Jökull - 01.12.1961, Side 17
ingamönnum tókst þennan dag að tengja grunn-
líununa við Svíahnúksmerkið.
20. júní. - Veður kl. 9 V 2-3, h- 1° C, létt-
skýjað; kl. 12 V 2—3, 2° C, þoka yfir hnjúk-
um af og til.
Steingrímur og félagar hans fóru snemma
morguns niður að grunnlínu til mælinga. Magnús
keyrði þá þangað og kom síðan til baka og
hjálpaði Hauki við að skipta um gírkassa í
Kugg. Haukur liélt síðan til mælingamanna,
sem auk þess fengu Halldór Olafsson í sinn
flokk til þess að geta mælt í tveimur hópum
og lagt nótt með degi meðan veður leyfði.
Aður en Halldór yfirgæfi okkur höfðum við
farið inn í Grímsvötn og grafið snjógryfju á
línunni Gríðarhorn—Depill, um 4 km frá
Gríðarhorni. Þar var vetrarsnjólag 610 cm,
vatnsgildi um 3060 mm. Við héldum síðan út
að mastri og mældum það nákvæmlega með
tilliti til hækkunar þess á hausti komanda.
Komum í skála kl. 21.
21. júní. — Veður kl. 9, logn, -f- 1° C, al-
heiðríkt; kl. 12, V 1-2, -t-0.5° C, alheiðríkt.
Við fimm, sem eftir vorum á Grímsfjalli,
lögðum af stað kl. 13 í humáttina á eftir land-
mælingamönnum og skyldi nú línu Jjeirra fylgt
3. mynd. Hveradalur Kverkfjalla séður úr norð-
austri. — The solfatara valley in Kverkfjöll. View
towards SW. — Ljósm.: S. Þórarinsson 22. júní
1961.
og Örn gera á henni sínar segul- og þyngdar-
mælingar. Veður hélzt hið ágætasta allan daginn,
Kl. 20 vorum við komnir 22 km frá Grímsfjalli
og J)ar mældi Örn þversnið á aðalsniðið, 4.5
til hvorrar handar. Grímur póstur liélt áfram
á skíðum á vit Steingríms og félaga lians, en
til Jreirra sást vestan í Brúðarbungu.
22. júní. — Þverlínumælingum lauk ekki fyrr
en kl. 3 aðfaranótt þess 22. og var síðan hald-
ið áfram í slóð liinna. Hittum j)á norð-vestan
í Brúðarbungu kl. 7.30, og var ekki laust við
að Jjeir væru orðnir þreytulegir, enda búnir
að vera á ferli án afláts í 2 sólarhringa. En
þeir hugðust halda áfram mælingum Jrar til
lokið yrði, ef veður entist. Við skildum við þá
1 bili og héldum norður í Hveradal Kverk-
fjalla. Komum þangað um 9 leytið í [)ví feg-
ursta veðri, sem nokkur okkar hafði nokkurn
tíma fengið Jjar. Var bjart yfir öllu hálendinu.
Nokkuð haíði hækkað í vatninu síðan ég var
þar síðast 1956. Til baka snerum við kl. II,
hittum mælingamenn sunnan í Kverkfjöllumj
en héldum rakleitt áfram þar til kom rétt
suður fyrir há — Kverkf jallahrygg, en þar liugð-
umst við graí'a snjógryfju. Sváfum fyrst nokkra
klukkutíma, en tókum svo til við gryfjugröft.
Mælingamenn komu kl. 21, hafandi lokið sínu
ætlunarverki með einstæðum clugnaði. Þeir Jtáðu
hjá okkur kaffi og héldu síðan áfram til Gríms-
vatna, en við lukum gryfjugreftri kl. 1 um nótt-
ina. Gryfjan varð 6 m djúp. Vetrarsnjólagið
var hér 555 cm, vatnsgildi þess 2800 mm.
23. júní. — Komum á Grímsfjall kl. 02.30.
Sváfum til kl. 10 og tókurn þá að búast til
heimferðar. Veður kl. 12, VSV 1, 3.5° C, Jroku-
bræla á Svíahnúk, en auðsæilega bjart yfir
jöklinum víðast. Lögðum af stað frá skála kl.
14.50. Komum að Pálsfjalli kl. 18 og snæddum
Jtar úti, enda veður enn fagurt. Þaðan var hald-
ið aftur yfir á aðalleiðina, en brátt skall á þreif-
andi Jtoka. Þegar kom niður á beran jökul og
sprungur þótti ráðlegt að senda menn af stað
til könnunar. — Magnús Jóhannsson komst
gangandi niður á Nýjafell og hafði þaðan tal-
samband við okkur. Komumst að jökulrönd kl.
3 um nóttina.
24. júní. — Sváfum fram undir hádegi. Flutt-
um síðan Steingrím og Pál suður fyrir Tungná
til móts við starfsfólk Raforkumálaskrifstofunn-
ar, sem var að fara í skemmtiferð í Landmanna-
laugar. Héldum slðan aftur til Jökulheima.
25. júní. — Hélclum af stað heimleiðis um
15