Jökull - 01.12.1978, Page 81
Mynd 3. Á Grímsfjalli. Ljósm. Pétur Þor-
leifsson.
suðurleið. Er hér var komið var færið tekið að
þyngjast, enda var geysilegur hiti.
Þokan reyndist aðeins þunn slæða og sá til
sólar af og til. Við nudduðum áfram á minnsta
hraða og röktum slóðina. Var oft erfitt að
fylgja henni, en þó tókst það sæmilega. Loks
sýndi vegmælirinn á sleða Hákonar, að aðeins
þrír kílómetrar væru eftir í skálann, en þá
höfðum við numið staðar til að skifta um kerti
í einum sleðanum. Þá var þokan hvað dimm-
ust, en er við vorum aftur ferðbúnir létti til og
sáum við þá, að við vorum að leggja á Gríms-
fjallið. 1 skálanum komum við um þrjúleytið
eftir hádegi.
Það sem eftir var dagsins héldum við okkur
innan dyra, tókum lífinu með ró og þóttumst
vel að hvíldinni komnir, en ákváðum að halda
heimleiðis að morgni næsta dags. Við vökn-
uðum um fjögurleytið um nóttina, en vorum
ferðbúnir klukkan sex. Var þá ekið á glansandi
hjarni, í veðri svo fögru sem framast má verða,
áleiðis heim. Hef ég sjaldan ferðast um jökul-
inn í þvilíku veðri og hef ég þó oft verið hepp-
inn með veður þar. Er vestur fyrir Grímsvötn
kom hljóp galsi mikiil í Frey og tók hann
stefnu á Bárðarbungu og var ekið eins og
druslurnar drógu. Var Hákon langfyrstur,
enda sagðist hann hafa ekið á 80 km hraða,
sem er vafalaust ólöglegt á Vatnajökli.
Norðvestur af Grímsvötnum varð fyrir
okkur sigdæld mikil, ferlega sprungin. Var
það dæld sú er myndast í jökulinn er Skaftá
hleypur. Við sáum nú, að við myndum
naumast hafa nóg bensín til Bárðarbungu, svo
ákveðið var að halda beint frá sigdældinni að
Hamrinum. Seint mun okkur gleymast það
dásamlega útsýni er við okkur blasti er þangað
kom. Var sérstaklega gaman að sjá yfir
Hamarslónið, alþakið jöklum sem morgunsólin
glampaði á i öllum regnbogans litum. Við
dvöldum alllengi þarna á Hamrinum í þessu
dásamlega veðri og skyggni, sem naumast gat
betra verið. Var síðan haldið í átt að Kerl-
ingum. Urðum við að krækja langt suðaustur
á jökul, því mjög var sprungið út frá Hamr-
inum. Ekki tókst okkur að komast alveg fyrir
þetta sprungubelti, en fórum þar yfir sem
snjór virtist vera þykkastur. Var síðan ekið
greitt að Kerlingum, fór Hákon á undan, en
beið okkar skammt frá hærri Kerlingunni.
Gerði hann tilraun með talstöðina, en fékk
ekkert samband. Hafði hann aðeins einu sinni
náð sambandi í ferðinni og vorum við þá í
Grímsvötnum, er honum tókst að ná í Nýja-
bæ. Frá Kerlingum var síðan haldið í átt til
Jökulheima og komið að jökulrönd um há-
degisbilið. í Jökulheimum gistum við síðan
næstu nótt, en héldum heimleiðis næsta dag
eftir ferðalag, sem okkur mun seint úr minni
líða.
Pétur Þorleifsson.
ABSTRACT
The author describes a 250 km long tour in snow-
mobiles on Western Vatnajökull during 4 days in July
1973. Starting point was the glaciological station
Jökulheimar and the route is shown on Fig. 1.
JÖKULL 28. ÁR 79