Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Side 14
Helgarblað 3.–6. október 201414 Fréttir
„Þarna eru bara hagsmunir sem berjast“
n Talsmenn neytenda í verðlagsnefnd búvöru telja breytinga þörf n Bíða niður-
O
ft hafa menn viljað fá meira
en við erum tilbúnir að
veita. Auðvitað er þetta
hagsmunabarátta. Við
erum að passa upp á neyt-
endurna, fulltrúar bænda passa
upp á þá og fulltrúar Mjólkursam-
sölunnar upp á hana. […] En auð-
vitað er þetta togstreita; neytendur
vilja borga sem minnst og bænd-
ur vilja fá sem mest […] Þarna eru
bara hagsmunir sem berjast,“ segir
Björn Sæbjörnsson, formaður Starfs-
greinasambandsins og fulltrúi ASÍ í
verðlagsnefnd búvöru um árabil, en
hann lýsir starfinu í nefndinni sem
sannarlegri „hagsmunabaráttu“ þar
sem hans hlutverk sé að gæta að hag
neytenda.
Ekki besta leiðin
Björn er annar af tveimur fulltrúum
neytenda í nefndinni á móti tveim-
ur tveimur fulltrúum afurðastöðva
í mjólkuriðnaði, tveimur fulltrúum
Bændasamtaka Íslands og svo for-
manni nefndarinnar, Ólafi Friðriks-
syni, sem er fulltrúi atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra, Sigurðar Inga
Jóhannssonar. Segja má að bein-
ir fulltrúar neytenda séu í algerum
minnihluta í nefndinni. Hinn fulltrúi
neytenda er Elín Björg Jónsdóttir,
formaður BSRB.
Verðlagsnefnd búvöru hefur ver-
ið til umfjöllunar í fjölmiðlum í
tengslum við úrskurð Samkeppn-
iseftirlitsins um samkeppnislaga-
brot Mjólkursamsölunnar. Úrskurð-
ur Samkeppniseftirlitsins snerist um
verðlagningu á hrámjólk til fyrirtæk-
isins Mjólku árið 2009 þegar verð á
slíkri mjólk til fyrirtækisins var hækk-
að um 17 prósent í byrjun ágúst. Ein
af niðurstöðum Samkeppniseftirlits-
ins er að verðhækkunin á hrámjólk-
inni hefði haft þau áhrif á Mjólku
að auðveldara varð fyrir Kaup félag
Skagfirðinga, sem á tíu prósenta
hlut í Mjólkursamsölunni, að kaupa
Mjólku.
Elín Björg Jónsdóttir segir að
hugsanlegt sé að samsetningin í
nefndinni sé ekki heppileg. „Ég
veit ekki hvernig þessi samsetning í
nefndinni kemur til. En þetta er al-
veg áreiðanlega ekki besta aðferðin
til að ákveða verðlagningu. Það er
mjög auðvelt að sjá að valdajafnvæg-
ið í nefndinni er skakkt,“ segir Elín
Björg.
Innanbúðarmaður í
viðskiptum kaupfélagsins
Ólafur Friðriksson sem var sjálfur
kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki, fyrir-
rennari Þórólfs Gíslasonar, var um
árabil þátttakandi í starfsemi Fjár-
festingarfélagsins Giftar sem stofn-
að var utan um eignir Samvinnu-
trygginga árið 2007. Ólafur situr enn
til dæmis í stjórn Eignarhaldsfélags-
ins Andvöku, en það er dótturfélag
Giftar, auk þess sem hann var stjórn-
armaður í Fjárfestingarfélaginu Felli
sem var eitt hlutdeildarfélögum Gift-
ar og sem tók þátt í milljarða fjár-
festingum með hlutabréf með Kaup-
félagi Skagfirðinga fyrir hrunið 2008.
Viðskipti Fjárfestingarfélagsins
Fells hafa aldrei verið útskýrð til fulls
opinberlega en félagið átti 13 millj-
arða eignir eftir hrun en helming-
ur þeirra rann inn í Kaupfélag Skag-
firðinga árið 2009 og helmingur er
sagður hafa runnið til Giftar. Þetta
kom fram í máli Sigurjóns Rúnars
Rafnssonar, aðstoðarkaupfélags-
stjóra á Sauðárkróki, í DV árið 2013.
Ólafur var sömuleiðis skrifstofu-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu í
ráðherratíð Guðna Ágústssonar og
síðar hjá Einari Guðfinnssyni, Jóni
Bjarnasyni og öðrum sem verið hafa
yfir landbúnaðarmálunum.
Getur haft úrslitaáhrif
Björn sat í verðlagsnefnd búvara árið
2009 þegar verðhækkunin á hrá-
mjólk sem úrskurður Samkeppn-
iseftirlitsins fjallar um var ákveðin.
Ekki er að finna sératkvæði eða
skoðanir einstakra nefndarmanna
í fundargerðinni frá 7. júlí þar sem
hækkunin var ákveðin. Þar kem-
ur einungis fram að nefndin hafi
ákveðið hækkunina „sameiginlega“.
„Það náðist niðurstaða sem menn
gátu sætt sig við. Yfirleitt þá hefur
nefndin talað sig inn á sameiginlega
niðurstöðu. Ef ég man þetta rétt þá
fannst mér þetta hrikaleg hækkun en
það var ekki hægt að deila raunveru-
lega á þær forsendur sem lágu fyrir
þessari niðurstöðu […] Þetta var vel
ígrunduð ákvörðun hjá nefndinni.“
Björn segir að Ólafur Friðriksson
hafi ekki beitt sér sérstaklega fyrir
hækkuninni svo hann muni. „Svo
er ráðherraskipaður formaður sem
er Ólafur Friðriksson. Hann hefur
ákveðið vægi inni í þessu. Segjum
sem svo að það sé ágreiningur inni í
nefndinni og þá getur hann haft úr-
slitaatkvæði.“
Bera Ólafi vel söguna
Björn segir aðspurður að hann hafi
ekki orðið var við að Ólafur hafi
gengið erinda einhverra inni í verð-
lagsnefndinni og ber hann honum
vel söguna. „Hann er mjög mikill
sáttasemjari og reynir að ná samn-
ingum. Hann gefur aldrei upp hvaða
ordrur hann hefur frá ráðherra fyrr
en komin er einhver niðurstaða.
Hann leggur sig mjög í líma við það
að ná samningum. Ég get líka sagt
þér að það hefur oft verið rifist innan
nefndarinnar,“ segir Björn og hlær.
Elín Björg, formaður BSRB og
fulltrúi neytenda í nefndinni, tekur
í sama streng og Björn þegar hún er
spurð um Ólaf og störf hans í verð-
lagsnefndinni: „Mér hefur fundist
hann vinna þannig að hann leiti leiða
til að finna sameiginlegar lausn-
ir. Hann hefur lagt talsvert á sig til
þess.“ Aðspurð hvort vinna Ólafs hafi
verið hlutlæg og gagnsæ að hennar
mati segir hún: „Já, enda hefði ég nú
látið í mér heyra ef mér hefði fundist
eitthvað annað. Það leikur sko ekki
nokkur vafi á því.“
Nefndarmennirnir
Þeir sem sátu í verðlagsnefndinni
á þeim tíma sem hækkunin var
ákveðin voru Björn og Ólafur auk
Haraldar Benediktssonar, Elínar
Bjargar Jónsdóttur, Pálma Vilhjálms-
sonar, Magnúsar Ólafssonar og Sig-
urðar Loftssonar.
Haraldur Benediktsson, þá-
verandi formaður Bændasamtak-
anna og núverandi þingmaður
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„En þetta er al-
veg áreiðanlega
ekki besta aðferðin til að
ákveða verðlagningu.
– Elín Björg Jónsdóttir
Formaðurinn Ólafur Friðriksson er for-
maður verðlagsnefndar um búvöru og hefur
verið frá ráðherratíð Guðna Ágústssonar.
Hann er fyrrverandi kaupfélagsstjóri KS og
viðskiptafélagi núverandi stjórnenda.
Bíður eftir niðurstöðu Elín Björg Jóns-
dóttir segist bíða spennt eftir niðurstöðu
Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um
verðlagsnefnd búvöru.
Hagsmunabarátta Björn Snæbjörnsson
segir að vinna nefndarinnar hafi einkennst
af hagsmunabaráttu þar sem MS og bænd-
ur hafi verið öðrum megin en talsmenn
neytenda hinum megin.