Jökull - 01.12.1968, Qupperneq 62
2. mynd. Kort, er sýnir þá leið, sem farin var á jökli, svo og gryfju- og borholustaði, þykkt
vetrarákomu í cm og vatnsgildi hennar í mm.
Map showing the expedition’s route and the situation of pits and drillholes, thickness of the
winteraccumidation in cm and its water equivalent in mm.
inu, 2. mynd), bilaði vinstra beltið á Gusa og
varð því að nema staðar og gera gangskör að
því að fá flugvél frá Reykjavík með bætur í
beltið og helzt einnig nýtt belti, ef auðið væri.
Náðist samband við Þorbjörn Sigurgeirsson,
sem lofaði að sjá um þetta, hvað hann gerði
með sórna, því að kl. 17.30 sveimaði flugvél inn
yfir dvalarstað okkar og kastaði niður fimm
stórum pökkum. Voru þar í belti og sá járna-
búnaður, er því fylgdi, svo og bætur til bráða-
birgðaaðgerðar á beltinu. Kartöflupoki, sem
gleymzt hafði í Reykjavík, var og með og sitt-
hvað fleira, sem gott var að fá. Til þess að
tapa sem minnstum tíma, hafði Jökull 2 verið
sendur af stað þegar kl. 12.30 áleiðis til Bárðar-
bungu, þar sem bora átti aðalholuna, þar eð
líklegt þótti að þar væri jökull alfreðinn niður
á mikið dýpi. Með honum fóru, auk Carls,
systkinin Páll og Soffía, Magnús Eyjólfsson og
Halldór Gíslason. Meðan fram fór viðgerð á
Gusa, var grafið og borað og sýni tekin niður
396 JÖKULL 18. ÁR
á 7.2 m dýpi. Reyndist vetrarlagið þarna 450
cm þykkt og vatnsgildi þess 2100 mm.
Lagt var af stað áleiðis til Grímsvatna kl.
23.10 með báða sleðana aftan í Gusa.
7. júní. — Komurn í Grímsvatnaskálann kl.
08.30, hafandi verið á ferð alla nóttina. Það
reyndist Gusa brátt ofviða að draga báða sleð-
ana, og var annar því skilinn eftir, og varð
að skásneiða með hinn til að komast upp aðal-
brekkurnar. Milli Svíahnúka hrepptum við
þoku, og tók ferðin rnilli hnúkanna ærinn
tíma, eins og stundum áður. Eftir snæðing fóru
Þórður og Gunnar bráðlega í að skipta um
vinstra beltið á Gusa (4. mynd) en aðrir hvild-
ust að mestu til kl. 19.00. Veður var þá gott,
frost 4.5° C og andvari af NNA. Unt kvöldið
var skálanum breytt í verkstæði og unnu allir,
sem að komust, að því að skrúfa járn á beltið
undir Gusa. Var því ekki lokið fyrr en kl.
03.00.
7. júni — Meinleysisveður allan daginn. Frost