Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Qupperneq 40
Helgarblað 3.–6. október 201440 Skrýtið Sakamál
Glaður ræningi
Meðfylgjandi mynd hefur verið
lýst sem heimsins gleðilegustu
fangamynd. Myndin er af 45
ára gömlum manni, Michael
Whitington, sem þanng 23. sept
ember gerði árangurslausa tilraun
til að ræna banka í verslunar
miðstöð í Denver í Bandaríkj
unum. Hann reyndi að komast á
brott með peninga í sporvagni en
varð ekki kápan úr því klæðinu.
Á myndinni, sem lögreglan tók í
kjölfar handtökunnar, er glæpa
maðurinn beinlínis brosandi út
að eyrum. Myndin hefur notið
mikillar hylli á samfélagsmiðlum.
„Sjáumst
í helvíti“
34 ára bandarískur karlmaður,
Caius Veiovis, hefur verið dæmdur
í lífstíðarfangelsi í Massachusetts
fyrir þrjú morð. Veiovis þessi er
auðþekkjanlegur á andlitshúðflúri
og púðum sem hann lét koma fyrir
undir húðinni á enninu.
Tveir aðrir menn; Adam Lee
Hall, 37 ára, og David Chalue, 47
ára, voru einnig ákærðir og dæmd
ir fyrir aðild að morðunum. Hlutu
þeir sömu örlög og Veiovis, lífs
tíðarfangelsisdóm.
Það var árið 2011 að lík þriggja
manna, Davids Glasser, Edwards
Frampton og Roberts Dhadwell,
fundust illa farin. Að sögn sak
sóknara hjálpaði Veiovis þeim
Adam og David að ræna mönnun
um áður en þeir voru skotnir til
bana og sundurlimaðir.
Nokkrum vikum eftir að
mönnunum var rænt átti Glasser
að bera vitni í dómsmáli gegn Hall,
sem var meðlimur í Hells Angels.
Hinir tveir voru drepnir vegna
þess að þeir höfðu orðið vitninu að
morðinu á Glasser.
Kviðdómur tók sér sex daga til
að meta sekt eða sakleysi Veiovis
og sem fyrr segir var hann talinn
sekur. Að því er Huffington Post
greinir frá brást Veiovis hinn versti
við þegar kviðdómur las upp
ákvörðun sína í dómsal í Spring
field þar sem málið var til meðferð
ar. „Sjáumst í helvíti,“ sagði hann.
Þreyttur þjófur
Þjófurinn Dion Davis var illa sof
inn, og kannski svolítið ölvaður,
þegar hann réðst til atlögu í
Nokomis í Flórída í Bandaríkjun
um á dögunum. Hann braust inn
í hús og safnaði saman skartgrip
um í poka. Það var þá sem hann
rak augun í álitlegt rúm. Rétt til
að kasta mæðinni lagðist hann
út af og hallaði aftur augunum –
það er erfitt að vera þjófur. Þegar
húsráðandi kom heim svaf Davis
sem fastast – og það gerði hann
enn þegar lögregla kom á vett
vang. Hann rumskaði heldur ekki
þegar meðfylgjandi mynd var
tekin en vaknaði í kjölfarið upp
við vondan draum.
Á
rla morguns, 7. maí 2009,
hringdi Martin Alexander
Forshaw í neyðarlínuna.
Martin Alexander, Alex, var
staddur á sveitavegi skammt
frá Bolton á Englandi og lögreglan
sem fór í útkallið kom að hon
um standandi við hlið silfurlitaðrar
BMWbifreiðar. Greinlilegt var að bif
reiðin hafði orðið fyrir hnjaski, en það
sem meira var, var að í bílstjórasætinu
sat kona æði slyttisleg og rann blóð í
stríðum straumum úr áverkum á
höfði hennar. Konan var ekki í bílbelti
og sagði Martin að hún hefði ekið á
þegar hún teygði sig í geisladisk. „Við
erum bæði löggur,“ sagði Alex við lög
reglumennina sem komu á vettvang.
Grunsamlegar aðstæður
En kollegar Alex voru ekki sannfærð
ir, þeim fannst enda ýmislegt grun
samlegt að sjá. BMWinn var nánast
óskemmdur, Alex áverkalaus en unga
konan alvarlega slösuð. Blóð var víða
að sjá inni í bílnum sem og á Alex;
bæði höndum og fatnaði, og hvorug
ur öryggispúðinn hafði blásið út, sem
gerist alla jafna ef ekið er á á meiri
hraða en rúmlega 30 kílómetrum á
klukkustund.
Hvað sem þessu öllu leið þá var
farið með konuna, Claire Howarth,
31 árs, á sjúkrahús í snarhasti. Alex,
26 ára, upplýsti kollega sína um að
Claire væri unnusta hans og verðandi
vaktstjóri götudeildar á StórMan
chestersvæðinu.
Skömmu eftir að Claire var lögð
inn skildi hún við og klukkutíma síð
ar var Alex handtekinn, grunaður um
morð.
Á leið í brúðkaupsferð
Á heimili Alex og Claire, í Tottington,
sá lögreglan víða blóð; í herbergi á
jarðhæð og svefnherbergi á annarri
hæð. Einnig komst lögreglan að því
að daginn eftir að Claire dó höfðu
hún og Alex ætlað að fara til Bahama
eyja þar sem þau hugðust ganga í það
heilaga. Reyndar hafði Claire lagt
mikla vinnu í að skipuleggja brúð
kaupið.
Svo virðist sem ástæðu harmleiks
ins hafi mátt rekja til fortíðar Alex,
sem hann, illu heilli, hafði ekki get
að sagt skilið við. Alex átti fjögurra
ára son og hafði á laun tekið á ný upp
samband við barnsmóður sína.
En það er ekki bæði sleppt og
haldið og þrátt fyrir að vera tvístíg
andi gerði Alex ekkert til að stöðva
undirbúning Claire vegna vænt
anlegs brúðkaups. Allt var klappað
og klárt; búið að bóka flug og hót
el og vinir og ættingjar höfðu einnig
gert sínar ráðstafanir til að fara til
Bahamaeyja.
Taumlaus hamingja og
eftirvænting
Allt var klárt nema Alex sem glímdi
við æ meiri óvissu og streitu sem nær
dró. Hvað Claire varðaði var annað
uppi á teningnum. Hún var í skýj
unum og lýsti spenningnum upp úr
miðnætti á Facebook, 7. maí: „Ég og
Alex getum ekki sofið, við erum svo
spennt – við dönsum um húsið við
diskóplötuna Ministry of Sound.“
En Claire þurfti að hyggja að síð
ustu smáatriðunum fyrir ferðina og
fór upp til að pakka og stússast – og
Alex varpaði sprengjunni, hann vildi
hætta við allt saman.
Hvað gerðist í kjölfarið liggur ekki
ljóst fyrir en af áverkum Claire má
telja fullvíst að Alex hafi barið hana
nokkrum sinnum í höfuðið með
hamri. Síðan bar hann Claire nið
ur og kom henni fyrir í farþegasæti
frammi í BMWinum og ók út í sveit.
Vonlaus staða
Alex sá aðeins einn möguleika í
stöðunni – að sviðsetja slys. Með
það fyrir augum stoppaði hann við
beygju á veginum og setti Claire í bíl
stjórasætið. Hann settist sjálfur und
ir stýri og með hægri fæti steig hann
á inngjöfina og náði smá hraða. Síð
an sveigði hann til og frá á veginum
og ók síðan á limgerði. Hann henti
hamrinum þvert yfir veginn, þar
sem lögreglan fann hann síðar.
En skoðun leiddi í ljós að það var
ómögulegt með öllu að rekja mætti
áverka Claire til bílslyss af þessum
toga.
Þegar Alex sá hvert stefndi breytti
hann framburði sínum; Claire hafði
ráðist á hann með kylfu og hann
hefði gripið til hamarsins í sjálfs
vörn. En að lokum sá hann hve fá
ránlegur framburður hans var og
játaði allt saman.
Málalyktir urðu þær að Alex fékk
lífstíðardóm og gert að afplána að
minnsta kosti 18 ár. n
LÖGGAN SEM VILDI
EKKI KVÆNAST
n Alex var tvístígandi en Claire í skýjunum vegna brúðkaupsáforma„Ég og Alex getum
ekki sofið, við
erum svo spennt – við
dönsum um húsið við
diskóplötuna Ministry of
Sound.
Fastur í fortíð-
inni Martin Alex-
ander Forshaw vissi
ekki í hvorn fótinn
hann átti að stíga.
Full eftirvæntingar Claire Howarth hafði undirbúið brúðkaupið í þaula.