Jökull


Jökull - 01.12.1968, Side 18

Jökull - 01.12.1968, Side 18
Fig. 1. Monthly average of tritium in precipitation on Rjupnahaed. hliðstæðum mælingum erlendis er óhætt að full- yrða, að allt frá árinu 1953 hafi mánaðarmeðal- gildi úrkomunnar aldrei farið undir 20 Þ.E. og verið miklu hærra lengst af. ÞRÍVETNI í HVERAVATNI Hér verður einungis drepið mjög lauslega á niðurstöður þrívetnismælinga í hveravatni. Ný- lokið er við að mæla þrívetnisstvrk vatns úr hverum og borholum frá um 40 stöðum á jarð- hitasvæðum í Borgarfirði, Suðurlandi og í ná- grenni höfuðborgarinnar. Mæld voru sýni frá þessum stöðum, sem tekin voru vorin 1967 og 1968. Niðurstöður mælinga bæði árin eru mjög svipaðar, og sýna þær, að í langflestum tilfell- um er sáralítið þrívetni að finna í þessum vatnssýnum, oftast minna en 2—3 þrívetnisein- ingar. Þetta heita jarðvatn getur því ekki hafa fallið sem úrkoma síðustu sextán árin, því að allan þann tíma hefur þrívetnisstyrkur úrkom- 352 JÖKULL 18. ÁR unnar verið mun meiri eins og að framan var greint. Ennfremur er rétt að benda á, að allar kaldar lindir, sem mældar hafa verið, sýna mun meira þrívetnisinnihald, eða 20—100 Þ.E. Því hlýtur að vera grundvallarmunur á grunnvatns- rennsli heita og kalda vatnsins. En úr því að megnið af hinu heita grunn- vatni er eldra en vetnissprengjurnar, þá vakn- ar sú spurning, hvort ekki megi íinna aldur þess eins og greint var að framan; að mæla þrí- vetnisstyrk þess og bera hann saman við meðal- gildi þrívetnisins í úrkomu á þeim tíma, þegar geimgeislarnir einir framleiddu þrívetnið. I hinum veikustu sýnum er þrívetnisstyrkurinn á mörkum þess, sem unnt er að mæla með nú- verandi mælitækni. Með nokkrum endurbótum má þó væntanlega mæla vatn, sem inniheldur 0.1—0.2 Þ.E., með um það bil 10% nákvæmni. Ef meðalþrívetnisstyrkur úrkomunnar hefur verið 2 Þ.E. fyrir tveimur áratugum mætti með þessari aðferð finna aldur grunnvatns, sem er

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.