Jökull - 01.12.1968, Side 9
Mynd 4. Staðir á Vatnajökli, þar sem sýnum til tvívetnismælinga heí'ur verið safnað. Tölurn-
ar við staðina eru 6-gildi efsta vetrarlagsins, þar sem því var safnað að vori, áður en veruleg
bráðnun hófst.
Fig. 4. Sampling locations on Vatnajökull. The riumbers at each point are 8-values of the 'upper-
most winter layer. These samples were collectecl in early June 1968. Some melting had qtready
occurred, but the meltwater still remained in tlie surface layers.
ráði við Jöklarannsóknafélagið. Við L-V var
reyndar boruð 30 m djúp hola, en um það
verður rætt hér á eftir. Tvívetnismælingar þess-
ara sýna, ásamt tvívetnismælingum vatnssýna
umhverfis jökulinn, hafa nú gert kleift að
teikna kort, sem sýnir tvívetnismagn i ársúr-
komu, hvar sem er á Langjökli. Þetta kort er
sýnt á Mynd 3.
Síðastliðið vor var svo farið að hyggja að því
að afla sýna af vetrarlagi Vatnajökuls. Frá upp-
hafi var þó ljóst., að sú söfnun mundi vera of
umfangsmikil, til að hægt væri að framkvæma
hana með þeim mannafla og tækjum, sem
Raunvísindastofnunin hefur á að skipa. Var þá
tekið til bragðs að leita eftir aðstoð Jöklarann-
sóknafélagsins, sem þegar í stað ákvað að styrkja
verkefnið, svo sem unnt væri.
Hinn 1. júní 1968 var lagt upp í árlegan
Vatnajökulsleiðangur félagsins. I þessari ferð
var safnað sýnum til tvívetnismælinga af norð-
urhluta jökulsins. Alls var safnað sýnum frá 10
stöðum, sem sýndir eru á Mynd 4 sem V-I—V-X.
Var grafið niður í gegnum fyrstu metrana og
tekin samfelld sýni i 30 cm langa járnhólka,
en að því búnu var borað með snúningsbor.
A þann hátt var tekinn samfelldur kjarni, sem
víða náði niður í gegnum tvö árlög. Tölurnar
við staðina á Mynd 4 eru 8-gildi síðasta vetrar-
lagsins.
Á þessu ári (1969) er áætlað að safna sýnum
af suðurhluta jökulsins, en að því loknu ætti að
vera unnt að teikna tvívetniskort af jöklinum,
á sarna hátt og þegar hefur verið gert af Lang-
jökli.
JÖKULL 18. ÁR 343