Jökull - 01.12.1961, Side 22
9. mynd. Leiðangursmenn liaustið 1961. — Frá vinstri talið: Halldór Gíslason, Magnús
Karlsson, Valter Schytt, Þórður Sigurðsson, Hörður Hafliðason, Sigurður Þórarinsson, Gunn-
ar Guðmundsson, Carl Eiríksson. — Participants in the autumn expedition to Vatnajökull
1961, counted from left to right. — Ljósm.: Valter Schytt 17. sept. 1961.
Mestallur dagurinn fór í að ná í víslana og
koma þeim yfir kvíslar Tungnár, sem aldrei
hefur verið jafn erfið í haustferðum okkar.
Var Guðmundur mjög í essinu sínu er hann
stjórnaði þeim yfirferðum. Hopun Tungnár-
jökuls síðan í fyrrahaust var mæld og reyndist
42 m. Um kvöldið var gleðskapur í skálanum
og hafa aldrei verið drukknar þar jafn dýrar
veigar og þær, er Valter dró upp úr pússi
sínu.
17. sept. — Haldið af stað heimleiðis kl. II40
í huggulegu veðri. Komið við í Veiðivötnum.
Reitur Sturlu vestan Fossvatns athugaður og
myndaður og var gróður þar ekki alveg eins
líflegur og við Jökulheima, en þó furðu mikill.
í bæinn var komið um 20-leytið.
Þessi ferð var öll hin ánægjulegasta. Svíinn
var liinn ágætasti ferðafélagi og vann hylli
20
allra sinna ferðafélaga, auk þess sem hann
fræddi okkur um margt, sem síðar má að gagni
koma. Hann rómaði mjög dugnað sinna ís-
lenzku félaga (undirritaðan reiknar hann sem
hálf-Svía), enda reyncli mjög á dugnað þeirra,
úthald og úrræði í þessari ferð. Kokkamennska
Þórðar sló öll met, sem sett hafa verið í þeirri
mennt á Vatnajökli og mun lengi í minnum
höfð. Það er gott að vera með svona piltum
á jökli, og því betra sem veður eru vályndari.
Þökk sé þeim.
(English Sumynary next page).