Jökull - 01.12.1961, Qupperneq 18
4.mynd. Hrauni þakinn móbergssteinn, sem hef-
ur kastazt upp í gosi i Kverkfjöllum vestri. —
Lava coated boulder of tuffbreccia ejected by a
recent eruption in Kverkfjöll. — Ljósm.: S, Þór-
arinsson 22. júní 1961.
hádegi í góðu veðri. Komum til Reykjavíkur
urn kl. 20.
Eg vil að endingu þakka ferðafélögum mín-
um dugnað þeirra og ósérhlífni í þessari ferð,
sömuleiðis þeim meðlimum Jöklarannsóknafé-
lagsins, sem hjálpuðu til að undirbúa leiðang-
urinn, einkum þeim Stefáni Bjarnasyni og
Gunnari Guðmundssyni, svo og þeim bílstjór-
um, sem fluttu okkur og hafurtask okkar til
Jökulheima og heim aftur. Jöklarannsóknafé-
lag Islands er ekki auðugt félag og án hjálpar
margra duglegra velunnara væru leiðangrar
sem þessir óframkvæmanlegir.
Hingað til hygg ég engan hafa iðrað þátt-
töku í Vatnajökulsleiðöngrum félagsins og það
veit ég vist, að sá 11 manna hópur, sem dvaldi
í Kverkfjöllum þann dýrlega dag 22. júní,
þykist hafa fengið þáttökuna í vorleiðangrin-
um 1961 vel borgaða.
HAUSTFERÐIN
Aðaltilgangur þessarar liaustferðar var sá að
bæta ofan á járnmöstrin tvö á jöklinum, norð-
vestur af Pálsfjalli og austur af Svíahnúk eystri,
svo að þau stæðu örugglega upp úr snjó á vori
komanda. Hafði Magnús Eyjólfsson, pípulagn-
ingameistari, séð um smíði á þeim járnum er
við skykli bæta. Einnig átti að vanda að athuga
breytingar á Grímsvötnum og mæla bráðnun
á undangengnu sumri. Þá var ætlunin að tjöru-
bera Grímsvatnaskálann að utan, ef veður
leyfði.
I þessa för hafði Jöklarannsóknafélagið boð-
ið heimskunnum sænskum jöklafræðingi, Dr.
Valter Schytt. Þótti vænlegt að fá slíkan mann
til skrafs og ráðagerða um áframhaldandi rann-
sóknir á jöklinum, því erfitt er hér í einangr-
uninni að fylgjast með framförum á sviði þess-
ara rannséikna, einkum tæknilegum. Þess skal
getið með þakklæti, að Flugfélag íslandsog Loft-
leiðir sýndu félaginu þá velvild að flytja Dr.
Schytt ókeypis til og frá Skandinavíu.
Þeir, sem tóku þátt í þessari för voru:
Sigurður Þórarinsson, fararstjóri.
Gunnar Guðmundsson, stýrði Jökli II.
Halldór Gíslason.
Hörður Hafliðason.
Carl Eiríksson, „nagvigatör“.
Magnús Karlsson, stýrði Jökli I.
Þórður Sigurðsson, bryti.
Valter Schytt.
Frá Reykjavík var haldið 9. sept. kl. 930. Vísl-
arnir voru báðir inni í Jökulheimum síðan um
vorið. Þórður keyrði leiðangursmenn á sinum
bíl, en farangur var fluttur á Doclge Weapon
Jöklarannsóknafélagsins. Komumst inn í Jök-
ulheima kl. 1745. Ivlukkutíma seina var Iagt af
stað með bílana inn að jökli. En það skipti
engum togum, að þegar Jökull II var kominn
út í nær miðjan vestasta álinn í Tungná, þá
festust steinar í beltunum og stöðvuðu hann og
fór hann þegar að grafast niður, en Gunnar
kom von bráðar upp um þakopið fáklæddur,
Jiar eð hann kærði sig ekki um að bleyta meira
en brækur sínar. Fór kvöldið allt í að koma
víslinum á Jiurrt og mátti ekki á tæpara standa
að tækist, enda sokkinn svo djúpt, að vatn fór
upp í Jiakluktina. Var gengið til náða í Jökul-
heimum kl. 1 um nóttina. Grasreitir Sturlu
Friðrikssonar voru nákvæmlega athugaðir þenn-
an dag, svo og þeir reitir, sem Þorleifur Guð-
mundsson hefur látið sá í. Lá gras víðast í legu
og var hvergi farið að sölna.
10. sept. — Viðgerð á Jökli II var lokið um
hádegi og var þá lagt af stað í sæmilegu veðri.
Haldið á jökul kl. 15. Skriðjökullinn var nú
miklu betri yfirferðar en haustið áður og hef
ég ekki áður reynt liann jafn greiðfæran að
16