Jökull - 01.12.1968, Blaðsíða 63
4. mynd.
Gunnar og Þórður hafa
sitt að vinna.
lleparation work.
Ljósm.
Hjálmar R. Bárðarson,
10. júní 1968.
um 2° C, hæg NA gola og þoka. Lítið hægt
að aðhafast.
8. júni. — Agætis veður, næstum logn, og hiti
um frostmark. Þoku lagði yfir af og til. Þórður
og Gunnar fóru kl. 10.30 að sækja sleðann og
komu aftur kl. 12.30. Á meðan fórum við Soko-
loff og vörðuðum snjóvörðum leiðina niður í
Grímsvötn. Kl. 15.00 var lagt af stað með Gusa
til mælinga í Grímsvötnum. Var að venju mælt
3. mynd. íslenzk-rússnesk samvinna um bygg-
ingu „vatíkans".
Icelandic-Russian cooperation in the building
of a S.C.
Ljósm. Hjálmar R. Bárðarson, 6. júní 1968.
snið milli Gríðarhorns og Depils og hækkun
yfirborðs við Mósa frá vorinu áður. Reyndist
hæðin upp á Stóra Mósa vera 40 m og hafði
yfirborð hækkað um 14 m síðan 16. júní 1967.
Miðja vega milli Depils og Gríðarhorns var
grafin gryfja 1.8 m, og borað áfram með kjarna-
bor niður á 7 m dýpi. Vetrarlagið reyndist 468
cm þykkt, vatnsgildið 2305 mm. Kl. 21.00 var
aftur komið að skála, og voru þá þangað koinn-
ir Bárðarbungufarar (komu kl. 19.20). Höfðu
þeir borað niður á 41 m dýpi með bor þeim,
er þeir eðlisfræðingarnir í Raunvísindadeilcl
höfðu smíðað. Gengur sá fyrir mótor og bræðir
sig niður. En á 41 m dýpi hafði borinn fest sig
og náðist ekki upp. Síðasta vetrarlag á Bárðar-
bungu (IX á kortinu) var 427 crn þykkt og
vatnsgildi þess 2110 mm. Um kvöldið var veizla
í skálanum. Tilkynnti ljósmyndari ferðarinnar,
að hann ætti nú hálfrar aklar afmæli, og veitti
whisky af rausn, en konur bökuðu tertur stór-
ar, og var gengið seint til náða.
9. júní. — Veður gerðist rysjótt um nóttina
og var alllivasst af SA um morguninn, en hiti
rétt undir frostmarki. Kl. 19.15 var lagt af stað
í björtu veðri og stefnt á Kverkfjöll. Bílarnir
höfðu samflot nær hálfa leið, en Jökull 2 og
mannskapur hans (kvenskapurinn fór með okk-
ur í Ivverkfjöll) var skilinn eftir næstum 20
kílómetra frá skála til gryfjugraftar, borunar og
sýnatöku. Gusa var ekið áfram til Kverkfjalla
og var þangað komið rétt eftir miðnætti. Var
JÖKULL 18. ÁR 397