Jökull - 01.12.1978, Qupperneq 95
þótt ég nefni ekki nöfn hér, en ég vona að
frásögn af skálaferðum birtist í Jökli. Jón Isdal
hefur gefið mér lýsingu á skálunum, sem
verður fylgiskjal ársskýrslu. (Sjá 1. og 2.
mynd).
Ferðamálaráð veitti okkur rausnarlega fjár-
hagsaðstoð, hálfa milljón króna. Ég flyt hug-
heilar þakkir Lúðvík Hjálmtýssyni fram-
kvæmdastjóra ráðsins og formanni, Heimi
Hannessyni. Við vonum að þetta geti að ein-
hverju leyti orðið átak í þágu ferðamála. Eins
og getið var um í síðustu ársskýrslu, veitti
Ferðafélag Islands 100 þúsund krónur í hvorn
skála. Af Grallarafé fóru 115 þúsund í skálana,
en 100 þúsund eru af Grallarafé aflögu til
ýmislegs varðandi Jökulheimaskálann, 50
þúsund bárust í gjöfum frá nokkrum vildar-
mönnum, og fleiri eigum við að sem fyrr þegar
um skálabyggingar er að ræða, og enn þegi ég
um nöfn eða nafn. Skálarnir eru nú fullborg-
aðir. Orð hefur verið haft á því, að úr því
svona vel gengi ætti að halda áfram skála-
byggingum á þessu ári, en stjórnin hefur
ígrundað þetta mál og telur ráðlegra að fara
hægara í sakirnar og verja þessu ári til undir-
búnings hugsanlegrar skálabyggingar á árinu
þar næsta, ef fé yrði þá fyrir hendi til slíkra
framkvæmda. Væri t. d. æskilegt að gera út
ferð með snjóþotum, eða með öðru móti,
austur á Grendilssvæðið til að athuga hugs-
anlegt skálastæði, en skáli austur þar gæti
opnað sleða- og snjóþotuleið eftir Vatnajökli
endilöngum.
Við eigum skála á Breiðamerkursandi.
Hann hefur mjög verið notaður af breskum
vísindamönnum hin síðari ár. Þetta er nú að
verða dálítið vandamál, því enda þótt engir
Bretahópar fái nú leyfi til að dvelja í skálan-
um, nema með þeim skilyrðum að víkja hve-
nær sem gesti á okkar vegum ber að garði, þá
vita allir, að það getur verið erfitt að koma
mönnum úr húsi, t. d. ef veður er vont. Enn
hafa engir útlendingar fengið þarna leyfi á
sumri komanda, enda þurfa bæði F. I. og við
að eiga aðgang að skálanum í sambandi við
Esjufjallaferðir. En efalítið munu einhverjir
Bretar sækja á að fá þar eitthvert athvarf. E. t.
v. ætti að þilja af einhvern hluta af honum, og
þegar í vor ætti að setja upp í skálann lista yfir
þær ferðir á okkar eða F. I. vegum, sem þá
verða ákveðnar.
Um Jökulheima er það að segja, að þar var
fúavarnarefni borið á hús og gaf einn velunn-
ari, Gizur Símonarson, þetta efni.
ÚTGÁFUSTARFSEMI
Eg vík þá að útgáfustarfseminni, þ. e. a. s.
Jökli. Árgangurinn 1975 og 1976 kom út á
Mynd 2. Skáli
J öklarannsókna-
félagsins í Kverk-
fjöllum.
JÖKULL 28. ÁR 93