Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 13

Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Blaðsíða 13
Þannig fram að í 60 mínútur er unnið að myndgerð án þess að hópmeðlimir iaii saman og síðan er 60 mínútna samtalstími þar sem myndverkin eru skoðuð og rædd. Markmiðið með þögninni er að ýta undir að hver og einn hafi næði til að hverfa á innri mi& °g afla þess sem mikilvægt getur verið hverju sinni. Markmiðið með því að deila síðan myndverkum með hópn- um er að auka innsæi og finna eða varpa Ijósi á sameiginlega reynslu hópsins. Til þess að þetta geti átt sér stað er v|ðvera þerapistans nauðsynleg. Hann er sa sem vakir yfir, sér og heyrir. Sé örygg- ls þannig gætt er hópnum óhætt að hverfa inn á við þar sem tilfinningar, minningar og upplifanir búa. Á mörkun- Um þar sem innri raunveruleiki og ytra hf mætist er eins konar áningastaður fyr- lr manninn, sem stöðugt fæst við að mda innri og ytri raunveruleika aðskild- Um en jafnframt samtengdum. í þessu rými leikur barnið sér og hinn fullorðni talar. í listmeðferð verður myndverkið til 1 þessu rými, þar á sköpunin sér stað og vakandi athygli þerapistans gerir hópn- um kleift að gleyma sér við sköpunina. I hstmeðferðarherberginu á Hvíta- handi er stórt borð fyrir miðju þar sem j'umast átta manns. í skápnum er fjöl- reýtt efnisval, allt frá blýöntum, reglu- stikum og strokleðrum að pastellitum, vatnslitum, þekjulitum og leir. Pappírinn er 1 öllum stærðum og litum og stafli af myndskreyttum tímaritum til að klippa uiður og líma saman. Allt sem verður til í istmeðferðarherberginu tilheyrir með- eröinni og er geymt í þar til gerðum möppum meðan á meðferð stendur. í listmeðferð er leitast við að stuðla að betri sjálfsstjórn, byggja upp innra öryggi og sterkari sjálfsvitund. Meðferð- in getur varpað Ijósi á tengsl tilfinninga og hugsana og aukið þannig skilning og innsæi. Samþætting í listmeðferð með langtíma hópunum er lögð áhersla á sjálfsprottið mynd-og efnis- val (non-directive approach) sem fellur að analytiskri hugmyndafræði deildarinnar. Tæknilegri færni eða listrænni kunnáttu hópmeðlima er ekki gefið sérstakt vægi. Þerapistinn leggur áherslu á tengsl höf- undar við verkið, tilfinningar og hugsanir því tengdu eða jafnvel líðan þess sem sit- ur aðgerðarlaus heflan hóptíma og áhrifin sem það hefur á hópinn. Þessi nálgun stuðlar að því að sjúklingurinn tengist smám saman ýmsum þáttum, sem búa innra með honum á dýpri hátt en áður. Innsæi og viðfangsefni flytjast einnig frá listmeðferð yfir í samtalshóp og þaðan í líkamsvitundarhóp og áfram í listmeð- ferð, þannig fléttast meðferðin á deildinni saman. Þessi nána samvinna ýmissa fag- aðila sem leiða hópana gerir miklar kröfur um stöðug samskipti þeirra, reglulegt „feed-back" og eru klíniskir fundir undir- staða samstarfs af slíku tagi. Höfundar starfa allir við geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, hópmeðferðar- deild Hvítabandi. Heimildaskrá 1) Psychotherapy through the Group Process Dorothy Stock Whitaker & Morton A Lieberman Aldine Publ- ishing Company / New York 1977 2) The Theory and Practice of Group Psychotherapy Irving D. Yaloom Basic Books Inc. / New York 1970 3) Psychodynamic Psychiatry in Clinical Practice The DSM-IV Edition Glen O. Gabbard M.D. American Psychiatric Press, Inc. 1994 ítarefni Group Analytic Psychotherapy Methods and Prindples S.H.FouIkes Gordon and Breach Sdence Publishers Ltd. / London 1975 Experiences in Groups W.R.Bion Basic Books. 1959 Ring of Fire: Primitive Affects and Object Relations in Group Psychotherapy Ritstj. Victor L. Schermer og Malcom Pines Routledge, London 1994 The Anti Group Destructive forces in the group and their creative potential Morris Nitsun Routledge 1996 Playing and Reality Winnicott Tavistock 1971 Body Awareness Therapy and the Body Awareness Scale Treatment and Evalu- ation in Psychiatric Physiotherapy Rox- endal Göteborg 1985 Images of Art Therapy Tessa Dalley, Caroline Case, Joy Schaverien, Felicity Weir, Diana Halliday, Patricia Nowell Hall, Diane Waller. Tavistock / Routledge 1987 IÐJUÞJÁLFINN 2/98 13

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.