Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1968, Qupperneq 19

Jökull - 01.12.1968, Qupperneq 19
allt að 50 ára. Það væri mjög mikilvæg viðbót við þær upplýsingar, sem þrívetnismælingarnar hafa þegar gefið, ef unnt væri að fá vitneskju um, hvort eitthvað af þessu vatni hafi fallið sem regnvatn á tímabilinu fyrir 20 til 50 árum. Ekki er þó nóg að geta mælt hin veiku sýni. Við verðum einnig að vita, hver meðalstyrkur þrívetnisins var í úrkomunni, áður en mengun vetnissprengjanna kom til. Eins og fyrr var sagt, fer þetta meðalgildi eftir landfræðilegum staðháttum; það er lægst yfir hinurn stóru heimshöfum, en hærra á meginlöndunum. Vegna þess að þrívetnismælingar hófust ekki að marki, fyrr en eftir árið 1956, eru ekki til nema örfáar mælingar á þessu meðalgildi, og er ekki hægt að hafa gagn af þeim mælingum hér á landi. Því er ákaflega mikilsvert að fá vatnssýni af úrkomunni hér á landi fyrir 1952. Beztu mögu- leikarnir eru að fá sýni úr jöklum af snjó, sem féll á þessu tímibili. Eins og Bragi Arna- son rekur í grein sinni á bls. 340—348. hefur Raunvísindastofnun Háskólans einnig mikinn áhuga á að fá jöklasýni vegna tvívetnismæl- inga, og hafa því verið farnir nokkrir leiðangr- ar á Langjökul og Vatnajökul. GAMALLA ÚRKOMUSÝNA LEITAÐ í JÖKLUM I jöklum hér á landi seitlar sumarregn og leysingavatn ávallt eitthvað í gegnurn jöklana, og á þann hátt geta dýpri lög mengazt af yngri úrkomu. Því er nauðsynlegt að taka jöklasýni í sem mestri hæð, þar sem meðalhitinn er lægst- ur. A þessum stöðum er þykkt árlaganna vænt- anlega um 3—5 metrar. Til þess að fá 20 ára gömul sýni er því nauðsynlegt að ná þeim frá allt að 100 metra dýpi. Ennfremur er mjög æskilegt að ná íssýnum frá a. m. k. 10 ára bili fyrir 1952, en þau geta verið á allt að 150 metra dýpi. Síðastliðið sumar voru fyrstu tilraunirnar til djúpborunar gerðar. Smíðaður var bor, sem bræðir sig gegnum ísinn og tekur rúmlega 4 cm gildan ískjarna. Bor þessi er smíðaður að verulegu leyti eftir bandariskri fyrirmynd. Mynd 2 sýnir teikningu af bornum. Neðst er bræðslukrónan, þýðingarmesti og viðkvæm- asti hluti borsins. Þetta er í rauninni aðeins sérsmíðaður rafmagnshitari, sem fellur neðst á Mynd 2. Þverskurðarmynd af bræðslubor. S: stálvír. R: rafkapall. K: plaströr til einangrun- ar. J: borrör. T: fjaðrandi tönn til að slíta sundur ískjarna. E: varmaeinangrun úr teflon. H: hitari. Fig. 2. Transection of the thermal drill. T: Tooth for cutting the icecore. E: Teflon in- sulator. H: Heating element. borinn. Rétt fyrir ofan bræðslukrónuna eru tvær tennur, sem fjaðrir þrýsta létt inn að kjarnanum. Þegar borinn hefur sigið um það bil einn metra, er straumurinn í hitaranum rofinn og borinn togaður upp úr holunni. JÖKULL 18. ÁR 353
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.