Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 15

Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 15
antekt á undangengnu viðtali. Síðan er kannað í upphafi hvers viðtals, hvaða áhrif síðasta viðtal hafði á skjólstæðing- inn. Ef meðferðin gengur sem skyldi og skjólstæðingurinn hefur náð góðum tökum á þeim aðferðum sem kenndar hafa verið, leiðir það til þess að hann lætur ekki svo auðveldlega stjórnast af þessum sjálfvirku hugsunum. Hann hefur þar með tileinkað sér „heilbrigðari" hugsunarhátt. í lok meðferðar er lögð áhersla á að skjól- stæðingurinn haldi áfram að vinna á sama hátt og meðan á meðferðinni stóð. Viðtalsmeðferðin sem slík sé í raun námsferli sem heldur áfram það sem eftir er ævinnar. Útskrift Héðan af Reykjalundi hafa um 15 ein- staklingar útskrifast úr hugrænni at- ferlismeðferð og árangurinn lofar góðu. Áhuginn er mikill hjá teyminu og þess má geta að þrír aðilar úr geðteyminu fóru á ráðstefnu um hug- ræna meðferð í lok sumars. Njótum við hin þess nú að sitja vikulega fræðslu- fundi, þar sem þau miðla því sem þau urðu vísari á þessari ráðstefnu. Nú Fyrir utan viðtölin sjálf er mikið lagt upp úr heimavinnu skjólstæðingsins og er hann á þann máta gerður ábyrgur fyr- ir framvindu meðferðarinnar. hafa iðjuþjálfar úr verkjateymi Reykja- lundar bæst í þennan hóp, þar sem þær telja fullvíst að þetta geti nýst þeirra skjólstæðingum. Við sem störf- um með þessa hugrænu meðferð á Reykjalundi hittumst enn einu sinni í viku undir handleiðslu Péturs Hauks- sonar. Þá ræðum bæði vandamál og annað sem viðkemur vinnu okkar með skjólstæðingum í hugrænni meðferð. Núna stendur fyrir dyrum að gera könnun á árangri þessarar meðferðar hér á Reykjalundi. Markmiðið er að kanna hvernig þeim einstaklingum sem lokið hafa þessari meðferð hjá okkur vegnar, eftir að hafa verið í sínu raunverulega umhverfi í um tvo mánuði. Forvinna að þessari könnun er nú í fullum gangi. Að lokum vil ég segja að sú vinna sem teymið hefur innt af hendi við undirbúning þessarar meðferðar, hefur klárlega styrkt teymið í sinni fag- legu vinnu. Einnig hefur þessi vinna aukið samstöðu okkar og ýtt undir fag- legan áhuga teymisins í heild sinni. Höfundur er iðjuþjálfi og starfar í geðteymi Reykjalundar. REYKiALUNDUR Laus er staða iðjuþjálfa á gigtarsviði. Um er að ræða 100% afleysingastöðu sem fyrst vegna veikinda og fæðingarorlofs. Hæfniskröfur: Próf í iðjuþjálfun frá skóla viðurkenndum af Alheimssamtökum iðjuþjálfa (WFOT) og meö íslenskt starfsleyfi og löggildingu frá Heilbrigðisráðuneyti. Meginstarfssvið og skyldur eru: • Að skipuleggja og hrinda í framkvæmd sérhæföum meðferðaráætlunum fyrir skjólstæðinga gigtarsviðs í samræmi við siðareglur, grundvallarsjónarmið og starf- shætti iðjuþjálfunar. Reykjalundur er 170 rúma endurhæfingarmiðstöð. Þar starfa 11 iðjuþjálfar á 7 sviðum. Unnið erí teymum sem samanstanda af iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, læknum, hjúkrunarfræðingum, félagsráðgjöfum, heilsuþjálfurum og talmeinafræðingum. Nánari upplýsingar gefur Lilja Ingvarsson, yfiriðjuþjálfi í síma 566-6200 • Umsjón með starfsskipulagi iðjuþjálfunar á gigtarsviði. • Að vinna náið með öðru starfsfólki deildarinnar, gigtarteymis og öðru starfsfólki stofnunarinnar. • Fagleg mótun iðjuþjálfunar á gigtarsviði í samráði og samvinnu við yfiriðjuþjálfa. Fylgjast með nýjungum í íhlu- tun og tækjabúnaði á gigtarsviði. • Ráðgjöf um íhlutun iðjuþjálfa á gigtarsviði. IÐJUÞJÁLFINN 2/98 15

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.