Jökull


Jökull - 01.12.1978, Page 95

Jökull - 01.12.1978, Page 95
þótt ég nefni ekki nöfn hér, en ég vona að frásögn af skálaferðum birtist í Jökli. Jón Isdal hefur gefið mér lýsingu á skálunum, sem verður fylgiskjal ársskýrslu. (Sjá 1. og 2. mynd). Ferðamálaráð veitti okkur rausnarlega fjár- hagsaðstoð, hálfa milljón króna. Ég flyt hug- heilar þakkir Lúðvík Hjálmtýssyni fram- kvæmdastjóra ráðsins og formanni, Heimi Hannessyni. Við vonum að þetta geti að ein- hverju leyti orðið átak í þágu ferðamála. Eins og getið var um í síðustu ársskýrslu, veitti Ferðafélag Islands 100 þúsund krónur í hvorn skála. Af Grallarafé fóru 115 þúsund í skálana, en 100 þúsund eru af Grallarafé aflögu til ýmislegs varðandi Jökulheimaskálann, 50 þúsund bárust í gjöfum frá nokkrum vildar- mönnum, og fleiri eigum við að sem fyrr þegar um skálabyggingar er að ræða, og enn þegi ég um nöfn eða nafn. Skálarnir eru nú fullborg- aðir. Orð hefur verið haft á því, að úr því svona vel gengi ætti að halda áfram skála- byggingum á þessu ári, en stjórnin hefur ígrundað þetta mál og telur ráðlegra að fara hægara í sakirnar og verja þessu ári til undir- búnings hugsanlegrar skálabyggingar á árinu þar næsta, ef fé yrði þá fyrir hendi til slíkra framkvæmda. Væri t. d. æskilegt að gera út ferð með snjóþotum, eða með öðru móti, austur á Grendilssvæðið til að athuga hugs- anlegt skálastæði, en skáli austur þar gæti opnað sleða- og snjóþotuleið eftir Vatnajökli endilöngum. Við eigum skála á Breiðamerkursandi. Hann hefur mjög verið notaður af breskum vísindamönnum hin síðari ár. Þetta er nú að verða dálítið vandamál, því enda þótt engir Bretahópar fái nú leyfi til að dvelja í skálan- um, nema með þeim skilyrðum að víkja hve- nær sem gesti á okkar vegum ber að garði, þá vita allir, að það getur verið erfitt að koma mönnum úr húsi, t. d. ef veður er vont. Enn hafa engir útlendingar fengið þarna leyfi á sumri komanda, enda þurfa bæði F. I. og við að eiga aðgang að skálanum í sambandi við Esjufjallaferðir. En efalítið munu einhverjir Bretar sækja á að fá þar eitthvert athvarf. E. t. v. ætti að þilja af einhvern hluta af honum, og þegar í vor ætti að setja upp í skálann lista yfir þær ferðir á okkar eða F. I. vegum, sem þá verða ákveðnar. Um Jökulheima er það að segja, að þar var fúavarnarefni borið á hús og gaf einn velunn- ari, Gizur Símonarson, þetta efni. ÚTGÁFUSTARFSEMI Eg vík þá að útgáfustarfseminni, þ. e. a. s. Jökli. Árgangurinn 1975 og 1976 kom út á Mynd 2. Skáli J öklarannsókna- félagsins í Kverk- fjöllum. JÖKULL 28. ÁR 93
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.