Jökull - 01.12.1968, Qupperneq 46
G. mynd. Horft af Nýjafelli til Kerlinga 20.
júní 1959.
Fig. 6. Vieic from Nýjafell towards Kerlingar
June 20, 1959.
7. mynd. Horft af Nýjafelli til Kerlinga 12.
júní 1967, sbr. 6. mynd.
Fig. 7. The same view as in Fig. 6, June 12,
1967.
urn við á jökulinn og óðum kvíslarnar. Há,
gömul morena, grafin nokkuð, liggur um 700
m frá jöklinum. Kemur jrá flatur jökulbotn
skolaður af ám. Miðjtt vegu milli þessarar mor-
enu og jökulsins er önnur miklu yngri. Hún
er lægri og ískjarnar í hólunum. Á bak
við hana er slétta, grunnar morenutjarnir og
sandbleyta mikil. Holur eftir jaka eru víðs veg-
ar. Jökulröndin sjálf er flöt, og er engin greini-
leg morena við liana. Jökullinn virðist vera á
undanhaldi. Engin jökulport og lítið undir-
vatn, en allmikið ofanvatn.“ Samkvæmt þessu
hefur jökulröndin verið urn það bil 700 m aft-
:
8. mynd. Skammt frá jökulrönd við Nýjafell
21. september 1963.
Fig. 8. Short distance jrom the glacier front
at Nýjafell, September 21, 1963.
ar 1927 en 1889. Hopið hefur þó ekki verið
samfellt, innri jökulöldurnar svna, að gangur
hefur verið í jöklinum einhvern tíma á Jjessu
tímabili.
Fyrstu raunhæfu kortin af þessum slóðum
eru uppdrættir Geodætisk Institut í mælikvarða
1:100000 (N<f>rlund 1944). Ivortin af Tungnár-
jökli eru teiknuð eftir loftljósmyndum (ská-
myndum), teknum sumarið 1938. Myndirnar af
Tungnárbotnum eru teknar úr mikilli fjar-
lægð, og er erfitt að greina jökulröndina og
kennileiti við liana. Jökulröndin á kortinu
mun nánast vera efri mörk þess hluta, sem er
að mestu þakinn af aur. Hæðarlínur uppi á
jöklinum eru ekki raunverulegar og aðeins ætl-
aðar til að gefa lögun jökulsins til kynna í
stórum dráttum. („Vatnajökull .... Kortene
over Jþklen er lremstillet ved en fotogram-
metrisk Kotering, Kurverne kan kun betragtes
som Formlinier.“ (Nprlund 1944).) Það er því
ljóst, að þessi kort hafa takmarkað gildi til
jöklarannsókna.
Sem betur fer voru gerðar meiri mælingar
á vegum Geodætisk Institut. Tungnlröræfi og
þar með öll rönd Tungnárjökuls var rnæld með
mæliborðsmælingu sumurin 1938 og 1939. Kort
í mælikvarða 1:200C00 var teiknað jafnharðan
og mælt var. Þessar mælingar voru þó ekki not-
aðar við gerð kortanna, sem út voru gefin,
nema þar sem beinlínis vantaði í loftmyndirn-
ar (N<f>rlund 1944). Ágúst Böðvarsson gerði
mæliborðsmælingarnar á þessum slóðum, og var
380 JÖKULL 18. ÁR