Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Toyota Land Cruiser 150 VX túrbó dísil:
Kraftmikill og traustur jeppi
Ef verið er að leita að bíl sem hefur
mikið pláss, góður til langkeyrslu,
fjórhjóladrifin, áreiðanlegur og
endingargóður kemur hjá mér
fyrst upp í hugann Toyota Land
Cruiser. Þó að ýmsir aðrir bílar
komi til greina er Land Cruiser
fyrsta val miðað við fjölda bíla
á götunum, lága bilanatíðni og
vinsældir.
Margar útfærslur og stærðir á
Land Cruiser
Helgina 24. og 25. maí var stórsýning
hjá Toyota og fór ég þangað með það
í huga að prófa Land Cruiser. Það
var auðfengið mál að fá bíl, en hvaða
tegund og stærð? Land Cruiser er
fáanlegur í mörgum útfærslum og
með mismunandi vélar. Ég kaus að
taka bíl sem nefnist: Land Cruiser
VX túrbó dísil, sjálfskiptur og er
með 190 hestafla vél. Eintakið
sem ég prófaði kostar 13.330.000
en ódýrasta útgáfan af 150 bílnum
með 190 hestafla dísilvélinni er frá
9.920.000 en sá dýrasti er 4,0 lítra
bensínbíll með 282 hestafla vél og
kostar 14.690.000.
Einstaklega þægilegur í akstri
og umgengni
Öll stjórntæki eru á mjög
þægilegum stöðum og tölvubúnaður
auðveldur að læra á. Hljómgæði
frá hljómtækjunum eru einhver
þau bestu sem ég hef heyrt í bíl,
en samkvæmt auglýsingabæklingi
eru JBL hátalarar í bílum sem voru
sérhannaðir til að flytja sem tærastan
hljóm inni í bílnum. Í bílnum var
leiðsögukerfi (eins og mörgum
nýjum bílum), það fór aðeins í
taugarnar á mér að Íslandskortið var
vitlaust og sagði að hámarkshraðinn
á Reykjanesbraut væri 70, en er í
raun 80.
Á 77 km hraða byrjaði allt í einu
konurödd að skammast á ensku að
ég væri að keyra of hratt. Ekkert
dugði að segja henni að þegja, nema
hvað að hún snarþagnaði þegar ég
lækkaði hraðann niður fyrir 70.
Ég bauð syni mínum í bíltúr og
hann var fljótur að hræra í tölvu
leiðsögukerfisins með þeim árangri
að ekki heyrðist meira nöldur um
hraðakstur.
Á þrettán milljón króna bíl spyr
maður ekki um eyðslu
Ég ók bílnum ekki mikið, en samt
nóg til þess að finna hvernig hann
er á möl,vegslóða og á malbiki. Á
malbiki er hann ekkert ósvipaður í
akstri og fólksbíll, liggur vel og leitar
lítið ofan í hjólförin á slitnu malbiki
stofnbrautanna hér í Reykjavík. Á
grófum malarvegi finnur maður
hvað hljóðeinangrunin er góð því
að malarvegahljóð er sáralítið inni
í bílnum, en ef opnuð er hliðarrúða
heyrist vel skruðningarnir í mölinni
undir hjólbörðunum.
Hrifnastur var ég af fjöðruninni
fyrstu 10 cm, en ef ekið var í stórar
holur voru svolítil högg (þess má
geta að flestum bílum sem ég prófa
ek ég sama grófa malarvegastubbinn
til að fá samanburð).
Þegar maður er á bíl sem kostar
yfir 10 milljónir á maður ekki að vera
að tala um eyðslu, en hún uppgefin í
bæklingi 8,1 lítrar á hverja hundrað
kílómetra á þessum bíl, en ég var að
eyða 11,5 lítrum á þessum 77 km
sem ég ók og meðalhraðinn á mér
var 32 km. á klukkustund. Það er
eflaust fyrir einhverjum mikil eyðsla
hjá mér, en ég var að prófa bílinn
á malarvegslóðum og að athuga
snerpu og viðbragð svo að ég afsaki
mína eyðslu. Hún var samt að mínu
mati ekkert óeðlilegt og ef eitthvað
er hefði mátt búast við að eyðslan
hjá mér væri meiri.
Innrétting og pláss inni í bíl
til fyrirmyndar
Að sitja inni í bílnum í akstri er hreint
frábært, manni líður næstum of vel,
sem gæti verið hættulegt í langakstri
fyrir þá sem eru gjarnir á að dotta
undir stýri. Alls staðar eru hirslur
fyrir smáhluti, kaffimál og hólf fyrir
ýmsan smávarning. Aftursætin eru
óvenju vönduð miðað við flesta aðra
bíla sem ég hef prófað og plássið
aftur í bílnum er með allra mesta
móti. Gæti ímyndað mér tveggja
metra menn sitja í aftursætaröðinni
án kvartana, allavega fannst mér ég
vera ansi lítill sitjandi í aftursætinu.
Ég er mikill speglamaður og á
þessum bíl eru einhverjir stærstu
hliðarspeglar sem ég hef séð á
jeppa, en innispegillinn var ekkert
sérstakur. Fyrir ofan innispegilinn er
þó góður spegill sem ætti að vera í
öllum bílum. Spegillinn er í boga og
sér ökumaður alla sem inni í bílnum
eru mjög vel. Ég hef aðeins tekið
eftir þessu einu sinni áður í bíl sem
ég hef prófað.
Átján tommu felgurnar á sumrin,
17“ felgur fyrir vetrardekkin
Allt fannst mér gott við bílinn og
ekkert út á hann að setja, en ég er
ekkert yfir mig hrifin af 18 tommu
felgum og dekkjunum sem í boði
eru fyrir þær, ekki síst þegar maður
sér bíla sem geta verið á minni
felgum (16 eða 17 tommu felgum).
Ef einhver ætlar að fá sér svona bíl
og vera með auka sett af felgum
með vetrardekkjum, fáðu þér eins
litlar felgur og undir bílinn komast.
Þannig fæst betri fjöðrun með
hærri hjólbörðum sem gefa eftir
í klakahröngli og öðru sem fylgir
vetrarakstri. Allar nánari upplýsingar
um Toyota Land Cruiser 150 má
finna á vefslóðinni www.toyota.is.
Lengd: 4.780 mm
Hæð: 1.580 mm
Breidd: 1.845 mm
Þyngd: 2.990 mm
Verð frá 9.920.000 til 14.690.000 kr.
Land Cruiser VX turbó dísil. Myndir / HLJ
Hátt er undir bílinn, sem hentar vel á niðurgröfnum slóðum.
Innréttingin var ekki í lakari kantinum, næstum of fín fyrir minn smekk.
Mikið er af litlum hólfum í bílnum.