Jökull - 01.12.1978, Síða 93
Jöklarannsóknafélag íslands
Skýrsla formanns um störf félagsins starfsárið 23. febr. 1977 til I6.febr. 1978
Góðir félagar.
Enn er eitt starfsár að baki og formanni
skylt að gera grein fyrir því, sem gerst hefur
varðandi félagið á því ári.
Eg mun, sem í fyrra, víkja fyrst að rann-
sóknarstarfseminni.
RANNSÓKNIR
Farin var að venju könnunarferð í Gríms-
vötn til að athuga ástandið þar. Stóð Vega-
gerð ríkisins að kostnaði við þetta með sama
hætti og nokkur undangengin ár og Lands-
virkjun lánaði snjóbíl sem fyrr. Eiga forráða-
menn þessara stofnana þakkir skildar fyrir
skilning sinn á nytsemi jöklarannsókna. Hins
vegar gengur okkur erfiðlega að koma þeim
annars mæta og skynsama embættismanni,
orkumálastjóra, í skilning um þetta, og erum
við, sem áhuga höfum á jökla- og snjórann-
sóknum, skilningssljóir á þennan skilnings-
sljóleika, þar eð orkuvinnsla í okkar landi
byggir meira á jökulám en í nokkru öðru
landi.
í Grímsvötnum mældist nú minni vetrar-
ákoma en nokkru sinni áður þann aldarfjórð-
ung sem hún hefur verið mæld í Grímsvötn-
um, eða 1.98 sm hjarns.
Því miður mistókst að fá mælingu á vatns-
hæð í Grímsvatnaöskjunni. Þetta má ekki ske
aftur, ef ferð verður í Grímsvötn með fjár-
hagslegri aðstoð Vegagerðarinnar, því það er
vatnshæðin, sem hana varðar mest um. Verð-
ur því að vera tryggilega um það búið að vori,
að ekki sé heim snúið úr Grímsvötnum fyrr en
þessar hæðarmælingar hafa verið fram-
kvæmdar með einum eða öðrum hætti.
Það situr þó ekki á mér, sitjandi heima á
rassinum hvert vor, að áfellast neinn fyrir
þetta, enda munu slæmar aðstæður hafa ráð-
ið, en á þeim verður sem sagt að sigrast í næstu
ferð. Eg er sem fyrr þakklátur öllum þeim, sem
leggja á sig tíma og vinnu í þessar Gríms-
vatnaferðir. Sjálfboðavinna verður æ sjald-
gæfara fyrirbæri nú til dags.
Þær vísindarannsóknir á jöklum á síðasta
ári, sem áhugaverðastar eru, eru mælingarnar
með íssjá á Vatnajökli og Mýrdalsjökli. íssjána
hönnuðu og smíðuðu þeir Marteinn Sverris-
son á Raunvísindastofnun H. I. og Ævar Jó-
hannesson á Jarðfræðastofu og er þetta harla
merkilegt afrek, því svo breytt og bætt er þetta
tæki frá því breska tæki, sem haft var til fyr-
irmyndar, að segja má að um alveg nýtt tæki
sé að ræða. Tækið og íssjárrannsóknirnar voru
styrktar af Vísindasjóði og Eggert V. Briem.
Eiga raunvísindi sannarlega hauk í horni þar
sem Eggert er og fá honum seint fullþakkað.
í mælingaferðina á Vatnajökul var farið um
hvítasunnuna, 29. maí, og notið samflots við
þann hóp er reisa ætlaði skála í Kverkfjöllum,
upp Tungnárjökul, en síðan haldið á Gosa til
Grímsfjalls. Unnið var að mælingum á slétt-
unni austan við vötnin, en ófært þótti á snjóbíl
inn á vötnin sjálf. Á leið frá Grímsvötnum var
mælt samfellt snið frá Grímsfjalli niður á
Tungnárjökul. Komið í bæinn 5. júní. I þess-
um mælingum tóku þátt, auk Helga Björns-
sonar, áðurnefndir tækjasmiðir og Carl
Eiríksson.
Mæliferð á Mýrdalsjökul var farin 19. — 26.
ágúst. Farið á jökul upp frá Sólheimakoti.
Vélsleðar leigðir af björgunarsveitinni Vík-
verjum, sem aðstoðaði einnig við flutninga
upp á jökulinn, og einn Víkverjanna, Reynir
Ragnarsson, var með við mælingarnar ásamt
JÖKULL 28. ÁR 91