Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Side 34
Fjórða verknámstímabil
Staða nemanda: Styrking
Hlutverk leiðbeinanda: Forsvar
Tilgangur
að veita nemendum tækifæri til að:
• beita faglegri þekkingu, leikni, viðhorfi og atferli
• þróa nánar faglega rökleiðslu og færni við lausn viðfangs-
efna
• leggja rökstutt mat á upplýsingar og taka afstöðu til þeirra
• öðlast sjálfstæði í vinnu með skjólstæðingum
• taka þátt í faglegu starfi
• samsama sig hlutverki iðjuþjálfa
Þátttaka nemenda og leiðsögn
verknámsleiðbeinenda
Þegar hér kemur til sögu hafa nemendur lokið velflestum
námskeiðum í iðjuþjálfunarnámi við Háskólann á Akureyri. Á
síðasta verknámstímabilinu fá nemendur lokaþjálfun í hlut-
verki iðjuþjálfa. Þeir skulu hvattir til að sýna sjálfstæði í
vinnubrögðum, faglegri rökleiðslu og að tengja saman störf og
fræði. Nemendur kunna enn að hafa þörf fyrir leiðsögn, sér-
staklega þegar um er að ræða mjög sérhæfð viðfangsefni, en
gert er ráð fyrir því að í lok tímabilsins séu þeir færir um að
taka fulla ábyrgð á íhlutun vegna skjólstæðinga sinna og þeim
verkefnum sem henni fylgja. Þó þurfa þeir að jafnaði meiri
tíma til að ljúka verki en reyndir iðjuþjálfar. Nemendur skulu
hvattir til samvinnu við samstarfsfólk, sem og að þróa vinnu-
brögð og aðferðir, áreiðanleika og fagmennsku.
Leiðbeiningar til
verknámsleiðbeinenda
• leyfið nemendanum að vinna á eins sjálfstæðan máta og
mögulegt er
• hvetjið hann til að sýna frumkvæði og hafa sig frammi þegar
við á
• hvetjið nemendann til að greina eigin námsmarkmið og þarf-
ir og fylgja þeim eftir
• hvetjið hann til sjálfsgagnrýni
• vinnið með nemandanum sem samherja
• ræðið faglega rökleiðslu
• deilið sögum af skjólstæðingum
• veitið fágæta reynslu
• veitið aðgang að fólki og upplýsingum
• látið af stjórn
Snæfríöur Þóra Egilson, lektor og umsjónarkennari
verknáms viö iðjuþjálfunarbraut HA
Heimildir:
Bell, E. (1996). Fieldwork experience manual. Dalhousie University,
School of occupational therapy, Faculty of health professions.
Forwell, S.(1997). Expectations and guidelines for fieldwork ex-
perience. University of British Columbia, Division of
occupational therapy.
Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson. (1998). Upplýsing-
ar úr kennsluskrá fyrir háskólaárið 1998-1999. Háskólinn á Ak-
ureyri.
Ingvar Sigurgeirsson (1995). Að mörgu er að hyggja, handbók um
undirbúning kennslu. Reykjavík: Bókasala kennaranema.
Sullivan, T. & Bossers, A. (1998). Occupational therapy fieldwork
levels. The newsletter of the Canadian Association of
Occupational Therapists. 15.3 (7-9).
‘UðjiAþjdlfar athiAgið!
Nú fer að fækka í röðum
ritnefndar. Félagsmönn-
um gefst því tækifæri til
að bjóða sig fram til starfa við
þá skapandi iðju að gefa út fag-
blað. Eins og í flestar aðrar
nefndir félagsins er kosið til
tveggja ára í senn. Við sem höf-
um reynsluna mælum tvímæla-
laust með því að vera í ritnefnd.
Iðjuþjálfinn er blað sem er í
stöðugri þróun. Verkefnin eru
spennandi og bjóða upp á sam-
starf við ýmsa aðila. Vilt þú vera
með og leggja þitt af mörkum til
að efla blaðið okkar enn frekar?
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar! Ritnefnd
34 IÐJUÞJÁLFINN 2/98