Jökull - 01.12.1961, Blaðsíða 16
2. mynd. Einnar nætur hrím á þrífæti horna-
mælisins. — One nights hoar-p'ost on a tiipod
standing on Svíahnúkur eystri in 1719 m height.
Ljósm.: S. Þórarinsson 18. júní 1961.
Inniseta allan daginn. Hleri var sagaður úr
skálagólfi og mældist hitinn í vikrinum undir
110 C. Það eðla spil Ólsen var spilað af kappi
lengi dags af öllum nema Steingrími, sem hafði
sjálfur kjörið sig stórmeistara þessa spils. Hann
lá liingum uppi í efri koju, talaði af reigingi
og sagði það undir sinni virðingu að spila við
neinn þann, er ekki hefði borið sigurorð af öll-
um hinum.
Upp úr miðaftni tók að rofa til, og í von
um að vinnuveður yrði þjóðhátíðardaginn, og
þá væntanlega enginn tími til hátíðarhalda, var
ákveðið að taka út forskot á sæluna og halda
nú þegar upp á 150 ára afmæli forsetans Jóns
með Jreim föngurn matar og drykkjar, er til
þess höfðu verið spöruð. Kl. 21.30 var orðið
nær albjart og var þá veizlu slitið í skyndi og
fóru allir á skíði og skyldi nú haldið niður í
lægðina austur af Grímsvötnum og þess freistað
að finna járnmastrið, sem Jrar hafði verið reist
af Sigurjóni haustið áður. Var allglæfra-
legt að sjá á eftir sumum niður brekkurnar
bröttu austan í Svíahnúknum, en járnmastrið
fundum við og stóð það enn 173 cm upp úr
snjónum, en 670 cm þ. 9. okt. 1960, nettó ákoma
497 cm, en þegar mastrið var reist var
þegar komið 60 cm lag af nýsnævi, svo að
heildarákoman frá því snjóa byrjaði haustið
1960 er 557 cm. Er þetta í fyrsta skipti sem
möstur, sem sett hafa verið niður á íslenzka
jökla að liausti, liafa fundizt uppistandandi að
vori.
17. júní. — Veður kl. 9.00, logn, -f- 0.5° C,
léttskýjað; kl. 18.00 NV 8, -4- 3.3° C, skafrenn-
ingur.
Steingrímur og félagar lians byrjuðu mæling-
ar sínar þenna rnorgun og lá fyrst fyrir að mæia
grunnlínu niðri á sléttunni norður af Svíahnúk
og hæðarmismun hennar og landmælingamerk-
isins á Svíahnúk. Við liinir fórum inn í Gríms-
vötn að mæla snið það, sem ár hvert er nú mælt
milli Gríðarhorns og Depils, og liækkun vatns-
yfirborðs við Depil og móbergskollana Litla
og Stóra Mósa. Með augnspegfi mældist kollur
Litla Mósa 37 m yfir vatnsborði, en kollur
Stóra Mósa 50 m. Hækkun vatnsborðs írá því
12. júní 1960 nam 24 metrum eða 6.5 cm á dag
að meðaltali. Mjög svipuð hækkun fékkst með
því að mæla hæðina upp á Depil með flugvél-
arhæðarmæli. Undir Gríðarhorni sást hvergi til
vatns. Yfirborð Grímsvatna var mjög slétt, svo
sem venjulega er á vorin. Náði sléttan inn að
Svartabunka. Ekkert sást til gufuhversins í krik-
anuni norðaustur af Mósa. Inni í Grímsvötnum
mátti heita gott veður, en er við komum til land-
mælingamanna kl. 16 höfðu þeir haft norðan
strekking og skafbyl síðan kl. 13 og ekkert get-
að aðhafst. Bíll þeirra, Jökull II, var bilaður,
og áður en hann komst í lag var komið versta
veður og varð Jtví að skilja hann eftir og áttum
við nóg með að koma okkur og Kugg upp á
Grímsfjall.
18. júní. - Veður kl. 9 N 10, 4- 5° C, kóf:
kl. 12 N 8, -4- 4° V, kóf.
Inniseta fram eftir degi, en tók að birta
laust fyrir kl. 8. Fóru landmælingamenn því
niður á sléttuna undir Svíahnúk og grunnlína
var mæld, en ekki tókst að mæla hana inn
frá hnúknum, Jtví hann rauk aftur upp á
norðan. Við hinir fórum austur að mastri og
byrjuðum að grafa snjógryfju. Gert var við
Jökul II.
19. júní. — Veður kl. 9 SV 1, -4- 1° C, þoku-
slæðingur; kl. 12 SV 1, 3° C, þoka.
Þennan dag lukum við Ivuggsmenn gryfju-
greftri við mastrið. Var gryfjan nær 6 m djúp.
Þykkt vetrarsnævar reyndist samkvæmt þeirri
mælingu 5.4 m. Vatnsgildi 2760 mm. Landmæl-
14