Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 27

Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 27
RETTINDAGÆSLA OG REKSTUR ÞJÓNUSTU Geðhjálp á leið inn í nýja tíma Geðhjálp hefur síðustu misserin unnið að því að fá iðjuþjálfa til liðs við fé- lagið. Tilgangurinn er að þróa áfram þá starfsemi sem fer fram í félagsmið- stöðinni, efla og auka fjölbreytni í frí- stundatilboðum og gera þau að raun- hæfu vali fyrir geðfatlaða. Reynslan af félagsmiöstööinni hefur sýnt að skipu- lögð starfsemi skilar sér best og þess vegna er Geöhjálp að leita leiða til að fjármagna starf iöjuþjálfa. Það hljóm- ar metnaðarfullt af félaginu og áhuga- vert fyrir fagaðila, aö Geðhjálp skuli vilja laða iðjuþjálfa til samstarfs og standa í rekstri þjónustu við geðfatl- aða utan sjúkrastofnana. Hér á eftir ætla ég að fara nokkrum orðum um þá mótsögn sem felst í starfi frjálsra félagasamtaka sem réttindagæslu- og rekstraraðilar. Hvað er það sem réttlætir að hags- munasamtök eins og Geðhjálp reki sjálft lögboðna þjónustu fyrir skjól- stæöinga sína? Það gæti einnig verið áhugavert fyrir iöjuþjálfa sem starfa eða hyggjast starfa í sínu fagi fyrir félagasamtök að deila meö mér þess- um hugleiöingum og íhuga hvort þaö eitt að starfa hjá frjálsum félagasam- tökum kalli á aðra nálgun við við- fangsefn sitt en starf hjá hinu opin- bera eða hjá fyrirtæki. Þriðja aflið Geðhjálp eru fyrst og fremst hagsmunasamtök og réttindagæsluaðili geðsjúkra og aðstand- enda þeirra. Félagið var stofnað af áhugafólki haustið 1979 og í fyrstu eingöngu rekið af sjálf- boðaliðum. Fljótlega var þó ráðinn fram- kvæmdastjóri til félagsins sem sá um opið hús í félagsmiðstöðinni og sinnti öðru því sem ekki var hægt að sinna í sjálfboðnu starfi. Geðhjálp er stofnað sem andsvar sjúklinga og aðstand- enda þeirra við valdi fagstétta innan Geðvernd- arfélags Islands. En það félag var stofnað árið 1949 af læknum og öðru fagfólki. Geðhjálp starfaði í 15 ár sem áhugamanna- og sjálfboða- liðasamtök. Arið 1994 var vendipunktur í starfsemi Geð- hjálpar. Félagið gerði þjónustusamning við fé- lagsmálaráðuneytið og Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra í Reykjavík um rekstur áfanga- heimilis. Einnig jókst liðveisla við 30 geðfatlaða sem flestir komu af langlegudeildum Landspít- alans. Með þessum samningi hefst nýtt tímabil í sögu Geðhjálpar. Félagið er orðið rekstraraðili lögboðinnar opinberrar þjónustu og atvinnu- mennska heldur innreið sína, við hlið sjálfboð- inna starfa og áhugamennsku. Þessi breyting kallaði á gagnrýni og fannst sumum félagið hafa fjarlægst uppruna sinn með því að sitja nú beggja vegna borðs sem hagsmunagæsluaðili og rekstraraðili. Þessi gagnrýni er réttmæt og í henni felst sannleikskorn sem ætíð ber að vera vakandi yfir. Almennt séð má líta á frjáls félagasamtök sem þriðja aflið í þjóðfélaginu við hlið hins op- inbera og markaðarins. Frjáls félagsamtök eru ólík innbyrðis, en eiga það sameig- inlegt að vera hvorki opinberar stofnanir né fyrirtæki. Þau eru jafnframt óháð hinu opinbera og lúta ekki lögmáli markaðarins um ágóða af starfsemi sinni. Þegar litið er til sögu frjálsra félagasamtaka á íslandi sjáum við að í árdaga þeirra voru það líknarfélög á borð við SÍBS, Hringinn, Styrktarfélag vangef- inna o.fl. sem gerðu stórvirki á sviði heilbrigðis- og félagsmála með rekstri sjúkrastofnana og þjónustumiðstöðva fyrir sína skjólstæðinga. Þessi félög hafa öll lif- að sitt blómaskeið og krepputíma. Þau hafa brugðist við breyttum aðstæðum með mismun- andi hætti og breytt um stefnu eða fundið sér nýtt hlutverk. Geðhjálp hefur einnig kynnst þessu blóma- og hnignunarskeiði og kemur til með að gera það áfram. Sú leið sem Geðhjálp kaus að fara árið 1994, hjálpaði félaginu út úr Ingólfur H. Ingólfsson Félagasamtök líta á sig sem frumkvöðla og byggja á eld- móði félagsmanna og vilja til sjálfshjálpar. Þetta leiðir hug- ann að því sem nefna má lýð- ræðisleg rök fyrir þátttöku frjálsra félagasamtaka í rekstri lögboðinnar þjónustu. IÐJUÞJÁLFINN 2/98 27

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.