Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Hver borgar forvarnir?
Ef notaður er veraldarvefurinn
til leitar á forvörnum hjá
bændasamfélögum erlendis
kemur í ljós að alls staðar
kemur meginþungi forvarna
frá heilbrigðisyfirvöldum en
ekki frá viðkomandi bænda-
samtökum. Í flestum tilfellum
kemur fjármagnið og vinnan
frá ráðuneytum sem tilheyra
heilbrigðismálum. Í síðustu
forvarnaskrifum var talað um
samtök ungra bænda í Englandi
og skoðanakönnun á vegum
heilbrigðisyfirvalda þar sem kosta
megnið af forvörnum í Englandi.
Í norðanverðum Bandaríkjunum
og Kanada er mikil áhersla lögð á
að fræða börn. Börnin koma síðan
skilaboðunum inn á heimilin stolt
af því sem þau lærðu í skólanum
og á leikskólanum.
Kennsluefni sem skilar árangri
National Children´s Center var
stofnað fyrir um fimmtán árum og
var ætlað að leggja ofuráherslu á að
fækka slysum barna í landbúnaði.
Stofnunin tekur saman öll slys (stór
og smá) og gefur út á tveggja ára fresti
tvö A4-blöð sem eru kennsluefni
fyrir börn í dreifbýli á aldrinum
4-10 ára. Börnin eru látin læra þessar
tölulegu staðreyndir og taka próf,
fá síðan viðurkenningarskjal að
námi loknu. Frá 1998 þegar þetta
var gert fyrst hefur öllum slysum
í landbúnaði fækkað (ekki bara
börnum, fullorðnum líka). 37.774
slys voru í bandarískum landbúnaði
árið 1998, þá slösuðust að jafnaði
16,6 af hverjum 1.000 sem störfuðu
við landbúnað, en 2012 voru slysin
komin niður í 13.996. Árangurinn
2012 var kominn niður í 6,4 slasaða
af hverjum 1.000. Þessa miklu
fækkun slysa má mikið til þakka
þeim áróðri sem National Children´s
Center hefur náð í gegn um fræðslu
frá leikskólum og barnaskólum. Hægt
er að tengjast National Children´s
Center á vefsíðunni www.nagcat.org
en þar er mikinn fróðleik um ýmsar
forvarnir í landbúnaði að finna.
Hugmyndafræðin frá baráttunni
um notkun öryggisbelta
Á áttunda og níunda tug síðustu aldar
gekk mjög illa að fá Bandaríkjamenn
sem voru komnir á og yfir miðjan
aldur til að nota öryggisbelti við
akstur bíla. Það var ekki fyrr en að
búið var að fræða börn á nokkrum
leikskólum um hversu hættulegt væri
að ferðast um í bílum án öryggisbelta
að aðferðafræðin datt fyrir þá.
Börnunum var kennt nógu snemma
hvar hætturnar væru og þau komu
skilaboðunum með sinni ákveðnu
áherslum. Það var einfaldlega ekki
annað hægt annað en að hlýða
börnunum svo að pabbi, mamma,
afi og amma voru farin að spenna
beltin vegna áróðurs barnanna.
Þessi hugmynd var síðan þróuð út
í að börnin sem læra um hætturnar
í landbúnaði kæmu heim með
fróðleikinn og deildu honum þar.
Auðvelt að heimfæra þetta
upp á Ísland
Föstudaginn 30. maí var sláandi
forsíðufrétt í Fréttablaðinu um hvað
Íslendingar verja litlu til forvarna.
Sagði þar orðrétt: „Mælikvarðar
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) sýna að fórnarkostnaður
vegna lífsstílssjúkdóma á Íslandi
er ógnarhár.“ Eitthvað hefur
heilbrigðisráðherra Kristján Þór
skammast sín því að daginn eftir
í hádegisfréttum Bylgjunnar var
haft eftir honum loforð um að bæta
við fjármagni til forvarna. Auðvelt
ætti að vera fyrir björgunarsveitir
landsins í samstarfi við ríki að fara
í alla grunnskóla landsins með
grunnnámskeið í slysavörnum
og skyndihjálp. Það ætti að vera
auðvelt að útbúa stutt námsefni um
hinar ýmsu hættur sem eru jafnt í
þéttbýli sem dreifbýli. Eitt er öruggt;
að miðað við það sem ég hef skoðað
á veraldarvefnum um öryggi, heilsu
og forvarnar í erlendum landbúnaði
væri hægt að gefa Íslandi 0,1 í
einkunn þegar aðrar þjóðir eru með
einkunnina á bilinu 6,0 til 8,0.
liklegur@internet.is
Hjörtur L. JónssonÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Er bogveiði möguleg á Íslandi?
Margir hafa velt því fyrir sér
hvort Ísland henti fyrir bogveiðar.
Í Kanada, Alaska, Grænlandi og
víðar eru aðstæður svipaðar og
hér heima og ætti því ekki að
vera síður hægt að veiða með boga
hér en þar, en eins og staðan er á
Íslandi í dag er óheimilt að nota
boga og ör við veiðar.
Mælt með að stofnaður verði
starfshópur
Á Íslandi er ekki til opinber skoðun
á bogveiðum, þar sem ekki hefur
farið fram úttekt á þessu málefni hjá
yfirvöldum. Bogveiðifélag Íslands
óskaði eftir því við umhverfisráðherra
2011 að gerð yrði úttekt á málinu.
Umhverfisstofnun var falið að sjá um
það, umsögn UST var mjög jákvæð
en þar var lagt til að stofnaður yrði
starfshópur sem færi yfir málið.
Í skýrslu nefndar um endurskoðun
á veiðilöggjöfinni er það einnig lagt
til. Þrátt fyrir það þá hafa yfirvöld
ekki séð sér fært að stofna starfshóp
og enn er lítið um svör og ferlið
gengið frekar hægt fyrir sig og hefur
það helst strandað á ákveðinni gerð
af örvaoddum til æfinga og veiða.
Ljóst er að oddarnir skipta ekki máli
með stofnun á starfshópi, þeir skipta
aðeins máli ef prufuveiðar yrðu
leyfðar og til æfinga.
Mismunun
Yfirvöld túlka núverandi
vopnalöggjöf þannig að ekki sé
heimilt að flytja inn, ákveðna gerð
af örvaroddum sem notaðir eru til
æfingar/keppni í vissum greinum
bogfimi og við veiðar erlendis. Í
grunninn þá eru allir örvaroddar
æfingaroddar. Samkvæmt lögum er
talað um odda til æfingar og keppni
og er tilgangurinn ekki annar en að
æfa og keppa þar sem veiðar eru ekki
leyfðar. Það er hins vegar heimilt
að flytja inn stærri riffla en löglegir
eru hér, með undanþágu til að veiða
erlendis og æfinga á skotsvæðum
á Íslandi, með öllum tegundum
skotfæra, en ekki má flytja inn þessa
tilteknu örvarodda til æfinga og veiða
erlendis á sömu forsendum. Þarna
er um augljósa mismunun á milli
þess hvaða verkfæri menn kjósa til
veiða erlendis. Að geta æft með þeim
verkfærum sem nota skal við veiðar
er grunn forsenda þess að hægt sé
að fella veiðidýr hratt og örugglega.
Rannsóknir og fleira
Í Danmörku hafa farið fram
rannsóknir á bogveiði síðan 1999
af hálfu danskra yfirvalda og eru enn
í gangi sem sýnir að við veiðar með
nútíma bogum og örvaoddum er
hlutfall særðra dýra jafn mikið, og ef
eitthvað er lægra en við skotveiðar.
Bogi og ör er í dag leyfilegt veiðitæki
til jafns við skotvopn samkvæmt
Evrópusambandinu og er tilgreint
sem slíkt í European Charter
on Hunting and Biodiversity. Í
þeim löndum þar sem leyft er að
veiða með boga þarf veiðimaður
að hafa lokið IBEP-námskeiði,
sem er alþjóðlegt námskeið fyrir
bogveiðimenn sem er haldið af
landssamtökum bogveiðimanna í
hverju landi fyrir sig.
Bogveiði er nú leyfð
rétt við túnfótinn
Á Grænlandi voru bogveiðar leyfðar
á sauðnaut árið 2012 og á hreindýr
árið 2013, en auk þess víðar á
Norðurlöndunum. Öll þau leyfi sem
hafa boðist fyrir bogveiði hafa selst
upp og er mikil eftirspurn. Heyrst
hefur að erlendir veiðimenn á leið til
Íslands séu að spyrja hvort bogveiði
sé leyfð á Íslandi og vilji nota boga
og ör við veiðar.
Veiðistjórnunartæki
Sveitarfélög og borgir í Evrópu
eru farnar nota boga og ör sem
veiðistjórnunartæki þar sem að
notkun skotvopna er yfirleitt
óheimil í þéttbýli. Ekki þarf að
horfa út fyrir landsteinanna þar sem
þessi veiðiaðferð gæti hentað, t.d.
í Reykjavík en þar er nú að fara í
gang verkefni til að stemma stigu
við fjölgun á kanínum.
Umhverfisvænt, lítil truflun á
dýraríki
Ekki er hægt að líkja saman veiðum
með boga og skotvopnum sem sagt
með tilliti til afls skotfæra og lengd
færis þar sem þetta er sitthvor
hluturinn í notkun og ákomu
en skotveiðimenn hafa haft þá
tilhneigingu að bera saman hraða
á veiðiör og veiðikúlu og ályktað
út frá því.
Svipað og með
stangveiðimanninn
Það er von Bogveiðifélag Íslands að
yfirvöld sjái sér fært að skoða þessi
mál sem fyrst sem og að íslenskum
veiðimönnum verði gert kleift að
stunda bogveiðar erlendis jafnt á við
skotveiðimenn, einnig í ljósi þess
að um 95% bogveiðimanna byrja
sem skotveiðimenn en færa sig svo
yfir í bogveiðina. Hægt væri að líkja
þessu við stangveiðimanninn sem
byrjar á maðki eða spún en færir sig
svo í fluguveiðina.
Indriði R. Grétarsson
Formaður Bogveiðifélag
Íslands.. http://bogveidi.net/
Indriði R. Grétarsson, formaður
Bogveiðifélags Íslands.
Í þeim löndum þar sem leyft er að veiða með boga þarf veiðimaður að hafa lokið IBEP-námskeiði, sem er alþjóðlegt
námskeið fyrir bogveiðimenn sem er haldið af landssamtökum bogveiðimanna í hverju landi fyrir sig.
Lesendabás