Jökull


Jökull - 01.12.1968, Side 44

Jökull - 01.12.1968, Side 44
4. myncl. Samband levsingar og gráðudaga. 2Am: samanlögð meðalleysing við Nýjafell, metrar jökulíss. 2G: samanlagðir gráðudagar í 1000 m hæð yfir Reykjanesskaga. WA: vatnsár (1. september—31. ágúst). Fig. 4. Comparison of ablation and degree- days. 2Am: sum of ablation at Nýjafell (aver- age from 710 to 870 m a. s. L), metres glacier ice. 2G: sum of positive degree days at 1000 m altitude over Reykjanesskagi (Keflavik Airport). WA: water year (Sept. 1—Aug. 31). dregið upp samband samanlagðrar meðalleys- ingar við Nýjafell og samanlagðra gráðudaga. Gráðudögunum er þar einnig skipt eftir vatns- árum, en gráðudagar á hverju vatnsári eru sem hér segir: 1959-60 712 1963-64 478 1960-61 542 1964-65 620 1961-62 609 1965-66 616 1962-63 543 1966-67 539 Miðað við þessa gráðudaga er leysingin minni síðari árin en hin fyrri. Fyrstu fjögur vatns- árin, 1959—1963, eru til jafnaðar 602 gráðu- dagar á ári og meðalleysingin um 6 m til jafn- aðar á ári eða um 1,00 cm á gráðudag. Seinni þrjú vatnsárin, 1963—1966, er til jafnaðar 571 gráðudagur á ári, en meðalleysingin til jafnað- ar um 4,9 m á ári eða um 0,86 cm á gráðu- dag. Ekki er von til, að gott samband fáist milli leysingar og einstaks þáttar veðursins í mikilli fjarlægð. — Samkvæmt rannsóknum í 378 JÖKULL 18. ÁR Austurríki (Hoinkes and Rudolph 1962) er ekki glöggt samband milli leysingar og neins ein- staks þáttar veðursins. Lítilsháttar nýsnævi get- ur t. d. dregið mjög úr leysingu vegna aukins endurkasts sólgeislunar. Mismunandi vetrar- ákoma skiptir auðvitað miklu máli, því að hluti leysingartímans fer í að bræða hana. Við Kerlingar ná þessar mælingar frá 1160 upp í 1270 m hæð. Hér hefur aðeins verið mælt þrisvar sinnum, og er ekki grundvöllur til að athuga árlegar breytingar. Breytingar þarna uppi eru miklu óreglulegri en við Nýja- fell, enda er þetta í nágrenni við jafnvægis- línuna. Eftir tölunum í Töflu 4 mætti athuga leys- ingu og ákomu á hinum einstöku tímabilum, sem afmarkast af mælingunum. Hér er látið nægja að líta á meðaltal áranna 1959—1967. Á Mynd 5 er sýnd leysing og ákoma í metrum vatns á ári miðað við hæð. Reiknað er með, að vatnsgildi jökulíssins við Nýjafell sé 0,89. Við Kerlingar er hjarn, og er þar gert ráð fyrir, að vatnsgildið sé 0,55 við yfirborð og 0,60 á 2,5 m dýpi og breytist línulega með dýptinni. (Þetta er ef til vill vafasamt. Ef þykkt og vatns- gildi hjarnsins er eins frá ári til árs, samsvarar yfirborðsbreytingin jökulís með vatnsgildi um 0,89. Væntanlega er hið rétta einhvers staðar þarna á milli, og hækkun vatnsgildisins hefur sáralítil áhrif á því bili, sem mælingarnar ná yiir.) Öldungis óvlst er, að sambandið á Mynd 5 gildi fyrir Tungnárjökul í heild, t. d. má ætla, að ákoman sé ekki jafnmikil alls staðar og búskapurinn þess vegna breytilegur frá einu svæði til annars, einkum þegar hærra dregur. Frá hagnýtu sjónarmiði í sambandi við virkj- anir er m. a. þýðingarmikið að vita, hversu mikill hluti af rennsli stóránna stafar frá raun- verulegri rýrnun jökla. Efri mörk fyrir rýrn- unina er nettóleysingin. Vatnasvið Tungnár á jökli er ekki þekkt, en sennilegt er, að vatna- skilin séu nokkurn veginn í framhaldi af fjall- garðinum norðvestan Langasjávar (Breiðbak) allt austur fyrir Kerlingar og síðan í vestur skammt norðan Kerlinga. Þar fyrir norðan eru ár úr jöklinum, sem hverfa í hraun, og er lík- legt, að það vatn komi fram 1 Köldukvísl. Eftir línuritinu á Mynd 5 og ágizkunum um vatna- skil og yfirborð jökulsins (hæð) eftir þeim gögn- um, sem tiltæk eru, má ráða að nettóleysingin á vatnasviði Tungnár hefur verið af stærðar-

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.