Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 23
300CHÞE.
Mynd 6. Mánaðarmeðaltöl þrívetnisstyrks í úrkomu á Rjúpnahæð (færð til 1. júní 1968) og'
þrívetni í ís frá Bárðarbungu.
Fig. 6. Monthly average of tritium concentration in precipitation on Rjupnahaed (reduced
to June 1, 1968) and tritium concentration in ice cores from Bardarbunga on Vatnajökull.
samsvörun fengist rnilli ferlanna tveggja. Þessi
mynd sýnir strax, að mjög góð samsvörun er
milli toppanna á ferlunum, en af því ntá ráða,
að lítið regn- og leysingavatn seitlar niður í
gegnum jökulinn. Þó má vel vera, að þarna á
jöklinum gæti nokkurra slíkra áhrifa. Hámarks-
gildi þrívetnisstyrksins á iiðlega 20 metra dýpi
bendir til slíkra áhrifa, en það er um 30%
lægra en hámarksstyrkur úrkomunnar á
Rjúpnahæð, er þessi snjór féll (sumarið 1963).
Snjólagið undir þessu sumarlagi er ennfremur
töluvert þrívetnisauðugra en úrkoman á
Rjúpnahæð á tilsvarandi tíma.
Enda þótt samsætuskipta milli leysingarvatns
og íss gæti nokkuð þarna á jöklinum, eru þessi
áhrif þó mjög óveruleg. Þá er rétt að benda á,
að borholan var ekki tekin efst á Bárðarbungu,
heklur um 200 metrum neðar. Ástæða er til að
ætla, að hábungan sé hreinn gaddjökull.
Ofangreindar mælingar hafa sýnt okkur, að
samsætuskiptin eru svo óveruleg, að þarna
mætti fá rétta mynd af þrívetnisstyrk úrkom-
unnar á síðustu áratugum. Því verður nú meðal
annars lagt að nýju á Bárðarbungu í sumar
(1969) í þeirri von að ná sýnum, sem geti sagt
okkur þessa sögu. Við vonum þó, að þau djúp-
sýni, sem þar fást, geti samtímis frætt okkur um
fleiri atriði.
JÖKULL 18. ÁR 357