Málfregnir - 01.10.1988, Blaðsíða 12

Málfregnir - 01.10.1988, Blaðsíða 12
telja. Samt munu þau orð, sem við höfum tekið traustataki úr íslensku, vera lítilræði á móti innlendum nýgervingum. Til glöggvunar má nefna einn, sem ein- mitt nú er að ryðja sér til rúms: eyð- kvœmi ‘eyðni, AIDS’. Orðið merkir ‘auðnæmi (fyrir smitun)’. Fær. eyð- sam- svarar ísl. auð-, og -kvæmi er hvorug- kynsorð, leitt af lýsingarorðinu kvœmur ‘smitandi’. Höfundur er Hanus Debes Joensen, fyrrum landlæknir, einn okkar ódeigustu orðasmiða. Við myndun ný- yrða höfum við að jafnaði hliðsjón af íslensku, en einnig öðrum Norðurlanda- málum, sérstaklega nýnorsku. En í fyrir- rúmi sitja þeir möguleikar sem í færeysk- unni sjálfri felast. I september 1985 skipaði landsstjórnin færeyska málnefnd sem ber heitið F0r- oyska málnevndin. í nefndinni eru fimm manns, sem landsstjórnin skipar sam- kvæmt tilnefningu frá landsskólastjórn- inni, færeyskudeild Fróðskaparseturs Fproya, móðurmálskennarafélagi, rit- höfundafélagi og blaðamannafélagi. Dag- legt starf annast ritari, sem tekur á móti spurningum í síma frá stofnunum og almenningi. Nefndarfundir eru mánað- arlega. Málnefndin sendir út lítið fjöl- ritað málbréf, Orðafar, sérstaklega ætlað fréttamönnum. Hún tekur þátt í sam- starfi norrænna málnefnda og á fulltrúa í stjórn Norrænnar málstöðvar. Það er álit mitt að sérstaklega ætti að efla samstarfið við íslenska málnefnd því að við eigum svo mörg áhugamál sam- eiginleg sökum skyldleika tungnanna og svipaðra viðhorfa í málstefnu. F0royska málnevndin telur sig með stolti arftaka þeirra sem stofnuðu F0r- ingafelag fyrir tæpri öld. Enn er stefna þeirra í fullu gildi. Enn er brýn nauðsyn að halda traustan vörð um færeyska tungu. 12

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.