Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Hugað verði betur að öryggi
ferðamanna
Arnheiður nefnir að brýnt sé að klára
veginn úr Ásbyrgi og að Dettifossi,
þannig að hægt sé að aka svonefndan
Demantshring – hring með viðkomu
á Húsavík, Mývatnssveit, Dettifossi
og Ásbyrgi – allt árið um kring, en
ferðafólk er ekki síður á ferðinni að
vetrarlagi á þessum slóðum.
„Ferðafólk ekur að Dettifossi
allt árið um kring en áttar sig oft
ekki á veðri og aðstæðum, vegurinn
verður gjarnan ófær vegna snjóa,“
segir hún.
Því komi það aftur og aftur fyrir að
heimamenn og ferðaþjónustuaðilar
þurfi að draga bíla sem sitja fastir í
vegköntum.
„Það er ekki reglulegur
snjómokstur á Dettifossvegi og
það veldur erlendu ferðafólki
oft óþægindum. Þetta er atriði
sem má laga og snýst um öryggi
ferðamanna sem hingað koma. Það
gengur ekki upp að við vinnum að
því að markaðssetja náttúruperlur
á svæðinu og svo er ekki að þeim
almennilegt aðgengi. Þetta eru
ljón sem auðveldlega má ryðja úr
veginum með samstilltu átaki,“ segir
Arnheiður.
Brýnt að nýta uppbygginguna
árið um kring
Arnheiður segir að átakið Ísland allt
árið hafi gengið mjög vel og skilað
umtalsverðum árangri sem mælist
í auknum komum útlendinga til
Íslands yfir vetrarmánuðina.
„Við þurfum núna að huga að
innviðunum, við fáum sífellt fleiri
ferðamenn til landsins en það er
líka mikilvægt að dreifa þeim um
landið, það er ekki fýsilegt að þeir
séu allir á einum og sama staðnum,“
segir hún. Einkum eru það Bretar,
Bandaríkjamenn og eins Þjóðverjar
sem hafa heimsótt landið yfir
vetrarmánuðina að sögn Arnheiðar.
„Þetta skiptir okkur verulegu
máli, það er nauðsynlegt að geta nýtt
þá miklu uppbyggingu sem orðið
hefur í ferðaþjónustunni á svæðinu
yfir lengri tíma en bara sumarið og
það hefur í verulegum mæli tekist.
Það hefur skapað meiri kjölfestu í
ýmsum byggðum á Norðurlandi,
skapað atvinnu yfir lengra tímabil
en áður þekktist og er þannig af hinu
góða fyrir samfélagið.“
Mikill hugur í ferðaþjónustufólki
nyrðra
Arnheiður segir að mikill hugur
sé í ferðaþjónustufólki á svæðinu,
uppbygging hafi verið sérlega mikil
undanfarin ár, gróska, kraftur og
nýsköpun ríkjandi.
„Og við heyrum ekki annað
en framhaldið verði á svipuðum
nótum, margir eru að byggja upp
og gera skemmtilega hluti sem
munu enn auka á framboðið hér
norðan heiða,“ segir hún. Sem
dæmi nefnir hún að á svonefndu
norðurhjarasvæði, Melrakkasléttu,
Þistilfirði og Langanesi sé víða unnið
að undirbúningi þess að taka á móti
fleiri ferðamönnum, en landsvæðið
hefur verið nokkuð afskipt. Breyting
er að verða þar á og æ fleiri sem
leggja leið sína um áður fáfarnari
slóðir.
„Á þessu svæði eru fjölmörg
tækifæri og það verður gaman að
sjá hver þróunin verður, ég er viss
um að vel mun til takast og þetta
verði til framtíðar litið vinsælt svæði
fyrir ferðamenn,“ segir Arnheiður.
Heimskautsgerðið við Raufarhöfn
dregur þegar að sér ferðafólk og þá
stendur einnig til að bæta aðgengi
fólks sem leggur leið sína út á Font
á Langanesi og var nýlega tekinn
í notkun glæsilegur útsýnispallur
við klettinn Stóra-Karl, en þangað
fara margir til að skoða eina stærstu
súlubyggð landsins.
Alltaf eitthvað nýtt og
skemmtilegt að gerast
Fuglaskoðunarferðir njóta vaxandi
vinsælda og það sama má segja
um norðurljósaferðir að vetri til.
Sérferðir ýmiss konar hafa verið
að ryðja sér til rúms og nefnir
Arnheiður í því sambandi ferðir á
tökustaði bandarísku þáttaraðarinnar
Game of Thrones. Þó nokkur fjöldi
ferðalanga hafi komið sérstaklega til
landsins til að skoða tökustaðina og
þeim eigi eftir að fjölga.
„Það er alltaf eitthvað nýtt og
skemmtilegt í gangi, sífellt að
bætast við það sem fyrir er og við
njótum vissulega góðs af því,“ segir
hún. Þá hafa ferðir sem tengjast
matarmenningu svæðisins notið
vinsælda.
Mikil þróun er einnig varðandi
skíðasvæðin á Norðurlandi og þá
ekki aðeins skipulögðu skíðasvæðin
heldur ekki síður gönguskíðaleiðir
og ósnert fjöll sem draga til sín
ævintýramenn víða úr heiminum.
Viðburðir sem tengjast
vetrarævintýrum og skíðamennsku
eru í boði og æ fleiri sækja þá.
Yfir sumarið er fjöldi hátíða í
boði, bæjarhátíðar hér og hvar í
þéttbýlisstöðum sem flestar eiga það
sameiginlegt að laða að sér mikinn
fjölda gesta. Þá eru tónleikar ófáir
og listviðburðir af fjölbreyttu tagi
sem bæði innlendir og erlendir
ferðamenn sækja í auknum mæli.
Fjölgun kallar á úrbætur á
ferðamannastöðum
Umræður hafa síðustu misseri verið
um þörf á því að koma á eins konar
náttúrupassa eða ferðakorti og
hefur nefnd á vegum iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytis verið að störfum
í vetur ásamt hagsmunaaðilum við að
útfæra hugmyndir um slíkan passa
nánar. Gera má ráð fyrir að tillögur
nefndarinnar liti dagsins ljós næsta
haust. Arnheiður segir umræður af
því tagi koma upp í kjölfar þess að
erlendum ferðamönnum hér á landi
fjölgi ár frá ári og því sé ekki að neita
að mikill ágangur sé á vinsælum
áningarstöðum.
„Það er alveg ljóst að við verðum
að halda vel utan um þær perlur
sem við eigum hér á landi og sú
mikla aukning sem verið hefur og
spár um áframhaldandi aukningu
erlendra ferðamanna á næstu árum
kallar á að úrbætur séu gerðar á
fjölsóttum ferðamannastöðum,“
segir Arnheiður.
„Við verðum líka að undirbúa
okkur fyrir þann mikla fjölda sem
hingað mun sækja á komandi árum,
okkar helstu ferðamannasvæði verða
að geta borið allan þann mannskap
sem sækir inn á þau.“
Þegar er búið að úthluta þó
nokkurri upphæð til að standa straum
af brýnum úrbótum á fjölsóttum
ferðamannastöðum og segist
Arnheiður fagna því.
Betra að bregðast við áður en í
óefni er komið
Arnheiður segir að svæði á
norðanverðu landinu séu enn sem
komið er ekki í slæmu ástandi, en
hins vegar sé rétt að bregðast við
áður en í óefni er komið.
„Það er betra að forðast það að
lenda í vanda áður en þetta ástand
kemur upp. Auðvitað kostar mikla
peninga að byggja svæðin upp og
einstaklingar og eða sveitarfélög
hafa til þess lítið bolmagn ein og sér.
Að mínu mati skapar það neikvætt
andrúmsloft að rukka ferðamenn
um peninga á hverjum stað fyrir
sig, það er ótækt. Mér þykir því
mikilvægt , verði af því að tekin
verði í notkun náttúrupassi hér á
landi, að hann verði miðlægur, féð
hafi allt í einn sjóð sem síðan er
hægt að fá úr stuðning til að vinna
að uppbyggingu,“ segir Arnheiður.
„Það er í rauninni mikið
þjóðþrifamál að hefjast þegar handa
við úrbætur og verkefnin eru næg,
það er mjög brýnt að byrja strax
og horfa þá til framtíðar þannig að
uppbygging eigi sér ekki aðeins stað
á stöðum sem eru fjölfarnir nú þegar
heldur byggjum við upp með það
að markmiði að fjölga vinsælum
áfangastöðum. Hún bætir við að
mikilvægt sé að um þetta náist
samstaða þeirra sem í greininni
starfa. Að sátt verði um þá leið sem
farin verður. /MÞÞ
www.rekstrarland.is Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
16
71 EVANS hreinlætisvörurnar henta mjög vel fyrir kúa-, svína- og
alifuglabændur, sem og fisk- og matvælavinnslur. Vörurnar frá
EVANS eru í fremsta gæðaflokki enda eru þær unnar eftir
vottuðum aðferðum skv. ISO gæða- og umhverfisstöðlum.
Hjá Rekstrarlandi fá bændur auk þess allar aðrar rekstrarvörur
fyrir landbúnað.
EVANS hreinlætisvörurnar
eru nú fáanlegar í Rekstrarlandi
Aðrir dreifingaraðilar: Olís útibú, KB – Búrekstrardeild, Borgarnesi
og Pálmi Ragnarsson – Garðakoti, Skagafirði.
Opið: mán.- fös. 8-18 og lau. 10-13 Sími 455 4610
Griptengi
Auðveld leið til að girða
• Setur saman víra og strekkir
á sekúndum.
• Ekki þarf að hnýta eða vefja saman
erfiða víra.
• Upplagt fyrir hraðar og hagkvæmar
viðgerðir.
• Auðvelt að endurstrekkja ár eftir ár.
Endursöluaðilar:
Kaupfélag Borgfirðinga, KM þjónustan, Jötunnvélar,
BYKO, Húsasmiðjan, Kaupfélag Vestur Húnvetninga,
Bústólpi og verslanir Fóðurblöndunnar.
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.