Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 16

Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 16
HÚSNÆÐISMÁL FÓLKS MEÐ GEÐRÆNAN VANDA Markmiö þessarar greinar er að vekja athygli á húsnæöismálum geöfatlaöra. Búseta á vernduöum heirnilum er eitt af úrræðum geödeildar Landspítalans og gerum viö því sérstaklega skil. Fé- lagsráögjafar meta félagslega stöðu þeirra einstaklinga sem leita á geð- deild. Geösjúkum er oft þröngur stakkur skorinn og andlegur sjúkdóm- SVEINBJÖRG J. SVAVARSDÓTTIR Alfheiður Guðlaugsdóttir Það er að mörgu leyti lærdómsríkt að koma inn á heimili annarra. Þar sannast hið fornkveðna að glöggt er gestsaug- að. Inni á heimilun- um er hugað að sam- skiptum, samkennd, samspili og jafnræði. ur getur haft ófyrirséðar afleiöingar fyrir viðkomandi einstakling. Því oft er um aö ræða atvinnumissi, fjárhags- erfiðleika og húsnæöisvanda. Mikill tími fer í að leysa úr slíkum málum sem títt valda auknu álagi og geta hindrað einstaklinginn í að lifa eðli- lega. Þaö aö hafa ekki fasta búsetu veldur öryggisleysi sem aftur leiöir til aö viðkomandi einstaklingur á erfitt meö aö einbeita sér aö úrlausn ann- arra mála. Úrræði Markmiðið er að tryggja þeim sem eiga við and- lega eða líkamlega fötlun að stríða sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi (1). En hvað er eðlilegt líf? Almennt er talið að það sé fólgið í því að hafa þak yfir höf- uðið, vinnu við hæfi og gott fé- lagslegt tengslanet. í lögum um málefni fatlaðra er skýrt kveðið á um að sveitar- stjórnir skulu, eftir því sem kost- ur er og þörf er á tryggja fram- boð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleigu- húsnæði og/eða fé- lagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna (2). Boðið er upp á mismunandi búsetuform eftir því hve viðkomandi einstaklingur þarf mikla aðstoð til þess að geta búið sem sjálfstæðast. Geðfatlaðir geta t.d. sótt um félagslegar íbúðir, verndaðar íbúðir, sambýli og áfangastaði. Þessir möguleikar eru í boði á vegum Félagsmála- stofnunar Reykjavíkur, Svæðisstjórnar og Ör- yrkjabandalagsins. Vernduð heimili Það er öllum löngu ljóst sem til þekkja að bú- setuform fatlaðra þurfa að miðast við getu þeirra. Vernduð heimili henta vel þeim skjól- stæðingum sem hvorki treysta sér til né vilja búa einir, en geta þó að mörgu leyti bjargað sér ágætlega. Þessi heimili mættu vera fleiri og gætu þau náð til stærri hóps með auknum stuðningi, miðað við þarfir viðkomandi. I lögum um málefni fatlaðra frá 1984 er lögð áhersla á samskipan sem felur í sér að fötluðum sé gert kleift að lifa við sömu aðstæður og skil- yrði og aðrir í samfélaginu. Það felur m.a. í sér að fatlaðir búi dreift meðal annarra íbúa. Þeir verði sjáanlegir í samfélaginu og að samskipti fatlaðra og ófatlaðra verði sjálfsögð og eðlileg (3). Samstarf félagsráðgjafa á Geðdeild Landspít- alans og Félagsmálastofnunar Reykjavíkur hófst árið 1972. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á hugtakið heimili. Astæða þess er sú að minna á mikilvægi þess að sjálft búsetuformið líkist sem mest venjulegu heimili, en ekki stofnun með þjónustu. Verkefni félagsráðgjafa er að viðhalda þessari hugmyndafræði eftir föngum, vera í góðu sambandi við íbúana og til taks ef einhver veikist. A hverju heimili er húsfundur haldinn einu sinni í viku að meðaltali. Félagsráðgjafi er þá til staðar til að taka á innanhússmálum, að- stoða við ákvarðanatöku og sinna öðrum þeim málefnum sem íbúarnir óska. Frá Reykjavíkurborg kemur félagsleg heima- þjónusta (4) og nokkrir íbúanna hafa liðveislu samkvæmt lögum (5). Þurfi að ræða mál sem varða íbúana persónulega er þeim bent á að fá viðtal á göngudeild. 1 könnun sem gerð var 1993 á innlagnardög- um fyrir og eftir búsetu á vernduðu heimili árin 1989-1992, kom í ljós að innlagnardögum fækk- 16 IÐJUÞJÁLFINN 2/98

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.