Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Side 33
Fyrsta verknámstímabil Annað og þriðja verknámstímabil
Staða nemanda: Beiting þekkingar Staða nemanda: Yfirfærsla
Hlutverk leiðbeinanda: Kennsla__________ Hlutverk leiðbeinanda: Þjálfun
Tilgangur
að veita nemendum tækifæri til að:
• taka virkan þátt í vinnu með skjólstæðingum
• þróa og þjálfa samskipti, matsaðferðir og faglega rökleiðslu
• nýta þá þekkingu sem þeir hafa tileinkað sér fyrstu tvö
námsárin í starfsumhverfi iðjuþjálfa
• taka á móti og bregðast við uppbyggilegum leiðbeiningum
°g gagnrýni
• kynnast iðjuþjálfahlutverkinu
• taka þátt í afmörkuðum iðjuþjálfaverkefnum og
• byrja að tileinka sér starfshætti og faglegt atferli undir hand-
leiðslu leiðbeinanda
Þátttaka nemenda og leiðsögn
verknámskennara
Ahersla skal lögð á þróun samskiptafærni við skjólstæðinga,
aðstandendur, leiðbeinendur og annað fagfólk. Nemendur
skulu leitast við að nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér í
náminu við raunverulegar aðstæður. Á þessu stigi hafa nem-
endur þörf fyrir bein, tíð og afmörkuð samskipti við leiðbein-
endur. Ráðgjöf skal því vera hnitmiðuð og aðgengileg. Leið-
beinendur eru hvattir til að segja nemendum sögur af skjól-
stæðingum og sýna/kenna faglegt atferli hvenær sem færi
gefst. Nemendur skulu hvattir til að deila reynslu sinni og
þekkingu á verknámsstað og leitast við að samþætta fræði-
kenningar og það sem fyrir augu ber á staðnum.
Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til að fylgjast með
iðjuþjálfum að starfi og taka þátt í afmörkuðum iðjuþjálfaverk-
efnum eftir aðstæðum. Þetta getur falið í sér að meta færni og
virkni skjólstæðinga eftir mismunandi leiðum og gera grein
fyrir matsniðurstöðum í töluðu og rituðu máli, samskipti við
fjölskyldumeðlimi og fagfólk, auk faglegrar rökleiðslu af ýmsu
tagi. Það ber að hvetja nemendur til að vera virkir og ábyrgir
þátttakendur í því sem fram fer á verknámsstað.
Leiðbeiningar til
verknámsleiðbeinenda
• komið væntingum ykkar um frammistöðu nemenda vel til
skila
• leggið áherslu á nám/lærdóm og að nemandinn nýti þá
þekkingu sem hann hefur aflað sér fram til þessa á verk-
námsstað
• sýnið nemandanum hvað faglegt atferli felur í sér
• veitið sértækar upplýsingar
• leyfið nemandanum að spreyta sig á raunverulegum við-
fangsefnum undir leiðsögn
• örvið hann með viðeigandi spurningum
• vísið honum á lesefni, úrræði og athuganir
• gefið bein, skýr og tíð skilaboð
• segið sögur af skjólstæðingum
Tilgangur
að veita nemendum tækifæri til að:
• þróa faglega þekkingu, leikni og viðhorf
• þróa faglega rökleiðslu og lausn viðfangsefna
• þróa og samhæfa sjálfstæði í vinnubrögðum, t.d. hvað varð-
ar tímastjórnun og setningu markmiða
• taka þátt í að skipuleggja, framkvæma og meta alla þætti í
áætlun skjólstæðingsins
• nýta og samhæfa uppbyggilega ráðgjöf í starfi
• nýta og samhæfa fyrri reynslu úr bók- og verknámi við það
sem fram fer á verknámsstað
Þátttaka nemenda og leiðsögn verknámsleið-
beinenda
Áhersla skal lögð á þjálfun og reynslu við lausn viðfangsefna
á verknámsstað, svo sem við mat og íhlutun. Leiðbeinendur
byrja að deila ábyrgð með nemendum, þannig að þeir taki
þátt í öllum þáttum starfsins, svo sem frumgreiningu, mati,
skipulagi og framkvæmd íhlutunar, útskrift og eftirfylgd.
Nemendur skulu hvattir til að þróa eigin hugmyndir og inn-
sæi um úrlausnir í málum skjólstæðinga. Mikilvægt er að þeir
taki virkan þátt í umræðum um ýmsar leiðir til úrlausnar.
Þannig þjálfast þeir í að beita mismunandi aðferðum og tækni
í samræmi við þær kenningar sem íhlutun byggir á. Það ber
að hvetja nemendur til að beita gagnrýnni hugsun, nýta þekk-
ingu sína og fyrri reynslu og deila henni á verknámsstað.
Töluverður munur er á fræðilegum bakgrunni nemenda á
öðru og þriðja verknámstímabili. Hinir síðarnefndu hafa
fengið greinargóða kennslu um íhlutun iðjuþjálfa út frá mis-
munandi faglíkönum. Á seinni hluta tímabilsins eiga þeir að
vera færir um að taka töluverða ábyrgð á öllum þáttum er
varða íhlutun vegna skjólstæðinga og mikilvægt að þeir fái
tækifæri til þess.
Leiðbeiningar til
verknámsleiðbeinenda
• hvetjið nemandann til að draga ályktanir út frá fyrirliggj-
andi upplýsingum og færa rök fyrir máli sínu.
• veitið honum tíma og tækifæri til að skilgreina markmið og
velja leiðir
• ræðið málin við nemandann og örvið hann með viðeigandi
spurningum
• hvetjið hann til ýmissa leiða og ræðið kosti þeirra og galla
• ýtið undir sjálfsgagnrýni
• veitið hvatningu og stuðning
• styrkið faglegt atferli í þróun, veitið nemendum tækifæri til
að aðlaga vinnubrögð og aðferðir að nýjum viðfangsefnum
• veitið hnitmiðaða og markvissa umsögn, hrósið þegar við á
IÐJUÞJÁLFINN 2/98 33