Jökull - 01.12.1968, Side 64
fyrst ekið niður á rimann milli Hveradalsins
og sigdældarinnar frá 1959 í því skyni að taka
myndir af gufuhvernum, sem þarna myndaðist
í hituhólnum suðaustan hveradalslónsins, lík-
lega 23. eða 24. maí 1968 (5. mynd). Það var
Sigurjón Einarsson, flugmaður, sem fyrstur
veitti hvernum eftirtekt, er hann flaug yfir
Kverkfjöll síðari hluta dags 24. maí. Stóð gufu-
strókur þá upp frá honum, meir en 300 m hár.
Er Sigurður Þórarinsson flaug þarna yfir með
Sigurjóni fyrri hluta næsta dags, hafði mjög
sljákkað í hvernum, en leirslettur alllangt út á
jökul sýndu, að talsvert hafði gengið þarna á
áður. Nú, 9. júní, var hann enn mun stærri
en aðrir gufuhverir í hituhólnum. Síðan var
aftur haldið upp á ákomusvæði Kverkjökuls,
tjöldum slegið og byrjað á gryfjugreftri, en
gengið til náða kl. 03.00. Veður var þá hið
fegursta, bjart í lofti og sólroðin vindaský yfir
norðurfjöllum (6. mynd).
10. júní. — Aftur var orðið skýjað, er gryfju-
vinna hófst að nýju kl. 08.00. Vetrarlagið þarna
(gryfja IV) var 478 crn og vatnsgildið 1960
mm. Haldið var af stað suður á bóginn kl.
12.50 og kl. 14.40 komurn við að þeirri gryfju
(V), er Jökulsmenn höfðu grafið á Kverkfjalla-
hrygg. Þar reyndist vetrarlagið 427 cm og vatns-
gildi þess 1990 mm. Við héldum svo áfram í
slóð þeirra. Veður var nokkuð rvsjótt, en þó
stóð Gunnar Guðmundsson á skíðum, nak-
inn að beltisstað, alla leið úr Kverkfjöllum og
þar til er við komum að þeim Jökulsmönnum
kl. 16.50, þar sem þeir voru að greftri í gryfju
III, 25 km A af Svíahnúk eystri. Var greftri
og borun lokið um kvöldið og reyndist vetrar-
lagið 354 cm en vatnsgildið 1740 mm.
11. júni. — Rigningarfýla var um nóttina og
allhvass á austan með morgninum, en rigning
minni. Haldið var áfram austur á bóginn. Er l
komið var um 20 km austur af gryfju III var
jökullinn orðinn úfinn og sprunginn og varð
að ganga á undan víslunum. 25 km A af gryfju
III var liði skipt. Jökulsmenn héldu norður á
bóginn, en Gusaliðið tók að grafa gryfju (VI),
og lauk greftri og borun kl. 20.45. Vetrarlagið
var þarna 298 cnr, en vatnsgildi 1530 mm. Síð-
an var ætlunin að halda 10 km til suðuráttar,
en við urðum að snúa við eftir 2 km, því að
færið var gjörómögulegt fyrir Gusa. Komum
aftur að gryfju kl. 0.30.
12. júní. — Veðurútlitið var slíkt, að ekki
þótti ráðlegt að halda lengra austur á jökul
og var þeim á Jökli 2 tilkynnt, að snúa til
baka. Þeir höfðu haldið norður á bóginn, en
komust ekki nema 7.6 km, vegna þess hve úf-
inn og sprunginn jökullinn var. Þar (VII) var
ekki nerna um einn m niður á fastan ís. Þeir
héldu síðan 6 km i stefnu á Snæfell og kom-
ust þar á sléttari jökul (VIII). Þar var ákoman )
212 cm og vatnsgildi 1130 mm. Gusaliðið beið
afturkomu Jökulsmanna 2 km vestur af gryfju
VI til kl. 04.00. Var þá um tíma búið að vera
hið fegursta veður með útsýni til Snæfells,
Herðubreiðar og Kverkfjalla. Hjálmar var ið-
5. mynd.
Gufustrókur stendur upp
úr nýjum leirhver í
Kverkfjöllum. Loftmynd.
Séð til norðurs.
Steam rises frotn a new
solfatara in Kverkfjöll.
Aerial vieiu towards N.
Ljósm.
Sigurjón Einarsson,
24. maí 1968.
398 JÖKULL 18. ÁR
J