já, auðvitað.“ Að­ spurð um ummæli eiginmannsins segir hún að þau hafi verið sett fram í öðru samhengi. „Hann sagði við ykk­ ur að hann vonaðist til þess að kon­ an hans myndi styðja hann í öllu sem hann gerir en ekki að ég myndi fara að beita mér fyrir þessu innan borg­ arinnar. Það hefur aldrei nokkurn tí­ mann verið ætlunin.“ Í þessu samhengi skal tekið fram að blaðamaður var að ræða við Svan um leit hans að lóðum fyrir gáma­ húsin á höfuðborgarsvæðinu þegar eftir farandi orðaskipti áttu sér stað: Þú sagðist vonast til þess að hún [Guðfinna] myndi hjálpa þér í þessu, hvernig sem hún gæti gert það? „Já, ég hjálpa konunni minni og konan mín hjálpar mér, já ég vonast til þess.“ Akkúrat, þannig að hún getur kannski beitt sér eitthvað fyrir þessu? „Ég vona það og ætlast til þess að hún geri það.“ Aðspurður hvort hann áliti ekki að um hagsmunaárekstur væri að ræða spurði Svanur hins vegar: „Bíddu, hver er hagsmunaáreksturinn?“ Guðfinna segir hugmyndina um að reisa gámahús í Reykjavík góða en að hún hafi aldrei verið rædd á vettvangi Framsóknarflokksins í borginni. „Hins vegar hefur mér alltaf þótt það snilldarhugmynd að búa til svona bráðabirgðahúsnæði á meðan það er verið að byggja upp húsnæði í Reykjavík sem hefur ekki verið sinnt af hálfu meirihlutans í borginni síð­ ustu árin.“ Þetta breyti því ekki að nú­ verandi meirihluti hafi ekki áhuga á hugmyndinni: „Þetta er bráðabirgða­ lausn, þetta er hugmynd sem var út­ færð sem borgin hefur ekki áhuga á. Punktur.“ Í þessu samhengi tekur Guðfinna ítrekað fram að hún sé ekki í meirihluta. Útilokar ekkert Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir er annar tveggja borgar fulltrúa Fram­ sóknarflokksins í Reykjavík. Hún viður­ kennir hagsmuna­ tengslin sem eru til staðar. „Já, það er nú kannski þess vegna sem við höfum ekkert verið að beita okkur í þessu og reynum að skilja þarna á milli.“ Hún útilokar þó ekki að Framsóknar­ flokkurinn í Reykjavík muni á næstu misserum beita sér fyrir byggingu gámahúsa enda um hagkvæman húsakost að ræða. „Við getum ekki svarað því eins og staðan er í dag en við munum beita okkur fyrir öllum góðum hugmynd­ um. Auðvitað eru öll þessi tengsl uppi á borðinu.“ Hún setur málið í samhengi við það að 850 manns séu á biðlista eftir félagslegri íbúð hjá Reykjavíkurborg. „Við þurfum að horfa út fyrir boxið til þess að leysa vanda þessa 850 einstaklinga sem eru á bak við þessar umsóknir og þetta [gámahús] fellur alveg að því.“ Aðspurð um þessi ummæli Sveinbjargar segir Guðfinna: „ Nákvæmlega, það kemur vel til greina. Við erum hins vegar ekki í meirihluta, við höfum ekki lagt fram þessa tillögu, meirihluti borgarinnar núna hefur ekki áhuga á þessu. Hann var spurður um það í fyrra. Hann hef­ ur ekkert áhuga á þessu þannig að þetta er ekkert „issjú“ í dag.“ „Þetta er tilbúið“ Guðfinna tekur fram að hún hafi starfað við fasteignmál í átján ár. „Er ég kannski vanhæf að ræða um húsnæðismál af því að ég hef þekk­ ingu og reynslu á þessu sviði? Er það málið? Snýst þetta um það?“ Sveinbjörg talar á svipuðum nótum: „Það liggur líka ljóst fyrir að þessi fasteignamál hafa verið eitt helsta verkefni Guðfinnu síðastliðin fimmt­ án ár, við tökum það svo sem ekkert frá henni, enda sést það í allri um­ ræðu hversu vel hún er inni í öllum þessum málum.“ Smáíbúðir ehf., var stofnað í mars á þessu ári en eigendur eru ásamt Svani, þeir Högni Auðunsson, Ólafur Auðunsson, Auðunn Bjarni Ólafsson og Bjarni Tómasson. „Þetta snýst um að leysa þann bráðavanda sem er uppi þegar kemur að leiguhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu,“ sagði Svanur um fyrirætlanir fyrirtækisins í samtali við Fréttatímann síðastliðinn janúar. Þá sagði hann að búið væri að smíða frumgerðir að gámahúsum sem hann vonaðist til að geta reist og leigt út í sveitarfélögum þar sem skortur er á leiguíbúðum. „Þetta eru tilbúnar 26 og 38 fermetra íbúðir með eldhúsi, baði og herbergi, sem hægt er að setja saman með skömmum fyrirvara,“ sagði hann jafnframt. „Við ætlum bara að hafa samband við sveitarfélög og óska eftir hvar við getum fengið lóð fyrir þetta. Bara óska eftir að fá að setja þetta niður. Þetta er tilbúið. Það er ekkert ann­ að en bara setja þetta saman og setja þetta niður,“ segir Svanur nú í samtali við DV. Áætlað leiguverð mun vera á bilinu 80 til 100 þúsund krónur. Óánægður með borgarstjórn Pistill Eyglóar Harðar­ dóttur félagsmálaráð­ herra um það sem hún kallar „gámafordóma“ vakti athygli margra í síð­ ustu viku. „Fyrir nokkru deildi ég myndum af gámahúsum á fésbók­ arsíðu minni. Það kom mér nokkuð á óvart að í stað þess að skoða mynd­ irnar og tenglana virtist orðið gámur vera nóg til vekja neikvæð viðbrögð,“ skrifaði Eygló sem tók fram að hún vildi gera enn eina tilraunina til að vinna á fordómum gegn gámum en hún hefur verið dyggur talsmaður slíkra húsa síðustu misseri. Fjörugar umræður spunnust á kommentakerfinu og var fram­ kvæmdastjóri Smáíbúða einn þeirra sem lagði orð í belg. „Við hjá Smá­ íbúðum höfum hannað og smíðað í samstarfi við fyrirtækið PEP litlar íbúðir til að mæta vanda á húsnæðis­ markaði. Byggingarnar nota gáma sem stoðgrind fyrir byggingarnar og buðum sveitarstjórnarmönnum að skoða fullkláraða íbúð. Treystum við okkur til að reisa viðkomandi íbúð­ ir á 6–9 mánuðum,“ skrifaði Svanur sem lýsti jafnframt yfir óánægju með fulltrúa borgarstjórnar Reykjavíkur vegna þess áhugaleysis sem þeir hefðu sýnt gámahúsunum. Svanur tók fram að fulltrúar frá Kópavogi hefðu þegið boð um að skoða gámahúsin en borgarfulltrúar núverandi meirihluta í Reykjavík hefðu ekki séð „ástæðu til að mæta.“ Svanur sagðist einnig hafa átt fund með skipulagsyfirvöldum í Reykjavík þar sem fram hefði komið að engin lóð væri til fyrir framkvæmdirnar. Þetta sagði hann þýða að áhugi nú­ verandi borgaryfirvalda „á að leysa bráðavanda fólks í húsnæðisvanda var enginn.“ n Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Leitar að lóðum Svanur Guðmundsson leitar nú að lóðum á höfuðborgarsvæðinu fyrir gámahús sem hann og viðskiptafélagar hans vilja leigja út. Mynd SkJáSkot af faceBook Ýmsar gerðir gámahúsa Smáíbúðir ehf. kynntu gámahús sín fyrir bæjaryfirvöldum í Kópavogi fyrr á árinu. Svanur gagnrýnir borgar­ yfirvöld fyrir að sýna málinu ekki áhuga. Mynd Úr Safni Líst vel á gámahús Guðfinna og Sveinbjörg eru borgarfulltrúar fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík. Þeim líst vel á hugmyndir um að reisa gámahús í borginni og leigja þau út. Mynd Sigtryggur ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.