Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Page 5
Alþjóðavettvcmgur
23. fulltrúaráðsþing
Heimssambands iðjuþjálfa
Hope Knútsson,
FORMAÐUR IÞÍ
Frá fulltrúaráösþingi Heimssambands iöjuþjálfa í Kanada 1998
Annað hvert ár er haldið full-
trúaþing á vegum Heimssam-
bands iöjuþjálfa „World Feder-
ation of Occupational Ther-
apists". í maí síöast liðnum var
þingið, sem stendur í 6 daga
haldið í Ottawa, höfuðborg
Kanada. Þess má geta að for-
setinn kallaöi þingið saman
meö gömlum íslenskum stein-
hamri! Starf sambandsins fer
að stærstum hluta fram á full-
trúaþinginu sem er nokkurs
konar vinnufundur. Ég hef sótt
fulltrúaráösfundi í tvo áratugi
og mér þótti fundurinn í ár vera
sá besti hingað til. Spennandi
breytingar eru framundan og
þrátt fyrir hræöslu og kvíða
sem oft fylgja, er andrúmsloftið
í heimssambandinu afar jákvætt
Þessa dagana.
Breyttir tímar
Byrjað var á „Focus Day" eða umræðu-
degi sem helgaður er ákveðnu efni og
ekki eins formlegur og fulltrúaþingið
sjálft. Markmiðið með umræðudeginum
er að þátttakendur ræði saman, gefi nýj-
um fulltrúum tækifæri til að kynna sig
og skiptist á skoðunum bæði í stórum
hópi og í smærri vinnuhópum, sem
fjalla um mismunandi spurningar er
fengjast aðalefninu. Efnið í þetta sinn
yar sú nýja innri uppbygging sambands-
ins en hún tekur gildi á næsta fulltrúa-
þingi árið 2000 í Sapporo í Japan. Það er
um það bil áratugur síðan umræðan um
breytingar á nefndarskipan sambands-
ins hófst, en núverandi skipan hefur
verið við lýði frá 1952 þegar heimssam-
bandið var stofnað.
Tímarnir hafa breyst og margir eru
þeirrar skoðunar að fastar nefndir hafi
ekki nægan sveigjanleika til að bregðast
við þeim margvíslegu verkefnum sem
upp koma hjá WFOT. Dagskráin á full-
trúaráðsþinginu samanstendur yfirleitt
af 25-30 málsatriðum. Mikill tími fer í að
hlýða á gamlar skýrslur og að semja nýj-
ar skýrslur. Þegar allt að 60 manns ferð-
ast langt og kosta til þess miklu fé, kýs
fólk að hafa meiri tíma til að ræða sam-
an, forgangsraða verkefnum og nýta
þann gífurlega kraft og hæfileika sem
skapast.
Nýtt líkan
í stað fastra nefnda sem einungis sinna
einu verkefni (t.d. gefa út blað eða halda
tengslum við önnur félög), verður fjöldi
vinnuhópa sem starfa tímabundið sam-
kvæmt skipaðri forgangsröð. Verkefnin
verða sérhæfðari og fólki er gefið færi á
að sinna þeim viðfangsefnum sem það
hefur áhuga á. Stjórnin mun gera vinnu-
áætlun, bæði til lengri og skemmri tíma.
Sett verður af stað verkefnisstjórakerfi
(program manager) og náin tengsl verða
við stjórnina. Vinnuhóparnir mega
starfa í tvö, fjögur eða sex ár. Fulltrúa-
ráðsfundir framtíðarinnar verða nýttir
til að horfa fram á við, frekar en til for-
tíðar.
Nokkurrar hræðslu gætir við breyt-
ingar af þessu tagi og hönnuður líkans-
ins þurfti að sannfæra fólk um ágæti
þess. En starfið ætti að verða mun skil-
virkara og að þetta sé einungis ný aðferð
til að skera kökuna. Akveðið var að
næsti umræðudagur verði notaður til að
veita þjálfun í nýja stjórnunarlíkaninu.
Fulltrúarþingið sjálft verður síðan nýtt
til að skilgreina verkefni, stofna vinnu-
hópa sem ákveða hvernig á að starfa og
IÐJUÞJÁLFINN 2/98 5