Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Side 23
rannsóknir, menntun, þjálfun og hand-
leiðsla og skjólstæðingsvinna. Hér verður
bæði fjallað almennt um hvern flokk fyrir
sig, en einnig eins og hann snýr að iðju-
þjálfum á Reykjalundi sérstaklega.
Ábyreðarsvið oe skyldur
iðjuþjálfa
• Stjórnun og skipulagning
Hér er átt við það að skipuleggja vinnu
sína, skrá komur og annað er varðar
skjólstæðinga. Pöntun efna, tækja og
tóla, undirbúningur og frágangur á
vinnusvæðum, auk þess að viðhalda
tækjum.
• Almannatengsl
Hér er átt við alla kynningu á faginu og
deildinni fyrir samstarfsfólk jafnt og
gesti og gangandi.
• Þróun og rannsóknir
Mikill áhugi er meðal iðjuþjálfa á
framþróun og eflingu greinarinnar.
Það hefur alla tíð verið stefna stjórn-
enda iðjuþjálfunardeildarinnar, að
skapa svigrúm fyrir þennan hluta
starfseminnar. Slíkt eflir áhuga og
metnað starfsmanna og bætir jafn-
framt gæði íhlutunar auk þess að draga
úr hættu á því að starfsmenn brenni út í
starfi. Sá eldhugur sem ríkir í hópnum er
vaxtarsproti sem oftar en ekki teygir
anga sína inn í tómstundir iðjuþjálfanna
sjálfra. Hópmeðferðartilboð svo sem
bakskóli, slökun, neysluhæfing og
streitustjórnun, hafa orðið til í þróunar-
vinnu. Mótun slíkra þjálfunartilboða fel-
ur í sér könnun og lestur ritaðs efnis,
áætlanagerð, hönnun og gerð alls kyns
kennslugagna og skipulagningu verk-
legra æfinga. Öll fræðsludagskrá er end-
urskoðuð jafnt og þétt.
• Menntun, handleiðsla
og þjálfun
Iðjuþjálfar sækja fræðslu og símenntun
bæði innan og utan stofnunar. Fræðslan
hefur leitt af sér ýmsa þróunarvinnu,
skilað ánægðari iðjuþjálfum og mark-
vissari íhlutun til skjólstæðinga. Síðast
nefndi þátturinn hefur þó enn ekki verið
rannsakaður nægilega. Sú vinnuregla
gildir að þeir iðjuþjálfar sem sækja nám-
skeið á vegum stofnunarinnar miðli af
þekkingu sinni til hinna.
Síðast liðinn vetur kom upp ósk um
að fræðast um skjólstæðingsmiðaða
iðjuþjálfun (Client Centred Practice) og
líkanið um iðju mannsins (Model of
Human Occupation). Fólk skipaði sér í
áhugahópa og afmarkaður tími var sett-
ur í verkið. Sem dæmi má nefna þá
kynnti einn hópanna sér bókina „Ena-
bling Occupation: An occupational ther-
apy perspective" (ritstýrð af Townsend,
1997), til að fá innsýn í skjólstæðings-
miðaða iðju. Skjólstæðingsmiðað starf
vísar til samvinnu skjólstæðings og iðju-
þjálfa við það að efla iðju viðkomandi.
Áætlun liggur nú fyrir um að kafa
dýpra og markvissara niður í hvað felst í
slíkri nálgun og hvernig hún birtist í
starfi deildarinnar. Stefnt er að því að
árið 2000 verði hún hluti af hugmynda-
fræði hennar, samofin öllu starfi. Ymis-
legt fleira er á döfinni sem ekki verður
tíundað hér.
Skjólstæðingur tilgreinir iðju sem hann
á erfitt með að sinna á þann hátt sem
honum líkar, eða þá sem veldur honum
áhyggjum af einhverjum ástæðum og iðju
sem hann vill auka færni sína við eða
breyta á einhvern hátt.
Handleiðsla hefur verið iðkuð reglu-
lega í hópi iðjuþjálfa í tvö ár. Markmiðið
hefur fyrst og fremst verið það að auka
faglega og persónulega færni, en auk
þess að efla traust og opin tjáskipti inn-
an deildarinnar. Samkvæmt könnun
sem gerð var í iðjuþjálfahópnum nú í
haust, þykir flestum iðjuþjálfanna (92%)
tímanum sem fer í handleiðslu vel varið
og vilja halda henni áfram.
• Vinna með skjólstæðingum
Hér er átt við ferli iðjuþjálfunar til efling-
ar fæmi við iðju (sjá 2. mynd). í grófum
dráttum felur það í sér mat, forgangsröð-
un verkefna, markmiðssetningu, áætlun-
argerð, íhlutun og mat á árangri. Þetta er
gert í samvinnu við skjólstæðing og í takt
við gildismat hans og val.
Fræðileg nálgun
Líkan þeirra Fearing, Law & Clark
(1997): „Occupational Performance
Process Model", er haft að leiðarljósi (sjá
2. mynd). Þetta er starfslíkan, það er að
segja það sýnir hvernig hugtök
kanadíska færnilíkansins „Canadian
Model of Occupational Performance „
CMOP" eru notuð í starfi. Líkanið er
skjólstæðingsmiðað og lýtur að styrk
skjólstæðinganna og úrræðum sem að
þeim snúa, bæði í áætlun og fram-
kvæmd iðjuþjálfunar. Þannig er það frá-
brugðið fyrri líkönum og bætir þau upp
að mati Stanton, Tompson-Franson og
Kramer (1997). Eins og nafnið bendir til
þá er færni skjólstæðinga við iðju alltaf í
brennidepli.
Fæmi við iðju verður til við að:
skjólstæðingurinn prófar sig
áfram og áttar sig þannig á eigin
hæþii og möguleikum
skjólstæðingurinn sýnir hæfni
sem fullnægir þeim kröfum sem
hann gerir til sjálfs sín og aðrir
gera til hans
skjólstæðingurinn nær árangri
og stendur sig betur en krafist er, en það
eykur sjálfstraust hans (Christiansen
& Baum, 1991).
í iðjuþjálfun í geðteymi er íhlutun
byggð á fleiri en einu líkani. Líkanið um
ferli iðjuþjálfunar til eflingar færni við
iðju, byggir á kanadíska færnilíkaninu
en eins og það er notað á Reykjalundi
hefur það verið aðlagað töluvert. Hér er
því farið fremur frjálslega með notkun
þess. Líkanið er í sjö þrepum. Fyrst
verður fjallað almennt um hvert þrep og
í framhaldi af því dregið fram á hvern
hátt það er notað í iðjuþjálfun geðteymis
Reykjalundar.
^Ár
VÁTRVGGIIMGAFÉLAG ÍSLVNDS HF
- þar sem tryggingar snúast urn fólk
IÐJUÞJÁLFINN 2/98 23