Bændablaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Landlæknir mælir áfram með
að skipta út mettaðri fitu fyrir
fjölómettaða fitu
Bændablaðið sendi Embætti
landlæknis nokkrar spurningar um
þessi mál þann 26. maí síðastliðinn.
Svar barst frá embættinu
mánudaginn 2. júní síðastliðinn
og var það undirritað af Hólmfríði
Þorgeirsdóttur og Elvu Gísladóttur
verkefnisstjórum næringar hjá
Embætti landlæknis.
Í fyrsta lagi var spurt um
afstöðu embættisins til rannsókna
Keys sem hafi verið grundvöllur
lýðheilsustefnu um allan heim.
Í svari embættisins er vísað
í nýlega grein á heimasíðu
embættisins: þar er í fyrirsögn
áfram mælt með að að skipta út
hluta af mettaðri fitu fyrir ómettaða
fitu. Þar kemur einnig fram að nýja
rannsóknin hafi líka fengið mikla
gagnrýni og í kjölfarið hafi villur
verið leiðréttar.
Einnig er vísað í grein á vefsíðu
embættisins þann 23. janúar 2014,
þar sem lagt er til að haldið verði
þeim góða árangri sem náðst hafi í
mataræði þjóðarinnar. Þá var spurt:
–Hefur læknismenntun undan-
farna áratugi hér og landi og
víðar haft niðurstöður rannsókna
Keys að leiðarljósi hvað varðar
að tengsl séu á milli fituneyslu og
hjartasjúkdóma? Ef svo er, munu
þessi tíðindi hafa einhver áhrif á
læknisfræðikennsluna?
„Kennsla háskólanema í
læknisfræði er á ábyrgð kennara
á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla
Íslands, en ekki Embættis
landlæknis,“ segir í svari
embættisins.
–Hafa viðtekin lýðheilsumarkmið
um minni neyslu á fitu mögulega
leitt til skaðlegri neyslu á öðrum
orkugjöfum eins og til dæmis sykri?
„Varðandi breytingar í neyslu-
mynstri þá sýnir meðfylgjandi tafla
(hér að ofan) yfirlit yfir breytingar í
hlutfalli orkuefna (%E) miðað við
ráðleggingar frá árinu 1990-2011,
tölur byggðar á landskönnun á
mataræði fullorðinna. Eins og
sést á töflunni þá jókst viðbættur
sykur úr 8% orkunnar 1990 í
10% orkunnar 2002. Stærsti hluti
viðbætta sykursins 2002 kom úr
sykruðum gos- og svaladrykkjum
og sælgæti. Hlutfall viðbætts sykurs
af orkunni lækkaði síðan aftur í 9%
árið 2010-2011."
Ráðleggingar embættisins í
endurskoðun
– Eru uppi einhver áform um að
endurskoða lýðheilsumarkmið hér
á landi í ljósi þessara tíðinda?
„Ráðleggingar Embættis
landlæknis um mataræði og
næringarefni eru í endurskoðun.
Þær byggja að stórum hluta á nýjum
norrænum næringarráðleggingum
sem kynntar voru í október sl. (NNR
5), öðrum rannsóknum á sambandi
næringar og heilsu og niðurstöðum
kannana á mataræði Íslendinga,
bæði barna og fullorðinna.
Í NNR 5 er lögð áhersla á
mataræðið í heildina frekar en
einstök næringarefni. Mælt er
með mataræði sem einkennist
af mat úr jurtaríkinu, sem er
trefjaríkur frá náttúrunnar hendi,
til dæmis dökkgrænu blaðgrænmeti,
káli, lauk, baunum og ertum,
rótargrænmeti, ávöxtum og berjum,
hnetum og heilkornavörum, ásamt
fiski og fituminni mjólkur- og
kjötvörum en takmarkaðri neyslu
á unnum kjötvörum, sykri, salti og
áfengi. Lögð er áhersla á gæði fitu
og kolvetna frekar en heildarmagn.
Mælt er með að skipta út hluta
af mettaðri fitu fyrir ómettaðar
fitusýrur (bæði fjölómettaðar og
einómettaðar) en þannig má minnka
áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum.
Þetta má gera með því að takmarka
neyslu á kexi, kökum, sælgæti og
snakki, skipta út feitum kjöt- og
mjólkurvörum fyrir fituminni
vörur og nota olíur í staðinn fyrir
smjörlíki og smjör,“ segir að lokum
í svari Embættis landlæknis.
/HKr.
Æðarbændur
Erum byrjuð að taka á móti og hreinsa dún.
Greiðum flutningskostnað fyrir allan dún
hvaðan sem er af landinu sem berst til okkar
land- eða sjóveg í hreinsun og sölu.
Gerum upp strax að hreinsun lokinni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Erla Friðriksdóttir í síma 899 8369
& erla@kingeider.is
ÍSLENSKUR ÆÐARDÚNN
Dúnhreinsun Nesvegi 13 Stykkishólmi
Sölumenn okkar eru sammála um að þetta sé skemmtilegasta ámoksturstækjavél sem þeir hafa prófað.
Komið og reynsluakið þessum einstaka traktor hjá okkur á Krókhálsi 16
í Reykjavík eða á Lónsbakka á Akureyri.
99 ha, 4 lítra, 4 strokka Deutz mótor með forþjöppu
og millikæli
Stiglaus skipting frá SDF - engir gírar, aldrei að kúpla
Skriðstillir (Cruise Control)
Kúplingsfrír vendigír með stillanlegu átaki.
Rúmgott 4 pósta hús með topplúgu.
Loftpúða fjöðrun á ökumannssæti
Farþegasæti
93 lítra vökvadæla og sér dæla fyrir stýri
3 tvöföld vökvaúrtök (6 stútar), rafstýrð
Vegna sterkara gengis og hagstæðra samninga getum við nú boðið
Detuz Fahr Agrofarm 420 á afar hagstæðu verði.
Þ Ó R H F | R e y k j a v í k : K r ó k h á l s i 1 6 | S í m i 5 6 8 - 1 5 0 0 | A k u r e y r i : L ó n s b a k k a | S í m i 5 6 8 - 1 5 5 5 | w w w. t h o r. i s
Deutz Fahr Agrofarm 420 TTV með STOLL FZ-10 ámoksturstækjum
- Ein þægilegasta tækjavél sem völ er á.
DEUTZ-FAHR
Agrofarm 420 TTV
Útskjótanlegur dráttarkrókur
5.300 kg. lyftigeta á þrítengi. Rafstýrt beisli.
100% driflæsing að framan og aftan.
ASM drifstýring, slær út driflæsingu og 4WD
við ákv. hraða og beygju
3 hraða aflúrtak 540/540E/1000
Sjálfvirkt aflúrtak, slekkur á sér þegar beisli er lyft
Michelin flotdekk, 480/65R24 að framan,
540/65R34 að aftan.
STOLL FZ10 ámoksturstæki, með servo stýringu,
3. sviði og dempun
ÞÓR HF