Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1978, Qupperneq 19

Jökull - 01.12.1978, Qupperneq 19
hlés á jökulhörfuninni. Þetta hlé virðist því hafa verið staðbur.dið og stafar líklega af þröskuldi sem sést í við Reykjafoss. Utan við þröskuldinn hefur sjórinn flýtt fyrir hörfun, en hann hefur ekki komist inn fyrir Vindheima- mela. I dölunum eru engin einhlít merki um kyrrstöðu né framrás jökuljaðars, samt má ráða nokkuð af setlögum hvernig jökulhörfun hefur verið háttað. Sunnan Vindheimamela er mikið um jökulárset, sem myndast hefur í tengslum við jökul. Sunnan Mælifells ber meira á leysingarruðningi (ablation till, þ. e. ruðningi sem hleðst upp á yfirborði jökuls við bráðnun hans). I Austurdal og Vesturdal eru hjallar úr grófu jökulárseti, stærstu steinar um hálfur metri í þvermál. Mynd 10 sýnir langskurð og nokkra þverskurði af Vesturdal. I mynni dalsins eru nokkrir bergþröskuldar. Jökulsársetið í dalbotninum hefur hlaðist upp bak við einn þeirra og myndað jökuláraura í dalbotninum. Stórir steinar í setinu sýna að straumhraði hefur verið mikill þannig að setið hefur líklega myndast við jaðar jökuls, því að straumhraði gæti ekki hafa haldist mikill á svo hallalitlum dalbotni. Á einum stað í Vesturdal hefur fundist skálögun, sem myndast hefur þegar jökulár hafa fyllt upp smálón við jökul- jaðarinn. Þegar jökulröndin færðist innar grófst gljúfur í gegnum þröskuldinn í dals- mynninu og jafnframt grófu árnar farvegi í aurana og mynduðu hjallana sem enn standa. I Austurdal eru aðstæður svipaðar, nema þar hefur grafist miklu meira burtu af jökulárset- inu, þannig að hjallarnir eru lítt áberandi, þó má fylgja þeim nokkuð óslitið inn að Ábæ. Þar fyrir innan er önnur og lægri röð af hjöllum. Þetta gæti bent til þess að jökulhörfun hafi stöðvast um einhvern tíma við Ábæ. Við Svartá um 4 km sunnan við Vind- heimamela fundust fornar ísfleygafyllingar í malarnámi (Myndir 13—15). Telja má víst að þeir séu myndaðir við margra ára sífrera. Fleygar sem myndast að vetri og þiðna næsta sumar verða aldrei nema nokkrir mm í þver- mál og fyllast því sandi en í þessum fleyga- fyllingum eru steinar allt að 20 cm í þvermál sem þýðir að ísfleygarnir hafa a. m. k. náð þeirri þykkt áður en þeir bráðnuðu og fylltust seti. Myndunartími fleyganna er ekki þekktur en í fokmoldarlagi ofan á þeim fannst 2 cm þykkt ljóst öskulag sem gæti verið það sama og Grétar Guðbergsson (1975) kallar Ö og er mun eldra en H5 sem er 6600 ára. Um aldur þessara myndana er lítið vitað. Leit að skeljum sem hefði mátt aldursgreina bar ekki árangur. Engar aldursgreiningar hafa heldur verið gerðar á setlögum frá síðjökul- tíma annars staðar af Miðnorðurlandi. Þor- leifur Einarsson (1967) telur að Skagafjörður hafi verið undir jökli á Álftanes-skeiði fyrir um 12000 árum. Ingibjörg Kaldal (1976, 1978) hef- ur fundið jökulgarð á Hofsafrétti sem líklega er frá Búðaskeiði. Fornar ísfleygafyllingar við Vatnsá vitna um margra ára sífrera á láglendi. Svo kalt loftslag hefur varla ríkt á íslandi síð- ustu 10000 árin, og ætla má að ísfleygarnir hafi myndast í síðasta lagi á Búðaskeiði fyrir 10— 11000 árum. JÖKULL 28. ÁR 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.