Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Qupperneq 32
Helgarblað 3.–6. október 201432 Fólk Viðtal föðurhlutverkið frekar en að hugsa um hvað þetta sé erfitt. Að sjálf- sögðu er þetta stundum erfitt en ég gleymi því einhvern veginn jafn- óðum. Ég var alltaf að fara að eign- ast börn og ég hugsa að ég eigi eft- ir að eignast allavega tvö, ef ekki þrjú, í viðbót. Mér finnst þetta alveg æðislegt,“ segir hann og brosir. Kærasta Gunnars er fædd og uppalin á Akureyri. Móðir Gunnars, Guðrún Hulda Gunnarsdóttir Nelson, kemur frá Ólafsfirði en sjálf- ur er Gunnar alinn upp í Reykja- vík. Faðir Gunnars, Haraldur Dean Nelson, kemur frá Keflavík en fað- ir hans, afi Gunnars, er Bandaríkja- maður. Þaðan kemur ættarnafnið Nelson. Þá á Gunnar eina systur, Maríu Dögg Nelson, en hún er á öðru ári í leiklistarnámi við Lista- háskóla Íslands. Systkinin eru afar náin. Auður flutti suður að loknum menntaskóla og hóf framhalds- nám við Listaháskóla Íslands. En hvernig kynntust þau Gunnar? „Við kynntumst hérna í Mjölni,“ seg- ir Gunnar. „Hún byrjaði að æfa hérna fyrir rúmum þremur árum og við kynnumst hérna í þessu um- hverfi. Við áttum einhverja sameig- inlega vini og kynntumst bara svona eins og fólk kynnist yfirleitt. Reynd- ar ekki á Facebook,“ segir hann og hlær. Enginn slagsmálahundur Gunnar hefur ætíð verið á fullu í íþróttum. „Ég var aðeins í fótbolta sem gutti en man voða lítið eftir því. Það átti aldrei neitt svakalega vel við mig og mér hefur aldrei fundist neitt sérstaklega gaman í fótbolta. Síðan fór ég í íshokkí og fannst það alveg hrikalega gaman. Ég fann mig mjög vel í því en hætti á sama tíma og fé- lagarnir fóru að tínast úr hópnum. Maður var eitthvað farinn að pæla í stelpum og langaði bara að vera frjáls allan daginn. Nennti einfaldlega ekki á æfingar. Í kjölfarið fór ég að æfa karate en ég hef alltaf haft mjög mik- inn áhuga á bardagaíþróttum.“ –En hvaðan kemur sá áhugi? „Pabbi hefur alltaf haft áhuga á þessu líka og hann hafði eitthvað verið í þessu þegar hann var yngri. Ég hafði alltaf gaman af þessum myndum með Bruce Lee og Jackie Chan sem barn og fannst allt svona bardagaíþróttadæmi mjög spennandi. Ekki að ég hafi verið ein- hver slagsmálahundur, þvert á móti.“ Það var í karate sem Gunnar kynntist Jóni Viðari Arnþórssyni, nú formanni Mjölnis. „Það var hann sem kynnti MMA fyrir mér,“ rifjar Gunnar upp. „Hann sýndi mér alls konar myndbönd og í kjölfarið fór- um við að æfa þetta saman. Okk- ur fannst þetta báðum hrikalega spennandi og á endanum hættum við báðir í karate til þess að sinna þessu á fullu. Þá fór boltinn að rúlla og Mjölnir varð til í þeirri mynd sem hann er í dag.“ Þetta var árið 2005 en eins og kunnugt er hefur Mjöln- ir stækkað jafnt og þétt síðan og er í dag einn stærsti bardagaíþrótta- klúbbur í Evrópu. Hætti í skóla Gunnar gekk í Langholtsskóla í Reykjavík. Hann segist hafa verið orkumikið barn sem hafi átt erfitt með að einbeita sér í skólanum. „Mér fannst alltaf erfitt að sitja kyrr í tíma og einbeita mér. Ég var alltaf farinn að rugga mér á stólnum bara til að gera eitthvað,“ segir hann. „Ég var mjög orkumikill og mig langaði alltaf helst til þess að vera úti. Það átti ekki endilega vel við mig að sitja á skólabekk. Ég var samt alltaf með ágætar einkunnir þó að ég hafi held- ur ekki verið neinn proffi. Það voru ákveðin fög sem ég átti auðvelt með, eins og raungreinar, en átti erfiðara með fög þar sem þurfti að lesa mik- ið, eins og sögu. Tungumál fannst mér erfið, nema kannski enska sem ég lærði tiltölulega auðveldlega, en allt annað var svolítil pína.“ Gunnar tók tvö og hálft ár í menntaskóla áður en hann ákvað að hætta til þess að einbeita sér að bardagaíþróttinni. „Ég var ekki að gera neitt af viti. Ég lærði fyrir próf- in og rétt slefaði í gegnum þau en var búinn að gleyma öllu daginn eftir. Ég nennti ekki að vera að þessu bara til þess að fá einhverja pappíra. Ég vissi hvað mig langaði til að gera og ég vildi fá að einbeita mér að því. Tala nú ekki um þegar ég var loks- ins kominn á það þroskastig að ég gat einbeitt mér að einhverju leng- ur en í tvær sekúndur. Ég vildi nýta mér það til hins ýtrasta,“ segir hann. „Ég þarf að vera á hreyfingu“ Æskuminningar Gunnars eru af orkumiklu, hálfofvirku barni. Það er erfitt að ímynda sér afslappaða manninn fyrir framan mig í slíkum ham. Hann virkar að minnsta kosti ekki mjög orkumikill í viðtölum eða í eigin persónu. Jafnvel þótt ég hafi fylgst með honum í bardaga á sjón- varpsskjánum þá er alltaf yfir hon- um sama yfirvegunin. „Ég er kannski frekar rólegur almennt núna, en var það kannski ekki alltaf þegar ég var yngri,“ segir Gunnar. „En ég er ekki hrókur alls fagnaðar hvert sem ég fer, er alls ekki sá gæi, en ef við vær- um einhvers staðar úti að djöflast þá myndir þú sjá á mér aðra hlið. Þar er ég í essinu mínu. Mér líður best í þannig aðstæðum, þar sem við þurf- um ekkert endalaust að vera að tala saman. Það er takmarkað hvað ég get setið og hlustað og talað. Núna er ég til dæmis alveg að verða búinn með kvótann í dag,“ segir hann og brosir stríðinn til mín. „Ég þarf að vera á hreyfingu til þess að finnast ég vera á lífi.“ Mest lesnu fréttirnar Eins og Gunnar gaf í skyn eru fjöl- miðlaviðtöl ekki í miklu eftirlæti hjá honum, þó svo að hann sýni mér ekkert nema kurteisi og svari öll- um spurningum af mikilli einlægni. „Stundum er það erfitt,“ viðurkenn- ir hann. „Ég er misvel upplagður til þess að svara spurningum – og oftar en ekki sömu spurningunum. Oftast langar mig til þess að gera eitthvað annað. En þetta er bara hluti af þessu.“ Íslenskir fjölmiðlar hafa sýnt Gunnari mikinn áhuga. Kom áhuginn honum á óvart? „Það tók smá tíma að fá umfjöllun í fjölmiðl- um en þegar hún fór af stað þá rauk hún bókstaflega áfram. Önnur hver fréttin sem var skrifuð um mig varð mest lesin svo áhuginn virðist einnig vera til staðar í þjóðfélaginu. Þegar ég tala við fjölmiðlafólk þá sé ég að það hefur virkilegan áhuga á þessu og setur sig mjög vel inn í þetta. Fólk er farið að þekkja íþróttina og veit hvað er í gangi. Það er virkilega stórt skref.“ Dagur í lífi Gunnars Eftir að hafa spjallað dágóða stund leikur mér forvitni á að vita; hvernig er hefðbundinn dagur í lífi Gunnars? „Við sofum yfirleitt út og fáum okkur svo bara bröns eða hádegismat. Ég borða yfirleitt ekki mikið á morgnana. Síðan komum við hingað og æfum. Ef það er ekki bardagi á döfinni þá brýt ég kannski upp daginn og fer að hjóla. En annars er ég yfirleitt í „gymminu“ fram á kvöld að djöflast. Ef ég er er- lendis að æfa þá fer ég í „gymmið“ svona um þrjú leytið og er þar til svona níu, tíu á kvöldin. Þar er allt til alls. Í grunninn þá geri ég lítið annað en að æfa og borða,“ segir Gunnar. Þegar Gunnar var að byrja að æfa MMA af krafti varði hann mikl- um tíma við æfingar erlendis, sér í lagi á Írlandi þar sem þjálfari hans, John Kavanagh, er með aðsetur. „Þá var ég bara úti að æfa og kom rétt svo heim til þess að segja hæ og fór síðan aftur út. Núna er ég aðal- lega hérna heima en fer út í styttri æfingabúðir.“ Kemur heill heim Fjölskylda Gunnars hefur ætíð stað- ið við bakið á honum og stutt hann í því sem hann er að gera. „Þau hafa kannski ekki verið hlynnt öllum ákvörðunum sem ég hef tekið, eins og að hætta í menntaskóla, en um leið og ég er búinn að taka ákvörðun þá hefur fjölskyldan alltaf staðið við bakið á mér. Það er meira en margir geta sagt og ég er mjög þakklátur fyrir það.“ Gunnar segir suma fjöl- skyldumeðlimi hins vegar hafa átt erfitt með að fylgjast með honum í bardaga til að byrja með. „Fólk er aðeins farið að venjast þessu. Núna eru eiginlega allir farnir að horfa á þetta í beinni útsendingu en áður fannst sumum betra að horfa á þetta seinna þegar þeir vissu hvernig bar- daginn fór. Þetta er bara gott dæmi um það að þegar fólk hefur kynnst íþróttinni þá fattar það að þetta er ekki eins hrikalegt og þetta lítur út fyrir að vera. Þó svo að ég eigi til- tölulega erfiðan bardaga framund- an þá eru allar líkur á að ég muni ganga heill út úr búrinu á laugar- daginn.“ n „Ég geri mér grein fyrir því að sportið er mjög harkalegt „Þetta er orðið eitt flottasta „show“ í heiminum M y n D s iG tr y G G u r a r i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.