Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Side 6
áætla fjármagnsþörf fyrir næsta tímabil.
Verkstjórar hópanna munu hitta stjórn-
ina og gefa skýrslur. Starfslýsingar fyrir
öll störf í sambandinu er skilyrði fyrir
þessum breytingum.
Efst á baugi
Heimssambandið er að verða meira
svæðaskipt. Það hófst með stofnun COT-
EC (Committee of Occupational Ther-
apists for the European Communities),
sem er Evrópunefnd iðjuþjálfa og IÞI er
aðili að. Nú eru til öflug svæðasamtök
iðjuþjálfa í Afríku, Asíu, rómönsku Am-
eríku, við Kyrrahafið og Karibahafið.
Fólk virðist afar sátt við þessa þróun og
það gætir nokkurs stolts vegna hennar.
Miklar umræður voru um notkun
skammstafana t.d. OT og WFOT. Niður-
staðan varð sú að alls staðar eru iðju-
þjálfar hvattir til að láta vera að nota
skammstafanir vegna þess að leikmenn
hafa oft ekki hugmynd um hvað átt er
við. Skammstöfunin OT á ensku getur
t.d. þýtt „overtime" eða margt annað í
ýmsum greinum. Það er mikilvægt atriði
að við segjum hvað stétt og samtök okk-
ar heita. Notum heitið Heimssamband
iðjuþjálfa í ræðu og riti í stað WFOT.
Annað stórt umræðuefni í ár voru
tungumála- og samskiptaörðugleikar.
Fleiri fulltrúar koma nú frá spænsku-
mælandi löndum en áður. Innan Heims-
sambandsins eru 4 opinber tungumál og
eru flestir bæklingar á þessum fjórum
tungumálum þ.e.a.s. ensku, frönsku,
þýsku og spænsku. Vandinn er sá að
spænskumælandi fulltrúar eiga í mestu
erfiðleikum með að taka þátt í umræð-
unni sem fer fram á ensku.
Aukin umsvif
Fimm félög fengu inngöngu í Heims-
sambandið að þessu sinni. Lög þeirra
höfðu verið skoðuð vandlega af hálfu
laganefndar. Þetta eru: Uganda, Suður-
Kórea, Mexikó, Mauritius og Lettland.
Nú eru aðildarlöndin í Heimssamband-
inu því orðin 50 talsins! Spurning er um
hvort tímabært sé að stofna aðalskrif-
stofu fyrir heimsambandið. Þetta var
rætt og ákveðið var að stofna vinnuhópa
sem Barbara O'Shea Ieiðir, til að skoða
spennandi tilboð sem fyrirtæki í Montr-
eal lagði fyrir þingið. Þess má geta að
heimssamband sjúkraþjálfara er með
bækistöð í London.
Mörg aðildarfélög hlutu ferðastyrki til
þátttöku á næsta fulltrúaþingi sem hald-
ið verður í Japan eftir 2 ár og var IÞÍ
meðal þeirra. Við fengum kr. 200.000 í
þátttökustyrk. Undirrituð starfar nú í
„Professional Practice" nefnd sem m.a.
er að hvetja alla til að skoða almennar
orðabækur í heimalandi sínu og reyna að
hafa áhrif á hvernig iðjuþjálfun er skil-
greind. A hverju fulltrúaþingi er einnig
úthlutað „Foundation Award" sem er
nokkurs konar rannsóknarstyrkur sem
einungis er veittur einstaklingum sem
eiga beina aðild að Heimsambandinu.
Upphæðin er allt að 5000 bandaríkjadal-
ir. Rannsóknarefnið þarf ekki að vera há-
vísindalegt. Tilkynning um þennan styrk
og umsóknareyðblað er sent út á milli
fulltrúaráðsþinga og verður auglýst í
Fréttabréfi IÞÍ.
Góður andi
Á kvöldin að löngum vinnudögum lokn-
um voru haldnar ýmsar þjóðlegar uppá-
komur. Kanadíska félagið bauð öllum
aðalfulltrúum og 1. varafulltrúum í
glæsilegan kvöldverð í þinghúsinu. For-
seti Heimsambandsins kallaði upp full-
trúa og afhenti okkur silfurnælur með
merki sambandsins. Við sáum meðal
annars hestadanssýningu í Royal Cana-
dian Mounted Police og haldin var mót-
taka í nýjasta safni Ottawaborgar
„Museum of Civilisations". Þar fengum
við einkaskoðunarferð um þessa afar
sérstöku byggingu þar sem 15.000 ára
saga hinna ýmsu þjóðflokka í Kanada er
rakin.
Heimssamband iðjuþjálfa er eins og
stór fjölskylda og þar ríkir góður andi.
Reyndar er nokkuð ótrúlegt að svona
margir þátttakendur frá svo mörgum
mismunandi menningarsvæðum geti
unnið saman á eins uppbyggjandi, já-
kæðan og virðulegan hátt og raunin er.
Íandspttalinn
i þágu mannúðar og visinria..
Geðdeild Landspítalans
Yfiriðjuþjálfi
Afleysingastaða yfiriðjuþjálfa á Kleppi er laus til
umsóknar frá 1. mars 1999 til 1. september
árið 2000.
Upplýsingar veita Anna Guðrún Arnardóttir
yfiriðjuþjálfi í síma 560-2580 / 560-2581 og
Elín Ebba Ásmundsdóttir forstöðumaður,
síma 560-1795/1792.
Iðjuþjálfi
óskast á geðdeild Landspítalans við Eiríksgötu
frá 1. januar 1999.
Upplýsingar veitir Sylviane L. Pétursson
yfiriðjuþjálfi, síma 560-1795/1792.
6 IÐJUÞJÁLFINN 2/98