Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Qupperneq 54
Helgarblað 3.–6. október 201454 Fólk
„Ég virkilega
grét, án gríns“
n Sigga Lund er orðin fjárbóndi n Erfitt að senda lömbin í sláturhús
Þ
etta var ótrúlega gaman,“
segir fyrrverandi útvarps-
konan og núverandi fjár-
bóndi á Vaðbrekku, Sigga
Lund, um viðtal við hana
sem birtist í viðskiptatímaritinu
Forbes í vikunni. Það var blaða-
maðurinn David Mac Dougall sem
tók viðtalið, en hann komst í sam-
band við Siggu í gegnum sameigin-
lega kunningja þeirra, Hjört Smára-
son sem búsettur er í Danmörku.
„Hjörtur benti honum á þessa út-
varpskonu sem hafði vent kvæði
sínu í kross, flutt út í sveit og gerst
bóndakona.“ Eftir að hafa verið
stríðsfréttamaður í fjölda ára ákvað
Mac Dougall að snúa sér að öðrum
verkefnum og hefur síðustu tvö ár
einbeitt sér að skrifum um áhuga-
vert fólk á Norðurlöndum. Þegar
hann frétti af Siggu fannst honum
tilvalið að fá hana í viðtal.
Mikill heiður
Sigga vissi þó ekki hvaðan á sig stóð
veðrið þegar blaðamaðurinn hafði
samband við hana og sagðist starfa
fyrir AP og Forbes. „Ég bara, hvað er
í gangi, og var ekkert að kveikja hvað
AP væri. Ég þekkti Forbes, en svo er
AP auðvitað mjög virt fréttastofa,“
segir Sigga og hlær dátt að sjálfri
sér. „Mér fannst þetta bara heiður
og skemmtilegt ævin týri. Gaman að
einhverjum í útlöndum þætti það
áhugavert að maður hefði kúvent lífi
sínu með þessum hætti.“
Stuttur aðdragandi
Sigga flutti ásamt
kærasta sínum á Vað-
brekku í Jökuldal í
byrjun júní á þessu
ári, þar sem þau tóku
við 300 kindum sem
hafi hans átti. Hún
segir mjög stutt-
an aðdraganda hafa
verið á flutningun-
um. „Þetta kom upp
í byrjun ársins þegar
Alli, maðurinn minn,
sagði mér að afi hans
ætlaði að selja kinda-
kvótann og að hann
hefði áhuga á að
kaupa, og hvort ég
vildi þá ekki koma
með.“ Þetta kom
ansi flatt upp á Siggu
og fékk hún aðeins
nokkra daga til að
hugsa sig um. „Ég
var nýbúin að missa
vinnuna mína á út-
varpsstöðinni K-100
og hugsaði með
mér, af hverju ekki?“
„Algjör u-beygja á lífi“
Sigga segir að þeim skötuhjúum líði
vel í sveitinni og það séu mikil for-
réttindi að fá að búa á þessu svæði.
„En auðvitað er þetta mikil breyting
og ég sakna borgarinnar oft. Þetta
er algjör u-beygja á lífi. Svo er fólkið
mitt langt frá mér og það tekur pínu
á. Þetta er algjörlega frábært en það
tekur tíma að aðlagast nýjum að-
stæðum.“ Hún viðurkennir að þetta
sé mikil áskorun að rífa sig upp með
rótum, frá höfuðborginni þar sem
hún bjó í þrjátíu ár, og flytja á sveita-
bæ. En klukkutíma akstur er á Egils-
staði, sem er næsti þéttbýlisstaður.
Smalamennskan erfið
Sigga og Alli eru með 300 kindur
á bænum en gera ráð fyrir því að
stækka stofninn smám saman. Hún
viðurkennir að hafa ekki alveg gert
sér grein fyrir því hvað hún var að
fara út í, enda hafði hún enga þekk-
ingu á fjárbúskap. En þetta er mikil
vinna. „Í sumar var það heyskapur-
inn, en sauðburði var lokið þegar ég
kom í júní. Svo þurfti að bera á túnin
og við kláruðum smalamennsku um
helgina. Það var brjáluð vinna. Um
miðjan október þegar allt
fé er komið í hús þá þarf
að fara að rýja, svo þarf að
setja hrútana á ærnar um
miðjan desember. Það er
alltaf eitthvað,“ segir Sigga
og hlær.
Finnur sig vel
sem bóndi
En hvernig er hún að finna sig í
nýju starfi? „Ég er að finna mig vel í
þessu en ég varð svolítið miður mín
um helgina þegar það var verið að
senda lömbin burt. Ég virkilega grét,
án gríns. Ég sagði við manninn minn
hálfgrátandi að ég vissi ekki hvort ég
gæti þetta.“ Þrátt fyrir að Sigga kunni
ekki alltaf réttu handtökin við bú-
störfin þá kemur það ekki að sök, því
maðurinn hennar er öllum hnútum
kunnugur. „Hann er með þetta alveg
í blóðinu, enda fæddur og uppalinn
hérna,“ segir Sigga að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Ég er að finna
mig vel í þessu
en ég varð svolítið miður
mín um helgina þegar
það var verið að senda
lömbin burt.
Fjárbóndar í Jökuldal
Sigga og Alli tóku algjöra
u-beygju í lífinu fyrr á árinu
og gerðust bændur.
Líður vel í sveitinni
Lady, tíkin hennar Siggu,
kann vel að meta sveitalífið.
Vinir Siggu fannst mjög
erfitt að senda lömbin í slát-
urhúsið um síðustu helgi.
Manuela
í París
Tískugyðjan og fyrrverandi feg-
urðardrottning, Manuela Ósk
Harðadóttir, hefur upp á síðkastið
dvalið í París, en hún vann fyrir
fatahönnuðinn Soniu Rykiel á
tískuvikunni, sem stóð yfir frá 23.
september til 1. október. Manu-
ela hefur verið dugleg við að birta
myndir á Instragram af því sem
á daga hennar hefur drifið í borg
tískunnar. Þá hefur hún einnig
birt myndir teknar baksviðs frá
sýningum, en einhverjar þeirra
hefur hún þó fjarlægt.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Manuela starfar fyrir Ryki-
el en hún hún var í starfsnámi
hjá fyrir tækinu fyrr á þessu ári
í tengslum við nám sitt í fata-
hönnun við Listaháskólann.
Stekkur á
milli húsþaka
Það er heldur betur líf og fjör
hjá leikaranum Jóhannesi Hauki
Jóhannessyni sem staddur er
í Marokkó við tökur á banda-
rískum sjónvarpsþáttum. En
spurst hefur út að um sé að ræða
þættina A.D.: Beyond the Bible.
Tökur eru nýhafnar og sam-
kvæmt Facebook-færslu Jóhann-
esar fær hann sjálfur að leika í
áhættuatriðum. „Annar töku-
dagurinn minn er á morgun, þá
fæ ég að stökkva á milli hús-
þaka. Mér var boðin stuntmaður,
en ég sagðist ætla að gefa þessu
séns. En stuntgæjinn verður samt
þarna, just in case,“ skrifaði Jó-
hannes í vikunni. Þá tilkynnti
hann líka að taskan hans hefði
loksins skilað sér, en hún skilaði
sér ekki með fluginu á sama tíma
og hann.
Kynnir nýja
fatalínu
Í dag, föstudag, mun Svala Björg-
vins kynna nýjustu fatalínuna
sína, en hún hannar undir merk-
inu KALI. Nú er komið rúmt ár
síðan hún kynnti fyrstu línuna
undir merkinu og hafa viðtökurn-
ar verið mjög góðar.
Svala er sjálf þekkt fyrir fram-
andi og sérstakan fatastíl, en jafn-
framt mjög glæsilegan. Flíkurnar
frá henni bera þess að sjálfsögðu
vitni, en eru þó þannig að flestar
konur, sem þora, geta borið þær.
Í vikunni birti hún eina mynd
úr línunni á Facebook-síðu sinni
og sagðist vera mjög spennt
að opinbera línuna á föstudag.
Vörurnar frá KALI hafa ver-
ið fáanlegar í netversluninni
Lastashop.com.