Jökull - 01.12.1968, Page 61
1. mynd. í Tungnaá á Hófsvaði. — Crossing of the river Tungnaá.
Ljósm. Hjálmar R. Bárðarson, 3. júní 1968.
með vísla sína, Nagg og Depil, úr Kverkfjalla-
för. Þeir Guðmundur og Omar óðu fyrstir yfir
ána og sóttist liægt yfir. Stóð ekki mikið upp
úr af „hreppstjóranum“ í álnum dýpsta við
norðausturbakkann, en yfir komst hann, og varð
sumum hugsað til þess, ekki alveg án angur-
værðar, að þetta væri að líkindum í síðasta
skiptið, sem þeir sæju Guðmund Jónasson vaða
yfir hana Tungnaá, en vitað var, að áin yrði
komin á brú fyrir næsta vetur. Guðmundur
ók svo öðrum vörubíl þeirra félaga alla leið
yfir Tungnaá, en hinn varð að skilja eftir bil-
aðan í hólmanum milli aðalkvíslanna. Þar eð
bíll vegamálastjórnarinnar varð nú að halda
heimleiðis, fengum við lánaðan þann vörubíl,
er yfir ána komst, undir Gusa. Var sá ekki í
sérlega góðu standi og var það lagni Gunnars
Guðmundssonar að þakka, að hann ekki festist
í sandbleytu í miðálnum með kerruna í eftir-
dragi (1. mynd). Rauður gekk fyrir eigin vél,
en var bundinn aftan í kerruna, og R 342
komst yfir án hjálpar. Var allt komið yfir
Tungnaá kl. 20.10, og síðan var lullað áfram
inn í Jökulheima. Snjólaust var að heita mátti
inn úr, og var hægt að fylgja stikuðu leiðinni
að mestu. I Jökulheima var komið um mið-
nættið. Var Guðmundur þá orðinn ærið þreytt-
ur, en Halldór Gíslason og Hörður Hafliðason
voru sprækari en ætla hefði rnátt eftir þeirra
löngu stöðu i Tungnaá, þar sem þeir stóðu
sem vegvísar, meðan ekið var yfir.
5. júní. — Veður var gott þennan dag, sem
fór í að koma snjóbílum og farangri yfir
Tungnaá og inn á jökuljaðar nokkuð norðan
við Nýjafell.
6. júní — Kl. 00.45 var lagt upp frá jökul-
rönd og ók Carl þá Jökli 2, en Gunnar Gusa,
báðir með sleða í eftirdragi, og var eldhúsið
gamla á þeim sleða, er Jökull dró. Veður var
gott um nóttina, en færið Jmngt framan af, og
sóttist ferðin seint, enda bílar ofhlaðnir að
vanda. Jökull 2 hitaði sig og varð sífellt að
kæla gírkassann með snjó, en liann varð þó að
draga Gusa upp úr krapinu, þar sem Jrað var
dýpst. Kl. 07 var snjór orðinn þurr og korninn
dálítill skafrenningur, og fór þá að ganga bet-
ur, en kl. 08, er komið var nokkuð inn fyrir
línuna Kerlingar—Pálsfjall (í mælistað I á kort-
JÖKULL 18. ÁR 395