Jökull - 01.12.1986, Síða 96
við enn ijarskyldari aðila. En það er kortlagning norð-
urhluta Langjökuls á síðastliðnu sumri. Jökulhvelið,
sem allt fram á þessa öld hefur gengið undir nafninu
Baldjökull er 120 metrum hærra en talið hefur verið á
kortablöðunum, þ.e.a.s. 1420 m í stað 1300 m y.s.
FRAMFARIR OG TÆKNI
Dagana 26.-29. ágúst s.l. var haldin hér í Reykja-
vík alþjóðleg ráðstefna um jöklamælingar og korta-
gerð. Þátttakendur voru 102 frá 14 löndum, þar af 23
íslendingar. Haldin voru 40 erindi og 20 önnur verk-
efni sýnd á veggspjöldum.
Niðurstöður munu væntanlega verða birtar nú fyrir
mitt ár í Annals of Glaciology Vol. 8, sem gefið er út í
aðalstöðvum Alþjóðlega jöklarannsóknafélagsins í
Cambridge í Englandi. Samtímis var haldin sýning í
anddyri Norræna hússins á ritum, kortum, loftmynd-
um og ljósmyndum úr sögu jöklarannsókna á íslandi.
Að lokinni ráðstefnunni var farin þriggja daga ferð um
Suðurland og þátttakendum sýndir jöklar, jökulár,
jökulsandar og virkjanir. Hinn daglegi umsýslunar-
maður ráðstefnunnar hér á landi var Helgi Björnsson.
Ráðstefnan gaf íslendingum gott tækifæri til að
kynnast og fylgjast með framförum á sviði mælitækni.
Það er raunar aðeins skipulags- og kostnaðaratriði að
hverfa frá núverandi jöklamælingum á jökulsporðum
og taka upp myndtækni í staðinn. Einnig eru senni-
lega allar langsniðsmælingar með gömlu fallmælinga-
aðferðinni úr sögunni, í staðinn koma geoid-snið eða
þá laser-snið eða radargeislar frá þyrlum eða gervi-
hnöttum. En verum ekki með neinar grillur út í þessi
atriði. Strax í næsta mánuði efnir Rannsóknaráð ríkis-
ins til ráðstefnu um fjarkönnun með færum vísinda-
mönnum, svo að innan hálfs mánaðar má gera ráð
fyrir að margt verði ljósara, hvað viðkemur jöklarann-
sóknum hér á landi í framtíðinni, bæði um tækni og
kostnað.
JÖKULL
JÖKULL 35 ár (1985) kom út í september, þ.e.a.s.
hann kom út á réttu ári, eins og gerst hafði einnig árið
áður. Alls er hann 160 bls. greinar eru 25, þar af 8 á
ensku. Helmingur ritsins er á íslensku.
Þeim sem hafa harla lítil not af enskum greinum
hættir til að draga það úr hömlu að leysa inn félags-
gjalda gíróseðlana sína og fá því ekki ritið beint úr
bókbandi prentsmiðjunnar. Þeir hinir sömu vissu það
auðvitað ekki að ritið lá og beið með auðmeltan ís-
lenskan fróðleik.
Ritstjórarnir Helgi Björnsson og Leó Kristjánsson
voru ákveðnir í að hætta ritstjóminni eftir útkomu
blaðsins. Við hefur tekið Ólafur G. Flóvenz. Bak-
við sig hefur hann 6 manna ritnefnd, þrjá frá Jökla-
rannsóknafélaginu og þrjá frá Jarðfræðafélaginu. Frá
Jöklarannsóknafélaginu eru þessir ritnefndarmenn:
Helgi Björnsson
Tómas Jóhannesson
Magnús Hallgrímsson
Jöklarannsóknafélagið þakkar fráfarandi ritstjórum
mikið og gott starf.
SKÁLAR
Skálar félagsins eru 8 talsins eins og í upphafi árs.
En skálanefnd hefur flutt þá tillögu og stjórn sam-
þykkt að byggður verði nýr skáli á Grímsfjalli. Hug-
mynda- og teiknismíðar eru í fullum gangi. Ætlast er
til að skálinn hafi 24 svefnpláss, og að hann verði
byggður 87. Formaður skálanefndar er Stefán Bjarna-
son.
Hlúð hefur verið að skálum, gluggar lagfærðir, mál-
að og sitthvað fleira endurbætt eða lagað, það sem
aflaga hefur farið, sjá Fréttabréfin t.d. nr. 10.
Rafstöð og hitaveita. í vorferðinni til Grímsvatna
var gert við rafstöðina. í fyrravetur (84/85) fraus
þéttivatn í leiðslum og orsakaði gangtruflanir. Meira
var gert. Það var lögð hitaveita í skálann. Á hana
verður komin reynsla þegar nýi skálinn kemur upp.
Nú er Jón Sveinsson orðinn bæði rafmagns- og hita-
veitustjóri í Tungnaár- og Grímsvatnahreppi.
INNRA STARF FÉLAGSINS
Bókageymsla. Eins og kom fram á síðasta aðalfundi
þurfti félagið að rýma herbergið að Hagamel 6, sem
það hafði haft undir bókasafni sínu til fjölda ára. Fe-
Iagið fékk inni í kjallara að Bakkagerði 9. Herbergið
hefur ýmsa góða kosti, en er of lítið, þar verða þvi
miður stjórnarfundir ekki haldnir.
Félagsfundir. Á milli aðalfunda voru tveir félags-
fundir haldnir hér að Hótel Hofi. Hinn fyrri var 18.
apríl. Tómas Jóhannesson sagði frá og sýndi myndir
af íshellum Suðurskautsins. Hinn síðari var 3. des. til-
einkaður minningu um Guðmund Jónasson. Þórarinn
Guðnason læknir flutti erindi sem hann nefndi Gaml-
ar minningar. Árni Kjartansson og Pétur Þorleifsson
sýndu myndir m.a. frá fyrstu ferðum félagsins. I lok
fundar afhenti Ámi félaginu að gjöf kvikmyndaspólu
með ferðunum og byggingu Jökulheima. Báðir fund-
irnir voru vel sóttir, á þeim fyrri 70 manns en þeim
síðari 100.
Árshátíð var 26. október að Hverfisgötu 105.
Rœðumaður kvöldsins var Sigurður Steinþórsson og
veislustjóri Jón Sveinsson. Formaður skemmtinefndar
er Gylfi Gunnarsson.
94