Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Finnsku matreiðslumennirnir sem taka þátt í Food & Fun.
Íslensk hugmyndafræði löguð að finnsku umhverfi:
Food & Fun í Finnlandi
– Tíu veitingastaðir í Turku þátttakendur í hátíðinni
Food & Fun verður haldið
í Finnlandi 1. til 5. október
næstkomandi, í Turku. Borgin
er álíka stór og Reykjavík,
eilítið fjölmennari þó, og er á
suðvesturströnd Finnlands.
Mikill áhugi er á hátíðinni og
munu tíu veitingastaðir taka þátt
í Food & Fun í Finnlandi.
Siggi Hall, frumkvöðull og
skipuleggjandi Food & Fun á Íslandi
ásamt Baldvini Jónssyni, hefur
unnið að skipulagningu hátíðarinnar
fyrir hönd viðburðafyrirtækisins
Main Course sem hefur umsjón
með verkefninu í Finnlandi, rétt
eins og á Íslandi.
„Það hefur verið mikill áhugi á
Food & Fun hjá Finnum undanfarin
ár. Í fyrra komu um 70 manns frá
Finnlandi til Íslands bara til að
vera á hátíðinni og útlit fyrir enn
frekari fjölgun í ár. Við höfum
átt í þó nokkrum samskiptum við
Finnana og þau samskipti urðu til
þess að þessi hugmynd kom fram,
að halda Food & Fun í Turku. Ég
var gestakokkur á veitingastað í
Turku í fyrrasumar og þá hófust
þessar umræður fyrir alvöru. Svo
ákváðum við bara að slá til og gera
þetta, það var ákveðið núna í apríl
eða maí síðastliðnum. Við erum því
bara að vinna að því að setja upp
hátíð með sömu hugmyndafræði og
við höfum beitt hér heima en aðlaga
hlutina þó að finnsku umhverfi.“
Turku svipuð Reykjavík
Siggi segir Turku henta mjög
vel fyrir Food & Fun hátíðina.
Borgin sé lifandi, þar sé vaxandi
ferðamannaiðnaður og uppbygging
í veitingageiranum. Í Turku er
stór ferjuhöfn sem mikil umferð
fer um á hverjum degi, ferjurnar
sigla þaðan til og frá Svíþjóð og
Álandseyjum.
„Turku er borg sem er býsna
svipuð og Reykjavík. Íbúar eru
ungir og framsæknir, það er mikið
af nýjum veitingastöðum og um
margt hentar borgin vel fyrir Food
& Fun hugmyndafræðina.“
Mikil Íslandshátíð
Að sögn Sigga verður hátíðin
í Finnlandi þó aðeins minni í
sniðum en hún hefur verið hér á
landi síðustu ár.
„Þetta verða ekki nema tíu
veitingastaðir sem taka þátt. Það
koma hins vegar matreiðslumenn
víðs vegar að líkt og hér heima,
frá Íslandi, Norðurlöndunum og
frá Ameríku og verða gestakokkar
á veitingastöðunum. Þeir munu
svo keppa sín á milli líkt og
hér heima. Samtímis verður
haldin stór Erró-sýning í Turku
þannig að það verður talsverð
Íslandstenging þarna. Íslenska
sendiráðið í Finnlandi verður
virkur þátttakandi og auðvitað
Icelandair, en hátíðin verður
meðal annars haldin í samstarfi
við þá. Það er mikill og góður
hótela- og veitingaskóli í Turku-
borg og þangað fer sendinefnd
frá Hótel- og matvælaskólanum
í Kópavogi, bæði nemendur og
kennarar, til að kynna hvað er að
gerast hér á landi í þeim efnum og
hugsanlega með nemendaskipti í
huga. Auk þess verður haldin þarna
matarbókamessa á sama tíma. Það
verður því mikið um að vera.“
Áhugi á íslensku lambakjöti
Siggi segir að íslenskur
landbúnaður og matur muni leika
hlutverk á hátíðinni.
„Skyrið okkar íslenska er
náttúrulega gríðarlega vinsælt í
Finnlandi og svo er mikill áhugi á
íslenskum fiski, ekki síst bleikju.
Finnar hafa svo töluverðan áhuga á
að fá íslenskt lambakjöt enda liggur
framtíð þess í útflutningi eins og ég
hef oft sagt. Finnland er í raun ekki
mikið matvælaframleiðsluland
og því eru að mínu viti miklir
möguleikar í útflutningi þangað
út, að koma vörum á framfæri.
Þannig er Food & Fun, það er alltaf
íslenskt og til að koma Íslandi og
íslenskum vörum að á heimsvísu.“
Aldrei að vita hvað gerist næst
Siggi vill ekki tala um útrás Food
& Fun, enda sé orðið útrás komið
með svo vondan stimpil á sig að
það sé varla að menn þori að nota
það.
„Þetta er engin útrás, við slógum
bara til og ákváðum að gera þetta.
Það hafa komið upp hugmyndir
um Food & Fun í öðrum borgum
og þær eru margar góðar. Ef þetta
gengur vel er aldrei að vita hvað
gerist næst.“
/fr