Jökull - 01.12.1968, Qupperneq 37
Tungnárjökull
SIGMUNDUR FREYSTE I NSSON,
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN SF., REYKJAVÍ K
ÁGRIP
Á árunum 1959—1967 voru nokkrum sinnum
mældir langskurðir á Vatnajökli upp frá Nýja-
felli við Jökulheima og milli Pálsfjalls og Kerl-
inga. í eftirfarandi grein er skýrt frá niður-
stöðum þessara mælinga og þeim upplýsingum,
sem þær gefa um breytingar og búskap Tungn-
árjökuls. Jafnframt hafa eldri rnælingar og
heimildir um Tungnárjökul verið kannaðar, og
sýna þær ásamt langskurðarmælingunum, að
jökullinn er lengst af kyrrstæður, en hleypur
fram á nokkurra áratuga fresti. Kyrrstæður
jökull þykknar ofan jafnvægislínunnar og þynn-
ist neðan hennar, og virðist orsök framhlaup-
anna vera jafnvægisröskun á ákomusvæðinu,
þegar jökullinn nær ákveðinni þykkt þar. Vegna
framhlaupanna og einnig frá hagnýtu sjónar-
miði er Tungnárjökull þýðingarmikið rann-
sóknarefni. En árangur verður lítill án um-
fangsmikilla rannsókna, t. d. veita þær mæling-
ar, sem nú eru gerðar að staðaldri, mjög tak-
markaðar upplýsingar um það, hvort jökullinn
í heild er að rýrna eða vaxa.
LAN GSKURÐ ARMÆLIN GAR
Mælingar þessar eru línumælingar með fjar-
lægðar- og hornamæli (tachymeter). Mældar eru
beinar línur, og er fjarlægð milli stöðva 200—
350 m, eftir aðstæðum. Fjarlægð og hæðarhorn
eru mæld fram og aftur með réttum og hverfð-
um sjónauka, og ættu því grófar skekkjur að
koma í ljós við útreikninga.
Langskurðir við Nýjafell og milli Pálsfjalls
og Kerlinga voru fyrst mældir sumarið 1959,
og er fastmerkjum lýst af Steingrimi Pálssyni
(1959). Hæð á fastmerki við flaggstöng í Jökul-
heimum hefur verið mæld inn í kerfi Orku-
stofnunar, og er liæð þess 674,1 m og hæð fast-
merkis á Nýjafelli í sama kerfi 725,5 m.
Langskurðurinn við Nýjafell hefur verið
rnældur tíu sinnum, sjá eftirfarandi skrá.
Ár Dags. Mæld lengd km
1959 20. júní 3,3
1961 11. júní 3.4
1963 8. júní 3,9
„ 21. sept. 4,0
1964 20. júní 4,1
1965 28. maí 4,0
„ 18. sept. 4,3
1966 25. júní 4,0
„ 17. sept. 4,3
1967 12.-14. júní 16,9
Langskurður milli Pálsfjalls og Iverlinga hef-
ur verið mældur:
1959, 26.-27, júlí,
1965, 8.-9. júní,
1967, 15.—16. júní, 7,6 km við Kerlingar
1. mynd. Yfirlitskort. NF: Nýjafell. K: Kerling-
ar. P: Pálsfjall.
Fig. 1. The measured profiles are between Mt.
Kerlingar (K) and Mt. Pálsfjall (P) and above
Nýjafell (NF) at the glacier front in Fremri
Tungnárbotnar.
JÖKULL 18. ÁR 371