Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 60
Vatnajökulsleiðangur 1968 1.—14. júní
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON
Að venju gerði JÖRFI út vorleiðangur á
Vatnajökul 1968. Aðaltilgangurinn að þessu
sinni var að safna sýnum hjarns og íss sem víð-
ast á jöklinum til könnunar á tvívetnis- og þrí-
vetnisinnihaldi sýnanna. Eru þessar rannsóknir
þáttur í víðtækri rannsókn, sem verið er að
framkvæma á vegum eðlisfræðideildar Raun-
vísindastofnunar Háskóla Islands. Með í Vatna-
jökulsleiðangrinum 1968 voru þrír starfsmenn
frá Raunvísindastofnuninni, Páll Theodórsson,
eðlisfræðingur, Bragi Árnason, efnafræðingur,
og Kristján Benediktsson, verkfræðinemi, en
frá JÖRFI fóru 10 á jökulinn:
Sigurður Þórarinsson, fararstjóri.
Carl Eiríksson, „navigator“, aðstoðaði eðlis-
fræðingana við þeirra störf og stýrði Jökli 2.
Gunnar Guðmundsson og Þórður Sigurðsson
stýrðu Gusa, sem leigður var af Guðmundi
Jónassyni.
Hjálmar R. Bárðarson, ljósmvndari ieiðang-
ursins.
Halldór Gíslason og Magnús Eyjólfsson, að-
stoðarmenn við rannsóknir.
Guðlaug Benediktsdóttir, Soffía Theodórs-
dóttir og Stefanía Pétursdóttir önnuðust
matseld.
Near Breidamerkurjokull, Iceland. Trans-
actions Inst. Brit. Geographers, April 1969
— in press.
Welch, R. 1967: A Comparison of Aerial Films
in the Study of the Breidamerkur Glacier
Area, Iceland. Pliotogrammetric Record,
Vol. V, No. 28, 289-306.
— 1967: The Application of Aerial Photo-
graphy to the Study of a Glacial Area,
Breidamerkur, Iceland, Unpublished Ph. D.
thesis, University of Glasgow.
Welch, R. and Howarth, P. J. 1968: Photo-
grammetric Measurements of Glacial Land-
forms (Breidamerkurjokull). Photogram-
metric Record, April 1968.
Með í för var einnig Dmitri Sokoloff, rúss-
neskur jökla- og vatnafræðingur, sem dvaldi í
Reykjavík veturinn 1967/68. Reyndist hann
hinn ágætasti félagi.
1. júní. — Alls voru það 14, sem héldu á
jökulinn, en samanlagt voru það 21, sem héldu
úr höfuðstaðnum áleiðis til Jökulheima kl.
11.30 hinn 1. júní. Búizt var við erfiðri ferð
inn úr og Guðmundur Jónasson því kjörinn
fararstjóri þessa áfanga, og ók hann leiðangurs-
mönnum i bíl sínum, R 342. „Rauður“ Jökla-
rannsóknafélagsins var og með í förinni, svo
og bíll frá vegamálastjórninni (R 1689), undir
Gusa, og þrír menn með honum. Bronco Þórðar
Sigurðssonar var með inn að Tungnaá. Pétur
Sumarliðason var fluttur inn í Jökulheima til
að hefja veðurathuganir, og Ómar og Hörður
Hafliðasynir voru einnig með í förinni. Far-
angur var fluttur í Gusa og á sleða, sem var
á kerru aftan í Rauð.
Rigning var mestalla leiðina inn að Hófs-
vaði, en þó kom sæmileg uppstytta, meðan
snætt var í Sölvahrauni. Að Tungnaá var kom-
ið kl. 19.15. Var hún þá í meiri vexti en ég
hef nokkurn tíma séð hana, og flæddi yfir alla
hólma að heita mátti og var langt frá því að
vera væð eða bílfær. Var hún enn að vaxa og
því ekki um annað að gera en að bíða. Komst
áin hæst í 43 cm hæð yfir 140 á mæli Sigur-
jóns Rists, sem þarna er. Sofið var í bílunum
um nóttina.
2. júni. — Um nóttina rigndi, en þó fór að
lækka í Tungnaá nokkru eftir miðnætti. Ain
var þó alófær allan daginn og ekkert hægt að
gera nema bíða. Á 11. tímanum voru enn 60
cm niður á vörðu Sigurjóns Rists á bakkanum
vestan ár og yfirhorð árinnar lækkaði 1—2 cm
á klukkustund, en komið þurrviðri.
3. júni. — Kl. 08.30 var áin enn minnkandi,
og var nú farið að hugsa til yfirferðar, þótt
ekki væri áin frýnileg. Á bakkanum hinum
megin voru nú komnir þeir Hinrik Thoraren-
sen og Gunnar Hannesson og þeirra félagar